Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2020, Síða 2
Smábörnin á Alþingi
S varthöfði átti ekki orð, ekki eitt aukatekið orð, eftir þingfund á þriðju
dag þar sem alþingismenn
beruðu, fyrir allra augum,
þann sandkassaleik sem fer
fram á „hæstvirtu“ Alþingi.
Svo virðist sem einhugur hafi
ríkt í velferðarnefnd um að
kippa hlutabótaleiðinni í liðinn
svo ekki væri lengur hægt að
misnota hana með þeim hætti
sem frá hefur verið greint
undanfarnar vikur.
Hins vegar ríkti ekki ein
hugur um með hvaða hætti
lagfæringarnar færu fram.
Stjórnarmeirihlutinn í nefnd
inni reyndi að dulbúa þetta
ósætti í það form að vel þyrfti
að vanda til verka með þessar
lagfæringar og því væri rétt
að láta ráðherra um að leggja
fram breytingarnar sem
gætu þá ekki komið til fram
kvæmda fyrr en eftir þrjár
vikur.
Minnihlutinn, þeirra á með
al formaður velferðarnefndar,
vildi hins vegar ráðast í breyt
ingarnar strax, enda væru
miklir hagsmunir í húfi. Fyrir
þessar breytinga var tilbúið
frumvarp, búið að bera það
undir sérfræðinga og því taldi
minnihlutinn ekki til setunnar
boðið og best að leggja þetta
umsvifalaust fram fyrir þing
ið, enda fordæmi fyrir því að
nefndir þingsins komi slíkum
breytingum í gegn.
Þarna sá minnihlutinn að
sjálfsögðu tækifæri til að fá
nafn sitt við þessar breyting
ar, sem væri væn fjöður í hatt
inn, og meirihlutinn að sjálf
sögðu ekki tilbúinn að gefa
þá fjöður eftir, þegjandi og
hljóðalaust.
Svarthöfði skal setja þetta
fram á einfaldari hátt. Allir
sammála um að breytingarn
ar þurfi að gera og gera þær
nokkuð hratt. Hins vegar vilja
allir fá heiðurinn af því.
Forseti Alþingis, Steingrím
ur J. Sigfússon, tók svo á sig
hlutverk leikskólakennarans
(eða reyndi það) í þessum að
stæðum og skammaði með
limi velferðarnefndar fyrir að
opinbera meint trúnaðarmál
frá lokuðum nefndarfundi á
Alþingi með þessum hætti.
„Skamm, skamm, svona ger
ir mað ur ekki. Maður ræðir
svona sín á milli en ekki á
Al þingi,“ sagði hann, nánast
orð rétt, þó að Svarthöfði leyfi
sér smá umorðun. En að sjálf
sögðu beindi Steingrímur orð
um sínum helst til minnihlut
ans. Enda honum ekki stætt á
að gagnrýna eigin liðsmenn.
Djöfull getur þessi sand
kassa leikur verið þreytandi
fyrir fólk eins og Svarthöfða.
Til hvers yfir höfuð að leyfa
minnihluta á þingi ef það er
ekki séns í helvíti að hann
komi nokkrum málum í gegn,
hversu góð sem þau eru?
Virðist þarna engu skipta að
minnihlutinn er kominn á þing
með viss at kvæði að baki sér.
Nei, það virðist vera óskrifuð
regla að minni hlutann skuli í
öllum tilvikum skilja út und
an, eða að minnsta kosti leyfa
honum ekki að ver’ann.
Alþingi er bara uppfullt af
jakkafataklæddum leikskóla
börnum, sem rífast um hver
fær að vera fyrstur og hver
fær að vaka lengst. Öllu máli
skiptir hver fær að skrifa
nafnið sitt fyrstur á eitthvert
jakkafataklætt blað. Á meðan
er hlutabótaleiðin enn gölluð,
með allri þeirri áhættu sem
því fylgir. n
SVART HÖFÐI
Aðalnúmer: 550 5060
Auglýsingar: 550 5070
Ritstjórn: 550 5070
FRÉTTA SKOT
550 5070
abending@dv.is
Tíkin í teygjubuxunum
A
f hverju er svona stutt í gagnrýnina hjá
manni? Nú tala ég bara fyrir sjálfa mig
og tel ég mig ágætis manneskju svona
almennt. Eftir að hafa lesið viðtalið við
Gurrý og rifjað upp þá óvægnu gagn
rýni sem hún varð fyrir fór ég að hugsa
til lokaritgerðarinnar minnar í verkefnastjórnun sem
bar heitið Kynbundinn samskiptastíll á vinnustað,
hvað er í gangi?
Þar tók ég fyrir vinnustaðamenningu og mis
munandi samskiptastíl karla og kvenna. Í ljós kom
samkvæmt mínum rannsóknum að konur eru gjarnan
fljótari að grípa til munnlegra árása. Ástæður þess
kunna að vera margar og ef litið er til þróunarsögunn
ar þurftu konur að gera hvað þær gátu til að halda sér
á lífi og hugsa um börnin sín og gátu því síður rokið út
með sverð og höggvið mann og annan. Karlarnir voru
meira í því og skiluðu sér seint og illa og því lá það á
herðum konunnar að halda sér heima og – á
lífi.
