Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2020, Síða 34
34 FÓKUS 14. febrúar 2020
10 stjörnubörn í sviðsljósinu
Oft er staðreyndin sú að börn frægra
verða merkt foreldrum sínum og það
sem foreldrarnir standa fyrir. Það getur
því verið erfitt fyrir listafólk að taka flugið
þegar skuggi foreldranna umlykur allt. Til
eru margar og mismunandi sögur um börn
frægra einstaklinga sem ná ekki mikilli
festu í lífi eða atvinnu sökum þessarar
staðreyndar.
Neðangreindur hópur tíu hæfileikra Ís-
lendinga tilheyrir þó ekki þessum flokki
og sýnir fram á að hægt er að ryðja eigin
braut. Þetta eru börn frægra Íslendinga
sem þykja sérstaklega hæfileikarík.
Spuni, tónlist og Heilabrot
Steiney Skúladóttir hef-
ur gert það gott í hljóm-
sveitinni Reykjavíkur-
dætrum, en hún er
dóttir leikkonunnar
Halldóru Geirharðs-
dóttur. Steiney hef-
ur að auki sungið
með hljómsveitinni
Þrjár basískar,
unnið með spuna-
hópnum Improv
Ísland og hún var
einn aðstandenda
sjónvarps-
þáttanna
Heila-
brot.
Góð rödd í genunum Frægðarsól tónlistarkonunn-
ar Sölku Sólar Eyfeld hefur risið hátt á undanförnum
árum. Salka var lengi þáttastjórnandi á Rás 2 og stjórn-
aði meðal annars þættinum Rabbabara til ársins 2018.
Salka var einn af fjórum dómurum í The Voice Ísland.
Hún hefur einnig tekið þátt í uppsetningu
fyrir Þjóðleikhúsið, verið kynnir
í Söngvakeppni sjónvarpsins
og vann Íslensku tónlistar-
verðlaunin 2015 í flokkn-
um Söngkona ársins.
Salka er dóttir Hjálm-
ars Hjálmarssonar leik-
ara, sem er – auk margs
annars – einn þekkt-
asti talsetningarleikari
landsins. Salka hefur
því ekki þurft að sækja
hæfileikana langt
enda hefur hún
verið í sambæri-
legum pakka á
síðustu miss-
erum.
Sonur Stuðmanns og þjóðleikhússtjóra Ólaf-
ur Egill Egilsson hefur marga fjöruna sopið, bæði í
leiklistinni og skrifum. Ólafur skrifaði handrit kvik-
myndanna Brúðguminn, Brim, Eiðurinn
og Kona fer í stríð. Fyrir handritið
að Kona fer í stríð unnu Ólafur
og meðhöfundur hans og leik-
stjóri kvikmyndarinnar, Benedik
Erlingsson, SACD-verðlaunin
á kvikmyndahátíðinni í Cann-
es, Kvikmyndaverðlaun Norð-
urlandaráðs auk hinna íslensku
Edduverðlauna. Ekki þarf að efast
um að foreldrar Ólafs, þau Eg-
ill Ólafsson tónlistarmaður
og Tinna Gunnlaugs-
dóttir leikkona, séu
afar stoltir af sínu
afsprengi.
Vargur góður
Baltasar Breki Samper,
sonur Baltasars Kor-
máks, hefur gert það
gott í að feta í fótspor
föður. Baltasar hefur
staðið sig með prýði á
leiksviðinu, í sjónvarpi
og þótti sérlega góður í
glæpamyndinni Vargi.
Einnig skaut hann upp
kollinum í sjónvarps-
þáttunum Chernobyl.
Hann er rétt að byrja.
Heimsfræg fyrir þrítugt Leikkon-
an Hera Hilmarsdóttir hefur verið
gífurlega virk í starfi vestanhafs og
víðar. Hún er rétt skriðin á fertugs-
aldurinn og hefur vakið mikla
athygli undanfarin misseri fyrir
hlutverk sitt í þáttunum See, þar
sem hún deilir skjánum með hin-
um eftirsótta Jason Momoa, og
stórmyndinni Mortal Engines.
Hera er dóttir leikkonunnar
Þóreyjar Sigþórsdóttur
og leikstjórans Hilmars
Oddssonar, og barna-
barn leikskáldsins
Odds Björnssonar
og hefur hún stað-
ið sig með ágætum
sem stjarna á eigin
vegum.
