Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2020, Blaðsíða 36
36 MATUR 14. febrúar 2020
Leiðin að hjartanu
n Valentínusardagurinn hefur fest sig í sessi á Íslandi n Hér eru uppskriftir
að skotheldum réttum sem tryggja greiða leið að rómantík
Hráefni – Pestó:
n 3/4 bolli ferskt kóríander
n 1/3 bolli pistasíuhnetur
n 1 jalapeno-pipar án fræja
n 2 hvítlauksgeirar
n Safi úr 1/2 lime
n 3 msk. ólífuolía
n 2–3 msk. vatn
n 1/2 tsk. salt
n pipar
Hráefni – Rækjur:
n 1/2 msk. ólífuolía
n 450 g risarækjur, hreinsaðar
n 1/2 tsk. hvítlaukskrydd
n salt og pipar
Hráefni – Pasta:
n 280 g spagettí
Til að skreyta:
n geitarostur
n kóríander
n saxaðar pistasíuhnetur
Aðferð:
Byrjum á að búa til pestó. Setjið kóríander,
hnetur, jalapeno, hvítlauk, lime-safa, olíu,
vatn og salt og pipar í matvinnsluvél og
blandið vel saman. Setjið til hliðar.
Steikið rækjur í olíu í stórri pönnu yfir með-
alhita. Kryddið með hvítlaukskryddi, salti
og pipar og eldið í nokkrar mínútur. Takið
af hellu og setjið til hliðar.
Eldið pasta samkvæmt leiðbeiningum á
pakka. Hellið vatni af pastanu og setjið það
aftur í pottinn. Hrærið pestó og rækjum vel
saman við. Deilið í skálar og skreytið með
geitarosti, kóríander og hnetum.
Hráefni:
n 450 g grænar baunir
n 1 msk. ólífuolía
n 1/4 tsk. salt
n 1/4 tsk. pipar
n 1/3 bolli grísk jógúrt
n 2 tsk. Creole-krydd
n 1 tsk. rifinn sítrónubörkur
n 1/2 bolli möndlur, gróft saxaðar
n 4 laxaflök
Aðferð:
Hitið ofninn í 230°C. Setjið álpappír á stóra ofnskúffu. Blandið
baunum, olíu, salti og pipar saman í skál. Raðið á skúffu og
bakið í 10 mínútur. Blandið jógúrt, kryddi og sítrónuberki
saman í annarri skál. Búið til pláss í miðju skúffunnar og setjið
laxaflökin þar. Dreifið úr jógúrtblöndunni ofan á flökin og strá-
ið möndlum yfir. Bakið í 12 mínútur.
Styttri leið Þeir sem vilja
stytta sér leið geta keypt tilbúið
pestó. Mynd: Ambitious Kitchen
Framandi Þessi marokkóski réttur er afar
einfaldur. Mynd: Good Housekeeping
Góð blanda
Möndlur og lax
klikka ekki. Mynd:
Good Housekeeping
Einfaldleiki Stundum er hann
bestur. Mynd: Woman’s Day
Hráefni:
n 3 msk. ólífuolía
n 450 g kjúklingabringur
n 1/4 tsk. salt
n 1/4 tsk. pipar
n 1/4 bolli hveiti
n 1 lítill rauðlaukur, skorinn í
sneiðar
n 2 stórar appelsínur
n 1/2 bolli grænar ólífur, skornar í
helminga
n steinselja
n hrísgrjón
Aðferð:
Hitið olíu í pönnu yfir meðalhita.
Saltið og piprið kjúkling og þekið
hann með hveiti. Steikið í 3 til 4 mín-
útur eða þar til hann hefur brúnast.
Setjið á disk. Lækkið hitann og eldið
rauðlaukinn í um 3 mínútur. Setj-
ið safa úr 1 1/2 appelsínu saman við
og skerið restina af appelsínunni í
þunnar sneiðar. Setjið sneiðarnar
saman við laukinn sem og ólífur og
1/4 bolla af vatni. Setjið kjúkling aftur
í pönnu og eldið þar til hann er eld-
aður í gegn. Skreytið með steinselju
og berið fram með hrísgrjónum.
Hráefni:
n 8 tsk. mæjónes
n 4 brauðsneiðar
n 2 msk. smjör
n 4 stór egg
n salt og pipar
n ferskar krydd-
jurtir, saxaðar
Aðferð:
Smyrjið báðar hlið-
ar brauðsneiðanna
með mæjónesi.
Notið kökumót til
að skera út hjarta
í miðju hverr-
ar brauðsneiðar.
Bræðið smjörið í
pönnu yfir meðal-
hita. Bætið brauði
(og hjartamiðj-
unni) á pönnunna
og steikið í 5
mínútur. Snúið
sneiðunum við
og brjótið egg í
miðjuna. Saltið og
piprið. Lækkið hit-
ann og eldið í 5 til
7 mínútur til við-
bótar. Skreytið með
ferskum kryddjurt-
um og berið fram.
Pasta með pestó
og pistasíuhnetum
Möndlulax
Hjartabrauð
Marokkóskur
kjúklingaréttur