Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2020, Síða 22
Febrúar er ástarmánuður
í home&you
Pólska húsbúnaðarverslunin home&you var opnuð með pomp og prakt í
apríl síðastliðinn og stimplaði
sig samstundis inn sem
ein af skemmtilegustu
heimilisvöruverslunum Reykjavíkur.
Vörurnar falla svo sannarlega
í kramið hjá stílmeðvituðum
Íslendingum og vinsælar
vörutegundir seljast fljótt upp. „Við
erum með hátt yfir þrjú þúsund
fjölbreyttar vörutegundir frá
home&you merkinu hér í búðinni.
Við erum með allt frá þvottapokum
og baðvörum yfir í barnavörur,
skartgripaskrín, veggspegla og
einstaka sófaborð. Home&you
vörurnar eru fallegar og vandaðar
og það besta er að þær eru á
sanngjörnu verði sem dregur að
viðskiptavini,“ segir Anna Guðrún
Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
home&you á Íslandi.
Komdu ástinni þinni á óvart með
fallegum konudagsgjöfum
Febrúar er sannkallaður ástarmánuður.
Valentínusardagurinn er upprunninn
og konudagurinn er handan við
hornið og því upplagt að sýna ást
sína til makans í verki. „Við eigum
fullt af fallegum kvensloppum
sem eru fullkomnir í konudagsgjöf.
Slopparnir koma í ýmsum litum,
mynstrum og efnum. Þá eigum við
bæði hlýja og notalega kúrusloppa
og fallega þunna sloppa úr silkiefni.“
Hvað er heimili án ilms?
Húsilmur og ilmkerti eru klassískar
konudagsgjafir sem skjóta alltaf í
mark, alveg eins og ástarengillinn
Kúpid. „Við eigum gott úrval af
æðislegum ilmi sem setur punktinn
yfir i-ið á fallegu heimili.“
Játaðu ást þína í kaffibolla
Færðu elskunni þinni heitt súkkulaði
eða kaffi í rúmið í bolla sem segir
allt. „Hjá okkur færðu kaffi- eða
tebolla með fallegum áletrunum og
ástarjátningu, því það er aldrei hægt
að játa ást sína of oft. Fyrir klaufska
er samt kannski sniðugra að fylla
bollann af súkkulaðimolum.“
Home&húmor
Það vantar svo ekki húmorinn
hjá fyrirtækinu. „Við eigum
stórskemmtilega sparigrísi fyrir
pör. Þá er stór grís með minni grís
sem hvílir ofan á þeim stóra. Á litla
grísnum stendur „his money“ og á
stóra grísnum stendur „her money“,
en brandarinn er að grísirnir eru
samtengdir og því er peningurinn
þeirra beggja.“
Vandaðar heimilisvörur
Home&you er með gott vöruúrval af
fallegum settum á baðherbergi. „Þá
færðu tannburstaglas, sápupumpu,
bómullarkrukku, klósettbursta
og fleira, allt í stíl. Þetta er svo
auðveld og áhrifarík leið til þess
að breyta aðeins til heima hjá sér.
Ég vil líka minnast á að míkrófíber
pólýesterblöndu lökin okkar eru á
frábæru verði, enda sívinsæl. Ólíkt
mörgum ódýrari lökum þá svitnarðu
ekki neitt með þessi. Lökin fást í
helstu stærðum og það dýrasta er
á 3.990 kr., sem telst afar gott verð
fyrir 200×220 cm lak.“
Baðmotturnar frá home&you eru
alger himnasending inn á heimili þar
sem enginn gólfhiti er. „Ég er með
svona mottu í svefnherberginu mínu
því hún er bæði mjúk og notaleg og
stöm undir. Svo skemmir ekki fyrir
hvað hún er falleg.“
Í stofudeildinni er að finna allt milli
himins og jarðar til að fegra heimilið:
kertastjaka, styttur, vasa, gerviblóm,
blómapotta og skálar. Marga af
þessum vöruflokkum er hægt að fá
í stíl sem setur fallegan heildarsvip
á stofuna. „Þá erum við með falleg
box á sófaborðið t.d. til þess að
geyma sjónvarpsfjarstýringar eða
prjónadótið í. Einnig erum við með
mikið úrval af styttum sem við seljum
ógrynni af daglega. Svo eigum við
líka glæsileg skartgripaskrín fyrir
konur á öllum aldri sem hafa meðal
annars verið vinsæl í fermingargjafir.
Álíka skartgripaskrín hafa víst ekki
fengist lengi á Íslandi og því er gaman
að geta boði upp á þau hér hjá okkur.“
Hjá home&you færðu líka allt
fyrir borðhaldið: bollastell, leirtau,
falleg vínglös, dúka, löbera og margt
fleira. „Undanfarið hafa vinsælustu
löberarnir verið í hvítu, svörtu,
gylltu, silfruðu og rósagulli, en með
árstíðaskiptum koma bjartari litir. Við
erum t.d. að fá nýja löbera í fallegum
flöskugrænum og kóngabláum
lit. Við erum dugleg að vera með
puttann á púlsinum þegar kemur að
hátíðahöldum og þegar nýjar árstíðir
ganga í garð. Smekkur manna
breytist enda með hækkandi og
lækkandi sól.“
Barnavörur í úrvali
Barnalínan frá home&you hefur
slegið í gegn enda ýmislegt að finna
þar sem ekki finnst annars staðar.
„Við eigum mælistikur fyrir börn í
bleiku og bláu. Á ákveðnu tímabili
verða börn virkilega spennt yfir því
hvað þau stækka hratt. Þetta er því
tilvalið til að hengja í barnaherbergi.
Stikan mælir hæð barnsins og svo
er pláss fyrir þrjár myndir af barninu
á mismunandi aldri. Einnig eigum
við gullfalleg skartgripaskrín fyrir
stelpur sem elska að punta sig.
Skrínin eru með dansandi ballerínu
og spiladós sem kveikir heldur betur í
nostalgíunni hjá mömmunum.“
„Ég get haldið endalaust
áfram því listinn er ótæmandi. Í
home&you færðu allt sem hugsast
getur inn á heimilið og það sem
viðskiptavinunum finnst best er að
þarna eru þeir ekki bara að finna
gjafavöru heldur líka fallegar vörur
fyrir sig sjálfa á flottu verði.“
Komdu og heillastu af vönduðum
heimilisvörum frá Home&you í
Skeifunni 11b, 108 Reykjavík.
Facebook: Home&you Iceland.
Sími: 421-6100 M
yn
d
ir:
E
yþ
ór
Á
rn
a
so
n
Rómantík og gjafir 14. febrúar 2020KYNNINGARBLAÐ