Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.2020, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.2020, Blaðsíða 13
M itt á milli Stokkhólms og Gautaborgar, í frið-sælum skógi við vatn, stendur meðferðarheimilið þar sem Dóra hefur dvalið síðustu þrjá mánuði. Þangað hafa fjölmargir Ís- lendingar leitað í gegnum tíð- ina og öðlast bata. Og Dóra er ekki eini Íslendingurinn sem dvelur þar þessa stundina. Ólíkt nær öllum Íslending- um hefur Covid-19 faraldur- inn nánast farið fram hjá Dóru. „Ég er eiginlega búin að missa af þessu öllu. Þessi vírus hefur eiginlega ekki breytt neinu hjá mér hérna, ég er bara að gera það sama og áður og það er sama dagskrá í gangi. Ég er búin að vera að tala við vini mína á Zoom og ég er ekkert að tengja við það sem þau eru að upplifa.“ Fjarveran frá syninum erfið Hún fór fyrst í meðferð fyrir einu og hálfu ári. „Ég var búin að fara í fleiri en eina meðferð heima á Íslandi. Ég þurfti að prófa eitthvað annað, ég þurfti að finna aðra lausn,“ segir Dóra. Langur biðlisti er inn á Vog og það blasti við Dóru að hún þyrfti langtímameðferð. „Ég var heppin að komast fljótt inn hérna. Ég er afskaplega þakk- lát fyrir að hafa fengið þetta tækifæri, að koma hingað út.“ Dóra tekur fram að hún hafi ekkert út á meðferðarúrræðin á Íslandi að setja. Sjálf hefur hún bæði reynslu af Vogi og Vík og ber starfinu þar og starfsfólkinu vel söguna. „En það er auðvitað hræðilegt að það skuli vera svona löng bið í meðferð heima á Íslandi. Það er í rauninni harmleikur. Sér- staklega eins og ástandið er núna í samfélaginu, margar fjölskyldur innilokaðar heima hjá sér og víða er neysla í gangi. Það er hræðileg til- hugsun.“ Meðferðin í Svíþjóð er lang- tímameðferð, þar sem farið er djúpt ofan í 12 spora kerfið. „Ráðgjafarnir hérna eru stór- kostlegir. Umhverfið er ótrú- lega fallegt og það hjálpar líka til að vera í burtu frá öllu heima. Kúpla sig út.“ Á meðan Dóra er í Svíþjóð er tíu ára sonur hennar heima á Íslandi. Það að vera í burtu frá barninu sínu í langan tíma er nákvæmlega jafn erfitt og það hljómar. Planið var að sonur Dóru og barnsfaðir myndu heimsækja hana út til Svíþjóðar í maí, í kringum af- mæli sonarins. „Hann var auðvitað svo spenntur, og ég líka. Þegar ég sagði honum að hann myndi líklega þurfa að fara í sóttkví í tvær vikur þegar hann kæmi heim þá sagði hann að það væri allt í lagi, það væri sko alveg þess virði.“ Í dag lítur hins vegar út fyrir að það verði ekkert úr heimsókn þeirra feðga. Mæðg- inin þurfa að láta sér nægja að hittast í gegnum internetið. „Hann les til dæmis alltaf fyrir mig heimalesturinn á kvöldin. Þannig að ég næ að taka þátt í lífinu hans að ein- hverju leyti. Ég hef stundum fengið smá samviskubit yfir því að skilja barnsföður minn einan eftir með strákinn okkar á meðan það er heims- faraldur í gangi. Þeir eru reyndar báðir alveg ógeðs- lega fyndnir og skemmtilegir. Ég veit að það er búið að vera gaman hjá þeim, þótt það hafi líka tekið á. En svo eigum við líka bæði góða að.“ Barnsfaðir Dóru er Jörund- ur Ragnarsson leikari. Þau kynntust í Leiklistarskólanum á sínum tíma og fóru saman í gegnum námið. Þau skildu fyrir sex árum og eru í dag mjög góðir vinir. „Við höfum unnið rosalega mikið saman í gegnum tíðina. Við erum ótrú- lega góðir vinnufélagar,“ segir Dóra og á þar bæði við leik- listina og foreldrahlutverkið. Hún telur ekki útilokað að sonurinn muni feta í fótspor þeirra. „Hann er svona lítill skemmtikraftur og hann hef- ur stundum talað um það að vilja verða grínisti. Á tímabili fannst honum það reyndar alveg hræðilegt hlutskipti að vera leikarabarn og eiga for- eldra sem voru alltaf að vinna á kvöldin. Hann var sko ekki sáttur við að við værum bara að leika okkur eitthvað í leik- húsinu á meðan hann væri í pössun heima,“ segir Dóra. Í dag lítur sonurinn starf for- eldranna öðrum augum, kem- ur oftast með þeim í leikhúsið og fylgist spenntur með því sem þar fer fram. Lék bara hórur Leiklistarbransinn á Íslandi er hark. Samkeppnin er mikil og það eru ekki allir sem lifa af. Dóra er ein þeirra sem hafa náð að lifa á listinni. Nætur- vaktin, Hamarinn, Mið-Ísland, Steypustöðin, Undir trénu og Ófærð eru dæmi um þau kvik- mynda- og sjónvarpsverkefni sem Dóra hefur leikið í undan- farin ár. Að ógleymdu Ára- móta skaupinu 2017 og 2019 þar sem hún var jafnframt yfirhandritshöfundur í bæði skiptin. Fyrsta aðalhlutverkið á sviði eftir útskrift var ólétt unglingsstúlka úr Garðabæn- um, í söngleiknum Leg eftir Hugleik Dagsson. Síðan hafa hlutverkin orðið fleiri, bæði í Þjóðleikhúsinu og Borgar- leikhúsinu. „Þegar ég útskrifaðist fékk ég strax hlutverk í Þjóðleik- húsinu en ég var samt að gera eigin verkefni á fullu sam- hliða því, af því að ég þurfti að fá útrás fyrir framkvæmda- og sköpunarþörfina. En auð- vitað getur þetta verið erfitt, að lifa eingöngu af listinni. Ég er mjög heppin.“ Talið berst að leiklistar- bransanum og #metoo-hreyf- ingunni. Dóra segist svo sannarlega hafa orðið vör við kynferðislega áreitni og mis- beitingu innan leikhússins. „Á sínum tíma, þegar ég var að klára Leiklistarskólann, þá rann upp fyrir mér að ég hafði nánast bara fengið að leika hórur. Ég var meira og minna á nærfötunum allan tímann sem ég var í Leiklistarskól- anum. Þetta var auðvitað löngu áður en #metoo-hreyf- ingin byrjaði og öll umræðan í kringum það. Þarna áttaði ég mig á hvað ég hafði verið blind fyrir þessu og hvað þetta hefði verið skakkt. Ég hélt án djóks Ég var meira og minna á nærfötunum allan tímann sem ég var í Leiklistarskól- anum. Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is Þess dagana þarf Dóra að láta sér nægja að hitta son sinn í gegnum tölvuforrit. Aðskilnaðurinn er ekki auðveldur. MYND/AÐSEND FRÉTTIR 13DV 1. MAÍ 2020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.