Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2020, Page 44
44 FÓKUS 14. febrúar 2020
SOGTÆKI, TITRINGUR
OG RASSALEIKIR
n Vinsælustu kynlífstæki á Íslandi n Sogtæki toppa listann en tæki til að
leika við endaþarminn koma sterk inn
M
ikið úrval er af verslunum
á Íslandi sem sérhæfa sig í
hjálpartækjum ástarlífsins. DV
kannaði markaðinn og athugaði
hvaða vörur væru vinsælastar hjá þeim
sem vilja smá (eða dúndurmikið) krydd í
kynlífið.
Það má með sanni segja að sogtæki af
ýmsu tagi toppi listann, en um er að ræða
tæki með ýmsum sogstillingum sem ku
veita mikinn unað, hvort sem þau eru
notuð á sníp og barma eða endaþarm.
Meðal þeirra vinsælustu eru tæki sem
bæði sjúga og titra – tvöföld gleði!
Einnig eru „strap-onar“, beisli með
gervilim sem konur geta smellt á sig, afar
vinsælir og einnig svokallað „anal plug“ sem
veitir, eins og nafnið gefur til kynna, unað í
endaþarm. Því virðist sem Íslendingar séu
farnir að kanna endaþarminn sífellt meira
í kynlífi, sem sést best á því að mest selda
vara kynlífstækjaverslunarinnar blush.is
árið 2019 var einfaldlega sleipiefni, sem er
þarfaþing ef gleðja á afturendann.
Kraftur fyrir lengra komna
Meðal þess vinsælasta hjá
blush.is er Womanizer
Premium, tæki sem örvar
snípinn með sogtækninni.
Tólf mismunandi stillingar,
allt frá léttri snertingu yfir í
kraftmikið sog fyrir lengra
komna. Ekki skemmir fyrir
að tækið er afar hljóðlátt
og því engin hætta á
að mótorhljóðin veki
heimilisfólkið.
Ódýrari týpan
Þeir sem hafa minna á milli handanna og
geta ekki splæst í Womanizer-vörurnar
geta kíkt á tantra.is á Satisfyer Pro 2 Next
Generation. Sú vara er svipuð Womanizer,
nema mun ódýrari, og sagan segir að sogið
úr þessu tryllitæki færi konum alsælu, hvar
og hvenær sem er, þó ekki eins hljóðlátlega
og Womanizer.
Heit múffa
Satisfyer Men Masturbator Heat Vibration
er tækið með langa nafnið og mikla
unaðinn. Það fæst hjá hermosa.is og
kallast á íslensku einfaldlega múffa. Múffa
þessi er með þrjár hitastillingar og sjötíu
titringsstillingum svo allir karlmenn ættu
að finna stillingu við hæfi. Upplifun fyrir
karla ku vera lík því að stunda kynlíf með
manneskju.
Litla leyndarmálið
Vinsæl vara hjá bæði hermosa.is og tantra.
is er Partner Plus og smellpassar hún í
paraleikinn. Tækið er vatnshelt og því
hægt að taka það með í bústaðinn, en því
fylgir einnig fjarstýring sem þýðir að hægt
er að leika sér með litla leyndarmálið í
mannfagnaði án þess að nokkur þurfi að
vita. Tækið örvar G-blettinn og snípinn og
virkar í flestum stellingum. Nú er bara að
nota ímyndunaraflið!
Einnota unaður
Hedy Svakom er vinsæl, einnota runkmúffa
hjá blush.is. Það þarf líklegast ekki að
fjölyrða um kosti hennar.
Stærðin skiptir ekki máli
Erótíska nuddtækið Nalone Roma fæst
hjá amor.is. Sex titringsstillingar og
beygjanlegur silíkonhaus vinna ötullega
að því að bæta, hressa og kæta. Ekki
láta stærðina blekkja því krafturinn er
kynngimagnaður.
Sogdrottning
Drottning sogtækjanna er Queen Pulse
Wave-settið frá Zalo sem fæst hjá hermosa.
is. Um er að ræða titrara sem hægt er að
breyta í sogtæki – það besta úr báðum
heimum. Hægt er að tengja tækið við
síma og láta það titra eftir tónlist eða láta
makann hafa völdin.
Typpahringur með titringi
Hjá bæði blush.is og tantra.is er
endurhlaðanlegi typpahringurinn frá
Winni Svakom gríðarvinsæll en hann er
kraftmikill, með titringi og sérstaklega
hannaður fyrir pör. Typpahringurinn
auðveldar karlmönnum að halda stinningu
en getur einnig hentað sem egg. Þessi
kemur með fjarstýringu – en ekki hvað?
Þrennutilboð
Hið byltingarkennda Zalo Hero-tæki hjá
hermosa.is er búið þeim eiginleika að
„tungan“ á tækinu getur hreyft sig fram
og til baka allt að 75 sinnum á sekúndu og
líkir því eftir munnmökum. En bíðið, það
er meira! Tækið er líka hægt að nota sem
titrara eða egg.
Fyrir byrjendur
Eins og áður segir eru gervilimir sem kona
festir á sig að slá í gegn hjá landanum. Þeir
sem eru að stíga sín fyrstu skref í þeim
efnum geta keypt byrjendasett hjá hermosa.
is og unnið sig upp í keppnistýpur. n