Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2020, Qupperneq 21
Rómantík & gjafir
14. febrúar 2020
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is
ÁRANGURSRÍKAR SNYRTI- OG LÍKAMSMEÐFERÐIR HJÁ VIRAGO:
„Það þarf ekki að vera
vont til að virka“
Snyrtistofan Virago býður upp á fjölbreyttar og árangursríkar líkams- og snyrtimeðferðir
fyrir þá sem gera kröfur. „Við eru
fimm talsins hjá Virago og höfum
aflað okkur mikillar þekkingar og
reynslu í þeim meðferðum sem við
bjóðum upp á. Við erum bæði með
byltingarkenndar nýjungar sem
og hefðbundnar snyrtimeðferðir
eins og neglur, augnháralengingar,
förðunartattú, microblade-
meðferðir fyrir augabrúnir og
háreyðingarmeðferðir,“ segir Hafdís
Björg Kristjánsdóttir.
„Vinsælasta meðferðin hjá
Virago er Trimform-meðferðin.“
Rafmagnsblöðkur sem senda
rafstraum í gegnum húðina eru
vandlega staðsettar á valin
líkamssvæði. Trimform getur tekið
á ýmsu eftir því hvernig blöðkurnar
eru staðsettar. Algengast er
að nýta meðferðina til að auka
brennslu, til styrkingar eða gegn
húðvandamálum. „Margir koma
til okkar eftir þyngdartap til þess
að stinna og styrkja húðina. Einnig
nýtist það gegn vöðvabólgu og til
að styrkja grindabotninn. Fólk finnur
greinilegan mun á sér og kemur
aftur og aftur. Trimformið hefur verið
lengi í boði á Íslandi og fólk þekkir
árangurinn. Hver tími er 40 mínútna
langur. Margir taka tarnir og mæta
tvisvar-þrisvar í viku í ákveðinn tíma.
Aðrir taka lengri pásur inni á milli
skipta. Þá er einnig hægt að kaupa
hjá okkur 5–20 skipta kort.“
Ótrúlegur árangur af Trimform.
Einnig býður Virago upp á SRT
Teygjunudd. Um er að ræða nýja
gerð af nuddmeðferð, sem fundin
var upp af Bandaríkjamanninum
Chris, og samtengir hið líkamlega
og andlega með teygjum, nuddi og
andlegri slökun. „Ég kynntist SRT
Teygjunuddi í gegnum feril minn
sem einkaþjálfari. Sjálf var ég alltaf
fókuseruð á líkamlega hlutann þegar
kom að heilsu og vellíðan. Eftir að
hafa kynnst SRT Teygjunuddi og
slökunarnuddi sá ég með eigin
augum hversu mikil áhrif andlegi
þátturinn hefur á líkamann. Fólk
er fast í þeirri trú að það þurfi að
upplifa sársauka til að losna við verki
í líkamanum, en sársaukafullt nudd
getur oft gert illt verra.“
SRT Teygjunudd er áhrifaríkt
gegn ýmiss konar sársauka og
verkjum. „Margir tala um að þeir
hafi sjaldan náð að slaka jafn vel
á eins og í meðferð hjá mér og fólk
nær oft góðum djúpsvefni næturnar
á eftir, sem er oft eitthvað sem
vantar. Góður og djúpur svefn er
bráðnauðsynlegur þegar kemur
að því að heila verkjaðan líkama.
Þetta spilar allt saman, nuddið,
teygjurnar, slökunin og svefninn. Ég
hef fengið virkilega jákvæð viðbrögð
frá viðskiptavinum mínum og það
er uppbókað hjá mér langt fram
í tímann. Margir taka 6–8 skipta
tarnir og koma 2–4 sinnum í mánuði.
Aðrir mæta í eitt skipti og panta
svo tíma ef verkirnir taka sig upp
aftur. Ég vil benda á að þetta er
ekki töfralausn sem virkar eins fyrir
alla. SRT Teygjunudd ein af mörgum
meðferðarleiðum sem hægt er að
nýta til þess að vinna á verkjum í
líkamanum.“
Í Hollywood Glow
andlitsmeðferðinni eru infra-rauðir
ljósgeislar nýttir til þess að auka
kollagenframleiðslu húðarinnar.
„Árangurinn er ótrúlegur og sést
samstundis. Fyrst er maður smá
rauður í húðinni en eftir tvo daga
er roðinn farinn og eftir stendur
sléttari og stinnari húð. Öll drulla
í húðsekkjum og kúlur sem brotna
ekki niður af sjálfsdáðum, hverfa
eins og dögg fyrir sólu. Sé fólk að
panta meðferð fyrir sérstök tilefni
mælum við með að koma minnst
tveimur til þremur dögum áður.
Meðferðin virkar líka annars staðar
á líkamanum. Til dæmis er þetta
ótrúlega árangursríkt til þess að losna
við hvimleiðar bólur á bakinu o.fl.“
Hollywood Glow.
Virago er stoltur söluaðili St. Tropez
brúnkuvaranna. „Við bjóðum upp á
SprayTan meðferðir með St. Tropez
vörunum. SprayTan verður sífellt
vinsælla enda eru konur og karlar
orðin mun meðvitaðri um skaðsemi
sólarinnar á húðina. Við bjóðum upp
á fjölbreyttar brúnkumeðferðir, allt
frá keppnisbrúnku fyrir fitnessmódel
til brúnkumeðferða fyrir þá sem vilja
bara smá lit sem skolast af daginn
eftir. Við pössum að liturinn passi við
undirtón húðarinnar svo útkoman sé
sem fallegust. Við mælum með að
pantaður sé tími í brúnkumeðferð
a.m.k. degi fyrir sérstaka viðburði.
Það tekur stuttan tíma fyrir efnið að
þorna á húðinni, en um 6–8 tíma
fyrir fulla virkni. Því má ekki fara í
sturtu fyrr en eftir minnst 6 tíma.
Ef eitthvað kemur fyrir og brúnkan
skemmist, bjóðum við fólki að koma
og láta laga endurgjaldslaust. Það
er okkur mikilvægt að viðskiptavinir
okkar séu ánægðir með útkomuna.
Einnig er vinsælt að senda steggi í
keppnisbrúnkumeðferð, og þá kunnum
við líka alveg reyna á þanþol St. Tropez
varanna,“ segir Hafdís og glottir.
Nánari upplýsingar má nálgast á
vefsíðu Virago, virago.is
Faxafen 14.
Símanúmer: 552-4422
Facebook: Virago
Fyrir Trimform hægra megin og eftir vinstra megin.