Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.2020, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.2020, Page 37
DV 24. APRÍL 2020 S ólveig Anna Jónsdóttir, formaður Efling-ar og aðgerðasinni, er fædd í Tvíbura-merkinu. Lúna Fírenza, spákona og tarot- meistari DV, lagði spilin fyrir hana. Manni leiðist sjaldan í kringum fólk sem fætt er í Tvíburamerkinu. Þu eru opin, gáfuð, forvitin og með fjölbreyttan karakter. Þau eiga mjög auðvelt með að­ lagast aðstæðum en helsti ókostur þeirra er að þau eiga það til að vera hvatvís og óákveðin. Tía í mynt Lykilorð: Fjárhagslegt öryggi, fjölskylda, langtíma­ árangur, framlag Fyrsta spil þitt er mikið happaspil. Táknrænt fyrir að uppskera eftir langa og erfiða vinnu. Spilið stendur helst fyrir fjárhagslegt öryggi. Leiðin hingað hefur verið löng og ströng og því er það mikill léttir að þetta spil birtist þér. Markmið þín hafa tekið langan tíma að verða að veruleika en nú sérðu loks hreyfingu sem mun tyggja öryggi hjá mörgum fjölskyldum. Stafadrottning Lykilorð: Hugrekki, sjálfstraust, sjálfstæði, ákveðni Þetta spil helst vel í hendur við fyrsta spilið þitt og staðfestir þessa uppskeru sem komin er á kortin. Oft þarf hugrekki til þess að taka erfiðar ákvarðanir og það er einmitt það sem þú þarft að gera til þess að ná þínu fram. Spilið hvetur þig til þess að fara meira inn í auðmýktina. Oft er maður fastur í ákveðnum ham þegar maður hefur staðið lengi í barningi. En nú mátt þú leggja spjótin til hliðar, sigurinn er þinn, nú taka við friðsælli samningaviðræður. Stafaás Lykilorð: Innblástur, ný tækifæri, vöxtur, möguleikar Þetta er nú meiri jákvæðniþrennan hjá þér, það er allt á uppleið! Ferskur blær umlykur þig og með honum koma nýja hugmyndir, innblástur og tækifæri. Virki- lega góður tími til þess að setja sér ný markmið! Skilaboð frá spákonunni Til hamingju með þessa gleðispá, það er allt að gerast hjá þér. Ég mæli með að þú farir að halda dagbók það er bæði róandi og hjálpar til við að halda utan um ný markmið. STJÖRNU SPÁLESIÐ Í TAROT Sólveig Anna Jónsdóttir Svona eiga þau saman Hrútur 21.03. – 19.04. Þetta er einstaklega hressandi vika fyrir Hrútinn. Það þarf ekki mikið meira en smá sól og búbbl ur í glas til þess að gleðja þig og allt þetta vonleysi frá síðustu viku gufar upp! Með þessari nýfundnu gleðiorku ertu farin/n að huga að fjárfestingartækifærum. Nú er góður tími til að kanna það frekar… Naut 20.04. – 20.05. Hrikalega ertu orðheppin/n þessa dagana! Þú ert virkilega ánægð/ur með þinn eigin félagsskap sem er fínt þar sem við erum á lokaspretti einverunnar. Þú hugsar jafnvel: „Ég ætti að skrifa bók eða byrja með podkast? Hrikalega er ég skemmtileg/ur!“ Njóttu þín í þessu augnabliki. Sjálfsást er góð! Tvíburar 21.05. – 21.06. Má ég giftast vinnunni minni? Hvað ert þú að gera? Á ég að hjálpa þér með það? Tvíburanum leiðist þessa vikuna og finnur fyrir smá eirðarleysi sem gæti orðið að einhverju skemmtilegu ævintýri því hann ætlar að finna sér eitt- hvað að gera… Hvað sem það nú verður. Krabbi 22.06. – 22.07. Krabbinn er farinn að hafa það ooof notalegt. Hann er farinn að venjast jogginggallanum og spyr sig hvort hann þurfi nokkurn tíma að klæða sig aftur upp á fyrir eitthvað! Nú er mælt með því að segja upp Netflix-áskriftinni og koma sér út úr húsi! Koma svo, út með þig! Ljón 23.07. – 22.08. Jesss! Þú er komin/n í Jane Fonda gírinn þessa vikuna og ert búin/n að finna þér gott æfingasmáforrit og jafnvel mana vin til þess að taka þátt í því með þér. Planka- keppni. Hver er memm? Ef þú átt vin í Krabbamerkinu, þá gæti hann haft gott af því að