Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2020, Blaðsíða 30
30 14. febrúar 2020
SAKAMÁL
F
rásögn þessi hefst í ágúst, árið 1660,
í bænum Chipping Campden í
Gloucester-skíri á Englandi. Þá bjó
þar karl einn, William Harrison, sjö-
tugur að aldri. Hann ákvað, þann 16. þess
mánaðar, að rölta til Charingworth, þorps
sem lá í um þriggja kílómetra fjarlægð frá
Chipping Campden, átti þar meðal annars
eitthvert erindi við leiguliða í Ebrington.
Nú, Harrison gamli skilaði sér ekki heim
á ætluðum tíma og eiginkonu hans leist
ekki á blikuna og brá á það ráð að senda
einkaþjón hans, John Perry, til að grennsl-
ast fyrir um hann.
Árangurslaus leit
Leið nú dagurinn og næsta nótt og þegar
djarfaði fyrir dögun varð spúsu Harrison
ljóst að hvorki hann né John Perry höfðu
skilað sér. Sendi hún þá son þeirra hjóna,
Edward, til leitar að tvímenningunum. Á
leið hans til Charingworth mætti hann
John Perry, sem sagði leit sína að hús-
bóndanum engum árangri hafa skilað.
Edward og John urðu samferða til Ebr-
ington og náðu tali af áður nefndum leig-
uliða. Sá sagði að vissulega hefði Harrison
litið við kvöldið áður, en hann gæti engu
bætt við þær upplýsingar.
Lá þá leið Edwards og Johns til Paxford
en leit þeirra þar bar ekki árangur.
Blóðugur fatnaður finnst
Þeir sáu sitt óvænna og lögðu af stað heim
til Chipping Campden. Á leið sinni þang-
að barst þeim til eyrna orðrómur þess efnis
að einhverjar eigur Harrison gamla hefðu
fundist á aðalveginum á milli Chipping
Campden og Ebrington. Þar á meðal voru
hattur, skyrta og hálstau.
Virtist sem hatturinn hefði verið skor-
inn með beittu áhaldi og skyrtan og háls-
tauið voru ötuð blóði. William Harrison
var þó hvergi að sjá, hvorki lífs né liðinn.
Af verksummerkjum mátti þó ætla að eitt-
hvað miður huggulegt hefði átt sér stað,
þótt engar grjótharðar vísbendingar lægju
fyrir.
John opnar sig
Lögreglan gat ekki gengið út frá nokkru
vísu og því fátt annað í stöðunni en að
þjarma að John Perry. Við yfirheyrslu
sagðist John vita að Harrison hefði ver-
ið myrtur, en fullyrti að hann sjálfur væri
saklaus.
Við frekari yfirheyrslur sagði John að
Richard, bróðir hans, og Joan, móðir hans,
hefðu banað Harrison vegna peninga. Þau
hefðu síðan falið líkið.
Richard og Joan virtust koma af fjöllum
og vísuðu til föðurhúsanna fullyrðingum
um að þau hefðu myrt Harrison eða væru
yfirhöfuð viðriðin hvarf hans.
John aftur á móti stóð fastur á sinni frá-
sögn; þau myrtu Harrison og fleygðu líki
hans í myllutjörn. Tjörnin var slædd en
ekkert lík fannst.
Sannfærandi vitnisburður
Í fyrstu fyrirtöku beindust sjónir að ákæru
sem sneri að ráni, enda engu líki til að
dreifa. Mæðginin Richard og Joan ítrek-
uðu að þau væru saklaus, en vitnisburður
Johns sannfærði kviðdóm um sekt þeirra.
Það var kannski engin furða því John
sjálfur virtist ekki hafa nokkra ástæðu til
að ljúga til um málið. Hann sagði reynd-
ar að hugmyndin um að ræna Harrison
hefði verið hans. Enn fremur sagði John að
Richard og Joan hefðu áður seilst í pyngju
Harrison; árið áður hefðu þau stolið frá
honum 140 pundum, sem var dágóð
summa í þá daga.
John sagðist einnig hafa undirbúið jarð-
veginn fyrir ránið með því að ljúga að hann
sjálfur hefði lent í klóm ræningja nokkrum
vikum áður en William Harrison hvarf.
Breytt staða mæðginanna
Þegar þarna var komið sögu voru móðir-
in og synir hennar tveir aðeins ákærð fyrir
rán því dómarinn sá ekkert vit í morð ákæru
í ljósi þess að ekkert lík var til staðar.
Verjandi þeirra ráðlagði þeim að játa
sig sek um rán, um yrði að ræða fyrsta af-
GLÆPASAGA FRÁ GLOUCESTER-SKÍRI
n William Harrison hvarf sporlaust n Móðir og tveir synir hennar voru grunuð um græsku n Mótbárur mæðginanna hrukku skammt n Gálginn beið þeirra
„Sennilega væri Joan
Perry norn í ofanálag
og því var hún hengd fyrst