Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.2020, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.2020, Blaðsíða 10
1. MAÍ 2020 DV10 FRÉTTIR samþykkja áætlunina. Ég get þó sagt þér að þjóðkirkjan er ekki að auka við framlag til markaðsmála þetta árið miðað við undanfarin ár. Þegar fjár- hagsáætlun kirkjunnar hefur fengið umfjöllun á þinginu og verið samþykkt verða upplýs- ingar um hana settar á heima- síðu kirkjunnar, kirkjan.is,“ segir Sigurbjörg. Hún segir að stefna kirkj- unnar sé að vera með opin fjármál og að fólk geti í ná- inni framtíð farið á kirkjan.is og skoðað fjárhagsáætlunina, niður í einstaka liði, og séð þar til hliðar tikkandi rauntölur. „Stefnan er að þetta verði klárað í sumar og verði sem sýnilegast.“ Í síðustu viku sendi Biskups- stofa öllum á Íslandi sem kom- ast á fermingaraldur á næsta ári hvítan bol með merki þjóðkirkjunnar, svokallaðan „skírnarkjólsbol“. Alls eru 4.100 ungmenni á Íslandi fædd árið 2007 og fengu þau bolinn sendan. Á vefsíðunni ferm- ing. is segir: „Þó svo veiruinn- rás hafi sett fermingar vors- ins í kransaköku þá sjáum við glitta í fermingarlandið,“ segir í tilkynningunni. „Þá er ekki seinna vænna að hefja fermingarundurbúning ársins 2021, barna fædd 2007. Það er sumsé ekki til fermingar- undirbúningur. En, það er til fermingarundurbúningur. Ok, boomer!“ Á kirkjan.is er fólk hvatt til að taka á móti sumrinu í þessum litskrúðuga bol með orðunum: „Svo hlæjum við saman inn í sumarið í þessari litabombu! Ef það var ein- hvern tímann tími til þess manni minn!“ Skráningum fer hratt fækkandi Í umfjöllun DV seint á síðasta ári kom fram að rúmlega þriðjungur landsmanna er ekki skráður í þjóðkirkjuna, eða 128.350 manns. Fram kom að meðlimum þjóðkirkjunnar hefði fækkað um 988 það sem af var árinu. Það jafngildir því að þrír segi sig úr henni á degi hverjum. Fram kom að hlutfall lands- manna í þjóðkirkjunni hefði aldrei verið lægra en um þessar mundir. Frá árinu 2009 hefur meðlimum þjóð- kirkjunnar fækkað um rúm- lega 20 þúsund manns, en á meðan hefur landsmönnum fjölgað hratt, alls um 36 þús- und manns, sem virðist ekki skila sér til þjóðkirkjunnar. Alls voru 92,2 prósent lands- manna í þjóðkirkjunni árið 1992 en hlutfallið nú er um 65 prósent. Vildu ekki gera upp á milli ungmennanna Í samtali við DV segist Pétur ekki hafa orðið var við gagn- rýni á bolagjafirnar. Almennt virðist sem fólk hafi tekið vel í þessa nýbreytni. „Svona hallærislega töff bolir virðast hafa komið fólki skemmti- lega á óvart. Okkur langaði að prófa aðrar leiðir núna í ár, í staðinn fyrir að senda staðl- aðan bækling sem fer kannski bara beint í ruslið.“ Hann tekur fram að kirkjan sé ekki að þrýsta á neinn, eða þvinga skoðunum eða hug- myndafræði upp á ungmennin. „Fyrst og fremst erum við að minna á að fermingarfræðsla snýst um að rækta með sér góð gildi. Við vildum ekki gera upp á milli, gefa sumum bol en öðrum ekki. Þess vegna fengu allir bol, hvort sem þeir ætla sér að fermast eða ekki.“ Aug- lýsingastofan Aldeilis kom að bolagerðinni, og var einnig á bak við fyrrnefna auglýsingu kirkjunnar í Morgunblaðinu. „Ég hef fengið ofboðslega góð viðbrögð við þessari aug- lýsingu. Ég fann að fólki þótti vænt um þetta, þó að þetta væri óvænt,“ segir Pétur og bætir við að engin önnur stofn- un hafi lagt upp með að senda landsmönnum sumarkveðju með þessum hætti. „Þetta er fyrst og fremst kirkja þjóðar- innar sem breiðir þarna út faðminn á erfiðum tímum og segir: „Gleðilegt sumar.