fá smá af þínu peppi. Meyja 23.08. – 22.09. Þú þráir fátt meira en að komast í frí og áttir jafnvel að vera þar núna! Stjörnurnar hvetja þig til að byrja að læra nýtt tungumál fyrir fríið á næsta ári eða skipuleggja ferðina hringinn í kringum landið. Bara það að plana eitthvert ferða- lag mun veita þér hugarró. Vog 23.09. – 22.10. Þú átt það til að gefa þig alla/n í hlutina þannig að þú verður bitur þegar þú færð það ekki til baka. Passaðu bara að hugsa þig tvisvar um áður en þú talar svo þú sjáir ekki eftir neinu á þessu tímabundna sjálfsvorkunnartíma- bili. Minntu þig á það sem þú ert þakklát/ur fyrir. Sporðdreki 23.10. – 21.11. Þessa vikuna færðu loks svar við þessum vangaveltum. Hvert er þetta samband/samstarf að fara og hvernig mun það þróast? Loks kemur þú orðum að því og finnur gott tækifæri til að ræða þessi mál. Þungri byrði er af þér létt sem mun auðvelda þér að plana næstu skref... Bogmaður 22.11. – 21.12. Nú er tími fyrir skipulag. Þú nennir ekki að sóa tíma þínum því markmið þín og dugnaður eru of mikilvæg. Gott skipulagskerfi gæti hjálpað þér um þessar mundir og svo muntu skrifa undir samninga sem mun létta töluvert á álaginu. Áfram þú, kæri Bogmaður! Steingeit 22.12. – 19.01. „Lights, camera, action!” Þú ert tilbúin/n fyrir kvikmyndakrúið. En hvar eru þau? Kannski er núna bara fínn tími til þess að halda áfram með Instagram-innslögin eða jafnvel stofna IGTV því þú finnur fyrir þinni innri Kardashian og vilt að heimurinn taki eftir því! Vatnsberi 20.01. – 18.02. Þú gleymir sjálfri/sjálfum þér í Pinterest-möppum þessa vikuna og langar að föndra allan heiminn. „Nailed it“ kakan gæti jafnvel vakið hlátrasköll sem bjargað gætu vikunni. Láttu þinn innri Picasso taka völdin og endilega deildu útkomunni með okkur öllum. Fiskur 19.02. – 20.03. Þú ert heldur betur að taka til í lífi þínu þessa dagana og nýir og spennandi tímar eru fram undan! Tiltektar-tilhlökkunin er svo mikil að þú selur næstum af þér flíkurnar, en safnarinn sem þú ert veit líka að með hverri spjör sem þú losar þig við er tækifæri til að kaupa eitthvað nýtt í staðinn! Nú er góður tími til að fjárfesta í gróðurhúsi. Vikan 01.05. – 07.05. Nú taka við friðsælli samningaviðræður Nýjasta stjörnupar Íslands MYND/ERNIR stjörnurnarSPÁÐ Í Tónlistarmaðurinn Bjarni Lárus Hall og fjölmiðlakonan Sunna Sæmundsdóttir eru nýjasta stjörnupar Íslands. Bjarni, eða Baddi, er þekktastur fyrir að vera söngv- ari hljómsveitarinnar Jeff Who?. Sunna er rísandi stjarna í fjölmiðlaheiminum og ættu flestir landsmenn að kannast við hana úr kvöldfréttum Stöðvar 2. DV lék forvitni á að vita hvernig Baddi og Sunna eiga saman ef litið er til stjörnumerkj- anna. Baddi er Meyja og Sunna er Sporðdreki. Meyjan og Sporðdrekinn eiga bæði erfitt með að treysta öðrum og hafa loksins einhvern til að ræða við um þessi mál. Annað þeirra óttast svik meira en allt, en hitt ber djúpt hatur til svikara. Þau vilja aldrei bregðast hinum aðil- anum. Samskipti eru styrkleiki parsins. Þau ná mjög vel saman vitsmunalega og halda hvort öðru á tánum. Meyjan og Sporðdrekinn eru reiðubúin að ganga alla leið saman og skuld- binda sig hvort öðru. Þetta er mjög áhugavert par þegar kemur að kynlífi. Meyjan er feimin í rúminu meðan Sporðdrekinn gengur nánast um eins og kynlífið uppmálað. n Bjarni Lárus Hall 18. september 1979 Meyja n Tryggur n Ljúfur n Vinnusamur n Hagsýnn n Feiminn n Ofurgagnrýninn Sunna Sæmundsdóttir 3. nóvember 1987 Sporðdreki n Úrræðagóð n Hugrökk n Ástríðufull n Þrjósk n Afbrýðisöm n Dularfull STJÖRNUFRÉTTIR 37

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.