Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2020, Blaðsíða 25
Sérblað
14. febrúar 2020
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is
Fjögur ár eru liðin síðan Vilhjálmur Andri Einarsson hóf ferðalag sitt til betri heilsu og
breytingin er með ólíkindum. Andri
var langt leiddur í þunglyndi og
þjakaður af krónískum bakverkjum
eftir að hafa orðið fyrir mænuskaða
13 ára. Hann deyfði sársaukann
með lyfjum og áfengi sem hafði sitt
að segja þar til hann einfaldlega
gat ekki meir. „Ég stóð í skilnaði á
þessum tíma og sá enga framtíð.
Mig langaði mest til þess að stimpla
mig út,“ segir Andri.
Hætti loks að væla
Andri stóð hér ákveðnum
þröskuldi og hafði engu að tapa
að honum fannst. „Ég skráði mig
á námskeið til að læra að hreyfa
mig. Á námskeiðinu barst talið
að Hollendingnum Wim Hof sem
er frægur fyrir að geta þolað ýkt
kuldaskilyrði. Ég hafði séð myndband
með þessum gæja og stimplaði
hann sem algeran rugludall,
gangandi um snæviþakin fjöll á
naríunum einum klæða. Strákarnir á
námskeiðinu voru hissa á fordómum
mínum og sögðu mér að „hætta að
væla“ og prófa þetta bara sjálfur.“
Andri varð forvitinn og fjárfesti
í kari, fyllti það af ísvatni heima í
garðinum og skellti sér ofan í. „Ég
gjörsamlega emjaði og öskraði af
sársauka. Ég vissi engan veginn
hvernig ég átti að bregðast við
þessum óbærilega kulda. En eftir
nokkur skipti gerðist eitthvað. Ég
lærði smám saman að slaka á gefa
eftir. Ég hef gefist ótal sinnum upp
á lífinu og vissi hvernig það var að
vera alveg á botninum. Þessi reynsla
gerði mér kleift að finna ró í öllu
þessu innra og ytra áreiti.“
Á þremur vikum tók líf Andra
algeran viðsnúning. „Bólgurnar í
bakinu sem ollu þessum króníska
sársauka hjöðnuðu og einkennin
voru 90% á bak og burt. Ég gat loks
hreyft mig almennilega og í kjölfarið
fór þunglyndið þverrandi. Ég sætti
mig við raunveruleikann eins og
hann var og það var ekki fyrr en þá
sem ég átti von um að ná bata. Ég
náði að endurnýja kerfin í huganum
og líkamanum. Ég líki þessu stundum
við það að við séum að keyra á
eldgamalli hugbúnaðaruppfærslu.
Allt okkar líf er einn stór vani og
vítahringur. Við viljum kenna fólki
að brjóta hugsanamynstrin og
gera uppfærslu á eigin kerfi. Þegar
við lærum að taka stjórnina fara
ótrúlegustu hlutir að gerast. Í dag
er ég í besta formi lífs míns og hef
ekki orðið lasinn í fjögur ár því að
líkami og hugur eru í jafnvægi. Þegar
maður er í jafnvægi þá vinna öll
önnur kerfi líkamans miklu betur.
Ónæmiskerfið er einfaldlega betur í
stakk búið til að sigrast á sýkingum.“
Dag frá degi erum við föst í
„berjast eða flýja“-ástandið (fight
or flight) sem í forsögulegum tíma
hjálpaði mannskepnunni að varast
raunverulegar hættur eins og
rándýr. Slíkt ástand gerir okkur
ofurathugul svo við getum brugðist
snöggt við, en er að sama skapi
orkufrekt. „Einhver flautar á okkur í
umferðinni eða það er mikið að gera
í vinnunni. Hvorugt er lífshættulegt
en samt eru viðbrögðin að fara beint
í „berjast eða flýja“-ástandið. Þetta
getur valdið langvarandi kvíða og
stressi og veldur loks þunglyndi.
Það magnar upp allt sem hrjáir
okkur, hvort sem það eru verkir eða
annað. Við erum föst í vítahring en
þurfum að læra að slaka á og finna
jafnvægi.“
Lítil táknsaga um lífið sjálft
Hættu að væla komdu að kæla er
ekki bara námskeið í því að vera
lengi í kalda pottinum eða geta
synt í ísilagðri tjörn. „Við kennum
fólki að ná stjórn innra með sér og
finna ró og jafnvægi í nánast hvaða
aðstæðum sem er. Kuldabað er afar
kraftmikil og mögnuð leið til þess að
þjálfa okkur í því að halda jafnvægi.
Þegar þú ferð í ískalt bað í fyrsta
sinn án nokkurrar þjálfunar eru
mismunandi leiðir til þess að takast
á við kuldann. Okkur er eðlislægt
að stífna upp, anda grunnt,
verða taugaveikluð og berjast við
tilfinninguna. En það er líka hægt
að takast á við ástandið með því
að halda ró og finna jafnvægi. Það
er einmitt það sem við kennum á
námskeiðinu. Að læra að takast á
við sjálfan sig og ná jafnvægi í svo
öfgakenndu ástandi er eitthvað sem
við getum nýtt okkur í öllu því sem
við tökum okkur fyrir hendur. Þetta
er í raun eins og lítil táknsaga um
lífið sjálft.“
Námskeiðið er ætlað þeim sem
vilja kanna eigin kraft og getu og
er gott fyrir:
• Aukið úthald
• Topp heilsu
• Langvinna verki
• Streitulosun
• Andlega heilsu
• Þyngdarstjórnun
• Betri svefn
• Aukna einbeitingu
Næsta Hættu að væla komdu að
kæla námskeið hefst 1. mars og lýkur
21. mars.
Á öndunarnámskeiðinu Bless
stress lærirðu aðferðir til þess að
losa um stress og kvíða, öðlast
meiri orku, skýrleika í hugsun,
tilfinningalegt jafnvægi og margt
fleira.
Nánari upplýsingar má finna á
vefsíðunni andriiceland.com
Hættu að væla komdu að kæla