Svöl í sviðsljósinu Poppstjarnan Svala,
dóttir Stóra Bó, gaf út sína fyrstu
plötu,The Real Me, árið 2001 og
fékk fínar viðtökur. Svala tók
þátt í Eurovision-keppninni
árið 2017 í Úkraínu þar sem
hún flutti lagið Paper. Hún
tók sér einnig sviðslistanafnið
Kali þegar hún gekk til liðs við
hljómsveitina Steed Lord og
stofnaði einnig fatalínu und-
ir því nafni. Svala er þekkt
fyrir glæsilegan og eftir-
tektarverðan fatastíl og
má því segja að hún
komi til dyranna eins
og hún er klædd.
Svala stendur svo
sannarlega undir
nafni.
Nýútskrifaður og með Netflix-
mynd í pípunum Hlynur Þorsteins-
son útskrifaðist sem leikari úr Lista-
háskóla Íslands árið 2018, en hann
er sonur leikarans og uppistandar-
ans Þorsteins Guðmundssonar og
Jóhönnu Halldórsdóttur söngkonu.
Hlynur fagnaði nýlega eins árs afmæli
frumburðar síns og hefur skammar-
laust skilgreint sig sem mikla
fótboltabullu. Á næstunni
má sjá Hlyni bregða fyrir í
Eurovision-kvikmyndinni
sem Netflix framleiðir og
skartar Will Ferrell í að-
alhlutverki.
Á hraðri uppleið Eygló
Hilmarsdóttir, sem útskrif-
aðist nýverið af leiklist-
arbraut Listaháskóla Íslands,
fetar rækilega í fótspor for-
eldra sinna en það eru leik-
ararnir Sóley Elíasdóttir og
Hilmar Jónsson. Áður en
Eygló hóf nám við skólann
lék hún í Konubörnum í
Gaflaraleikhúsinu og Höllu
í kvikmyndinni Gauragangi.
Eygló lék jafnframt í sýning-
um Herranætur í Mennta-
skólanum í Reykjavík, þar á
meðal Títaníu álfadrottningu
í Draumi á Jónsmessunótt.
Afkastamikill grænkeri Arnmundur Ernst
Björnsson hefur verið á gífurlegu flugi undanfarin ár.
Það fór lítið fyrir honum við upphaf fer-
ils, þegar hann lék fyrst lykilhlut-
verk í bíómyndinni Strákarnir
okkar, en frá og með 2018 hefur
honum brugðið fyrir í þáttum á
borð við Flateyjargátan, Ófærð og
Venjulegt fólk og kvikmyndunum
Agnes Joy og Hvítur, hvítur dagur.
Arnmundur hefur reglulega tjáð
sig um lífsstíl sinn sem græn-
keri og ekki síður erfiðleikana
sem fylgdu veikindum móður
hans, Eddu Heiðrúnar Back-
man, sem lést í október 2016
úr MND-sjúkdómnum. Fað-
ir Arnmundar er Björn Ingi
Hilmarsson leikari. Armund-
ur fer einnig, eins og svo
margir Íslendingar, með lítið
hlutverk í Eurovision-kvik-
myndinni sem landsmenn
bíða óþreyjufullir eftir.
Sjóaður í söng og
á sviði Haraldur
Ari Stefánsson, son-
ur Stefáns Jónssonar
leikara, vakti mikla
athygli í Rocky Hor-
ror-sýningu Borgar-
leikhússins fyrir
nokkrum árum. Har-
aldur á þó meira að
baki en einungis leik-
listina enda söngv-
ari og slagverksleik-
ari hljómsveitarinnar
Retro Stefson og hef-
ur verið frá stofn-
un hennar. Haraldur
yfirgaf klakann um
nokkurt skeið þegar
hann stundaði leik-
listarnám í London í
Royal Central School
of Speech & Drama.
Spennandi verður að
fylgjast með næstu
árum hans.
Fleiri stjörnubörn:
Aðalbjörg Árnadóttir leikkona (dóttir Árna Péturs
Guðjónssonar)
Björgvin Franz Gíslason skemmtikraftur (sonur
Eddu Björgvinsdóttur og Gísla Rúnars Jónssonar)
Ólöf Jara og Elísabet Skagfjörð leikkona (dætur Val-
geirs Skagfjörð og Guðrúnar Gunnarsdóttur)
Orri Hugin Ágústsson leikari (sonur Kolbrúnar Hall-
dórsdóttur, fyrrverandi þingkonu)
Saga Sigurðardóttir dansari (dóttir Ólínu Þorvarðar-
dóttur)
Snæfríður Ingvarsdóttir leikkona (dóttir Ingvars E.
Sigurðssonar og Eddu Arnljótsdóttur)