“ Þetta er samtal við þjóðina.“ Þá bendir Pétur á að það þurfi ekki að vera af slæmum toga að þjóðkirkjan sinni ímyndarmálum. „Ímyndar- mál eru alls ekki slæm. Með því að sinna ímyndarmálum vill kirkjan vinna sér inn trúnað og traust hjá þjóðinni og minna á að kirkjan er til staðar.“ Segir gríðarlega eftirspurn eftir sálgæslu presta Pétur bendir á að þjóðkirkjan sé stór stofnun í eigu þjóðar- innar. „Þetta er kirkja fólks- ins og það er bara þannig að það eru alls konar verkefni sem þarf að sinna sem kosta pening.“ Hann segir þjóð- kirkjuna ekki eingöngu gegna hlutverki gagnvart þeim sem eru skráðir í trúfélagið, heldur allri þjóðinni. Til að mynda séu störf presta á sviði sálgæslu mun umfangsmeiri en skráning í kirkjuna gefur til kynna. „Í einu prófasts- dæmi voru sautján eða átján hundruð samtalsviðtöl fyrstu þrjár vikurnar eftir að Covid hófst. Eftirspurnin segir okk- ur að það er mikil þörf fyrir þessa þjónustu. Það skiptir svo miklu máli í þessum við- kvæmu aðstæðum að það sé fagmenntað fólk til staðar, eins og prestar. Og það sem er einstakt við kirkjuna er að þessi þjónusta er endurgjalds- laus.“ Agnes brást hratt við Starf sunnudagaskóla hefur verið lagt niður í einhverjum af kirkjum höfuðborgarsvæð- isins vegna dræmrar aðsókn- ar, ótengt Covid-19 og ríkjandi samkomubanni. Má þar nefna Háteigskirkju. Aðspurður um eftirspurn eftir annarri þjón- ustu á borð við sunnudaga- skóla segir Pétur að sunnu- dagaskólar séu á undanhaldi í sumum hverfum borgarinnar en í öðrum hverfum sé starf- ið hins vegar í mikilli sókn. Nefnir hann Lindakirkju og Vídalínskirkju sem dæmi. „Það er ljóst að sunnudaga- skólinn hentar ákveðnum hópi, en ekki öðrum. Það má heldur ekki gleyma að nú í dag er komið svo mikið fram- boð af afþreyingu sem sunnu- dagaskólar þurfa að keppa við. Áður var ekki svona fjöl- breytt úrval af afþreyingu. Ég man til dæmis eftir því þegar Stöð 2 byrjaði á sínum tíma að sýna barnaefni á sunnudagsmorgnum. Þá varð til samkeppni við sunnudaga- skólann.“ Aðspurður um mál sem hafa komið upp undanfarin misseri, nú síðast mál Skírnis Garðarssonar, segir Pétur að biskup hafi brugðist hratt og rétt við. „Það er auð- vitað bara staðreynd að fólk hefur sagt sig úr kirkjunni undanfarin ár, og það kemur í bylgjum, eins og kringum það þegar umdeild mál koma upp. En eins og ég sé það þá er fólk ekki að segja skilið við stofnunina, það er ekki að segja skilið við trúna, það sem kirkjan stendur fyrir.“ Þá segir hann kirkjuna svo sannarlega ekki víkja sér und- an harðri gagnrýni og að hún sé að sjálfsögðu ekki undan- skilin aðhaldi, ekki frekar en aðrar stofnanir. Hann segir kirkjuna ekki hafa verið und- anskilda þegar kreppir að. „Hins vegar er það þann- ig að þegar það kreppir að, þegar það er álag á þjóðinni, þá þenur kirkjan sig út. Það hefur sýnt sig undanfarnar vikur og mun líka sýna sig þegar við þurfum að takast á við afleiðingarnar af Covid- faraldrinum.“ n Svo hlæjum við saman inn í sum- arið í þessari lita- bombu! Ef það var einhvern tím- ann tími til þess manni minn! Listakonan Lára Garðarsdóttir á heiðurinn af teiknaðri auglýsingu sem birtist í Morgunblaðinu á sumar- daginn fyrsta. MYND/SKJÁSKOT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.