Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2020, Page 31
SAKAMÁL 3114. febrúar 2020
brot þeirra og því yrði þeim veitt frelsi sam-
kvæmt lagaákvæði þar að lútandi. Og það
gerðu þau.
Það átti eftir að koma í ljós að það var
mjög misráðið því vorið 1661 kom réttur-
inn saman á ný og þá vegna morðákæru á
hendur mæðginunum.
Þar sem þau höfðu lýst sig sek um rán
fyrrum voru þau glæpamenn í augum rétt-
arins og þar af leiðandi engrar miskunnar
að vænta úr þeirri átt.
Í þetta skipti snerist John á sveif með
bróður sínum og móður og öll sögðust þau
saklaus af morði. John sagðist ekki hafa
verið heill á geði þegar hann hélt hinu and-
stæða fram. Þau töluðu fyrir daufum eyr-
um, voru sakfelld og dæmd til dauða.
Norn í þokkabót
Perry-mæðginin mættu örlögum sínum
saman á Broadway-hæð í Gloucester -skíri.
Á gálganum ítrekuðu bræðurnir sakleysi
sitt, en það var frekar seint um rassinn grip-
ið.
Meðan á málaferlunum stóð höfðu ein-
hverjir sem að þeim stóðu, komist að því
að sennilega væri Joan Perry norn í ofaná-
lag og því var hún hengd fyrst, því mögu-
lega hefði hún hneppt syni sína í álög sem
gerði þeim ókleift að játa sig seka, segir
sagan.
Þarna lauk sem sagt þætti Perry-
-mæðginanna í þessari frásögn, sem þó er
engan veginn lokið.
Laumufarþegi frá Tyrklandi
Árið 1662 kom til hafnar í Dover á Englandi
skip frá Lissabon. Frá borði gekk William
Harrison og var ekki laust við að heim-
koma hans vekti margar spurningar.
Harrison sagði að honum hefði verið
rænt og ræningjar hans sært hann með
sverði á mjöðm og síðu, vasar hans hefðu
verið fylltir af peningum og hann síðan
fluttur á hestum til Deal-hafnar í Kent og
þaðan af landi brott.
Hann hefði síðan verið færður yfir á
tyrkneskt skip og að lokum seldur í þræl-
dóm í Tyrkjaveldi.
Eftir eitt ár og níu mánuðum betur hafði
húsbóndi hans dáið og Harrison þá farið
niður að höfn, laumast um borð í portú-
galskt skip og að lokum komist til Dover,
með viðkomu í Lissabon.
Fjöldi spurninga, fátt um svör
Frásögn Harrison svaraði færri spurning-
um en hún vakti. Hví ætti nokkur að ræna
sjötugum karli, fylla vasa hans af pening-
um og selja hann síðan í þrældóm fyrir
smáaura?
Hvernig gat reiðtúr Harrison og ræn-
ingja hans, frá Chipping Campden, farið
fram hjá öllum?
Af hverju hefðu þeir sem rændu Harri-
son og særðu átt að koma honum til heilsu
aftur, sjötugum manninum?
Það er margt í mörgu og það eina sem
virtist ljóst þegar upp var staðið, var að
Perry-mæðginin voru saklaus hengd. Að
sögn hafa þau ekki enn fengið uppreist
æru. n
GLÆPASAGA FRÁ GLOUCESTER-SKÍRI
n William Harrison hvarf sporlaust n Móðir og tveir synir hennar voru grunuð um græsku n Mótbárur mæðginanna hrukku skammt n Gálginn beið þeirra
„Virtist sem hattur-
inn hefði verið
skorinn með beittu
áhaldi og skyrtan og
hálstauið voru ötuð blóði
Enskur dómsalur Perry
mæðginin kynntust ensku
réttarfari af eigin raun
Þrælahald í Tyrkja-
veldi Kemur við sögu í
hvarfi Williams Harrison.