Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2020, Side 29
FÓKUS 2914. febrúar 2020
Sundaborg 1
104 Reykjavík
777 2700
xprent@xprent.is
SÓLARFILMUR!
Lausnir
fyrir
heimili
og fyrirtæki
Ilmkerti og David Hasselhoff
Allt sem þú vissir ekki um keppendur í Söngvakeppninni
A
nnað undanúrslitakvöld Söngvakeppninnar fer fram laugar
dagskvöldið 15. febrúar. Fimm flytjendur etja kappi og freista
þess að komast í hóp með hljómsveitinni Dimmu og dúett
Ísoldar og Helgu, sem komust áfram í úrslitin eftir fyrra undan
úrslitakvöldið. Sjálft úrslitakvöldið fer fram 29. febrúar og þá ræðst hver
verður fulltrúi Íslands í Eurovision í Rotterdam í maí. DV kynnti sér
keppendur betur, en þeir leyna á sér á ýmsum sviðum.
Íva Marín Adrichem
Íva fæddist blind vegna
augngalla. Hún byrjaði
í tónlistarnámi tveggja
ára, en faðir hennar er
hollenskur og móðirin
íslensk.
Stór plön
Íva sigraði í alþjóðlegri
ritgerðarsamkeppni
Lionshreyfingarinnar
fyrir blind og sjónskert
ungmenni árið 2011
og stóð ekki á svörum
þegar hún var spurð um
sín framtíðarplön. „Ég
ætla að verða forsætis
ráðherra,“ sagði hún þá í
viðtali við Morgunblaðið.
Sund og söngur
Auk þess að vera afreks
kona á sviði tónlistar
æfði Íva lengi vel sund og
státar af ýmsum metum í
þeirri grein.
Nína Dagbjört Helgadóttir
Nína er vel merkt föðurnafninu
en fyrsta húðflúrið sem hún fékk
sér var Helgadóttir, en blekið
hefur verið á söngkonunni síðan
sumarið 2017.
Jólastjarna
Nína hefur lengi reynt að skapa
sér nafn í tónlistinni og tók með
al annars þátt í Jólastjörnunni
árið 2015 þar sem hún freistaði
þess að fá að syngja með sjálf
um Bó Halldórs á jólatónleik
um. Nína stóð sig með prýði en
hreppti ekki hnossið.
Ilmur af velgengni
Það leynist líka frumkvöðull í
Nínu en hún stofnaði fyrirtæki
ásamt samnemendum í frum
kvöðlafræði í Fjölbrautaskóla
Garðarbæjar í fyrra. Fyrirtæk
ið sérhæfði sig í framleiðslu á
ilmkertum sem róa hugann og
Nína gegndi starfi fjármálastjóra
í sprotafyrirtækinu.
Matthías Matthíasson
Matti er bæði lærður kaf
ari og keppti í spjótkasti á
yngri árum. Hann reyndar
spreytti sig í flestum íþrótt
um sem barn, svo sem fót
bolta, handbolta og sundi
og státar af verðlaunapen
ingum í ýmsum greinum.
Tilgangslaus hæfileiki
Matti kann að tala og
syngja afturábak, algjör
lega áreynslulaust. Þennan
hæfileika hafa Íslendingar
oft fengið að hlýða á og sjá.
Spólandi góður
Hann byrjaði að vinna
í fiski tíu ára gamall og
keypti sér hjól fyrir laun
in. Hann hjólaði mikið
sem barn og var þekktur
fyrir að geta farið langar
vegalengdir á afturhjólinu
einu saman.
Hildur Vala Einarsdóttir
Hildur sigraði í Söngvakeppni
félagsmiðstöðvanna árið 1997
ásamt vinkonu sinni, Ingunni
Önnu Ragnarsdóttur, með út
gáfu af laginu Sound of Silence.
Þær unnu hópakeppnina en
í einstaklingskeppni var það
Guðrún Árný sem fór með sig
ur af hólmi.
Spékoppurinn frægi
Einkennismerki söngkonunn
ar er lítill spékoppur á vinstri
vanga sem hún fékk eftir hjól
reiðaslys þegar hún var tíu
ára. Hildur fór niður brekku
á bremsulausu hjóli, datt af
hjólinu og lenti harkalega
með kinnina á steini. Sauma
þurfti nokkur spor í kinnina og
þannig fæddist spékoppurinn.
Hasselhoff í uppáhaldi
Hildur var dugleg að láta að sér
kveða í BarnaDV og Æskunni
á árum áður, skrifaði sögur og
auglýsti eftir pennavinum. Þá
safnaði hún öllu með Strand
varðagoðinu David Hasselhoff
og bauð ýmislegt í skiptum
fyrir góss með því tengt, til að
mynda veggmyndir með Plá
hnetunni, Kiss og Todmobile.
Daði Freyr Pétursson
Daði er 208 sentímetrar á hæð
og byrjaði í körfubolta er hann
gekk í Fjölbrautaskóla Suður
lands. Hann ku hafa verið ansi
öflugur í boltanum þar til hann
tók listina fram yfir dripplið.
Fyrsti kossinn
Daði eignaðist nýver
ið sitt fyrsta barn með sinni
heittelskuðu, Árnýju Fjólu
Ásmundsdóttur. Þau kynnt
ust í Fjölbrautaskóla Suður
lands en fyrsti kossinn kom
á Hróarskelduhátíðinni árið
2010.
Rafheili ársins
Daði var meðlimur í hljóm
sveitinni ReTroBot sem bar
sigur úr býtum í Músíktilraun
um árið 2012. Á sömu hátíð
var Daði valinn rafheili ársins.
Þetta var ekki í fyrsta sinn sem
Daði keppti í Músíktilraunum
en árið 2008 tók hann þátt með
hljómsveitinni Sendibíll.