Þessi lenska að leyfa sér að tala aðra
niður, mun oftar með því móti sem
viðkomandi myndi aldrei gera beint
við manneskjuna og meinar þar af
leiðandi ekki fyllilega – nær einnig
inn á vinnustaðinn og hefur áhrif á
framgöngu okkar kvenna þar. Kyn
bundinn samskiptastíll mótast frá
fyrsta degi barns. Konur læra að
fá útrás fyrir óánægju sína með
öðrum hætti en karlmenn sem
til lengdar skilar þeim ef til
vill hljóðlátari leiðum til að
útrýma keppinautum. Stóra
vandamálið virðist þó vera,
samkvæmt mínum fyrri
athugunum, að konur
eyða of mikilli orku í að
keppa sín á milli og senda
ósýnilegar sprengjur.
Þær gefa því eftir fjölda
tækifæra með því að ein
blína um of á kynsystur sínar
þegar verið er að keppa um störf.
Tökum dæmi. Það eru fimm sæti
í framkvæmdastjórn. Í öllum
sætum nema einu eru konur. Af
hverju eru konur líklegri til að keppa um „konusætið“
og gefa eftir hin fjögur? Staðreyndin er nefnilega
sú að öll störfin eru í boði, ekki síst nú þegar fyrir
tækjaheimurinn kallar eftir meiri tilfinningagreind
og kvenlægum kostum í rekstri fyrirtækja. Því er að
mínu mati mikilvægt að stækka samkeppnismengið
og að konur líti til kynsystra sinna sem samherja. Það
hefur gagnast körlunum vel. Nú er komið að okkur.
Sheryl Sandberg, framkvæmdastjóri Facebook, orðar
þetta vel þegar hún segir að það verði allir að venjast
kvenkyns stjórnendum, ekki síst þeir sjálfir! Og til
þess þurfa samskipti milli kynjanna á vinnustað að
breytast en ekki síður milli kvenna. n
UPPÁHALDS
Eva Einarsdóttir kynningar
stjóri hefur verið grænkeri
til margra ára. Þetta eru
fimm uppáhaldsveitinga
staðir hennar á Íslandi.
„Það er svo gaman að sjá
hvernig flóran í matar-
menningu hefur dafnað síð-
ustu ár. Og sem grænkeri til
margra ára sé ég að úrvalið
hefur aukist til muna, ekki
bara hnetusteik og salat-
blað í boði. Það er erfitt að
velja en hér eru uppáhalds.
Verð líka að hrósa þeim
fyrir flotta þjónustu og að-
lögun á Covid-tímum.“
1 Coocoo’s Nest
Coocoo’s Nest er í miklu
uppáhaldi, hvort sem það er
hádegisdeit með vinkonu,
bröns um helgar með fjöl
skyldu eða drykkur og pitsa
á virkum degi með eigin
manninum. Og þau eru með
besta súrdeigsbrauðið, það
er bara þannig. Og svo kaupi
ég líka gjafir og blóm þar.
2 Sumac
Sumac er svona meira spari
í mínum huga. Hentar bæði
fyrir rómantískt deit og til
að fara með góðum vinum.
Frábær þjónusta og dásam
legur grænkeramatur.
3 Mathallirnar
Ég elska mathallirnar á
Granda og á Hlemmi og
verð þá sérstaklega að nefna
staðinn Skál sem er með frá
bæra rétti fyrir grænkera.
Get ekki beðið eftir að þar
verði opnað aftur.
4 Vínstúkan
Fyrir vinkonuhitting elska
ég Vínstúkuna, æðisleg nátt
úruvín, fáir en góðir réttir
og stemningin skemmtileg
en um leið heimilisleg.
5 Matbar
Ég hef oftar en einu sinni
farið á Matbar og þá farið í
svona „ferð“, fengið nokkra
ólíka rétti og þá hefur verið
lítið mál að fá alla réttina
vegan og svo er hverjum
rétti fylgt úr hlaði, oft frá
sjálfum kokkinum sem
kemur og spjallar. Á undan
eða á eftir er nauðsynlegt
að fá sér drykk á Röntgen,
klikkaðir kokteilar og besta
stemningin.
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir
RITSTJÓRI: Þorbjörg Marinósdóttir, tobba@dv.is FRÉTTASTJÓRI: Erla Hlynsdóttir, erlahlyns@dv.is AUGLÝSINGAUMSJÓN: Ruth Bergsdóttir, ruth@dv.is
PRENTUN: Torg prentfélag DREIFING: Póstdreifing | DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. DV, Kalkofnsvegi 2, 101 Reykjavík Sími: 550 7000.
Þetta er stytta af Ingibjörgu H. Bjarnason, fyrstu konunni
sem tók sæti á Alþingi. Hún eyddi líklega ekki miklum tíma
í að baknaga samferðakonur sínar. MYND/STEFÁN
VEITINGASTAÐIR
2 EYJAN 15. MAÍ 2020 DV