Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2020, Blaðsíða 4
1Baráttan um Bessastaði – Nýr forsetaframbjóðandi kominn
fram Arngrímur Friðrik Pálmason
búfræðingur tilkynnti framboð sitt til
embættis forseta Íslands.
2 Nýjar upplýsinga í máli Stefáns sem er ákærður fyrir morð Í
lögregluskýrslu segist vitni hafa heyrt
Stefán Phillip Gíslason rífast við hinn
látna áður en skothvellur heyrðist.
3 Furðulegasta beiðnin sem hún hefur fengið frá karlmanni Fyrir-
sætan Allison Parker var beðin um að
selja hægðir sínar.
4 Myndbandsupptaka er af-gerandi sönnunargagn í máli
Tom Hagen Upptaka úr eftirlits-
myndavél er mikilvægt sönnunar-
gagn í máli norsku lögreglunnar gegn
Tom Hagen.
5 Vikan á Instagram: „Þið hafið ekki séð mig nakta.“ Vinsæli
fasti liður DV, Vikan á Instagram,
vakti mikla athygli í vikunni.
6 Það má gera grín að öllu Leik-konan Dóra Jóhannsdóttir deildi
í einlægu viðtali baráttu sinni við
bakkus.
7 Elliði „milljónasjalli“ birtir launaseðil sinn til leiðréttingar
– „Er með góð laun og fel það ekki.“
Elliði Vignisson, sveitarstjóri í Ölfusi,
deildi launaseðlinum sínum og sagði
ýkjusögur ganga um meint ofurlaun
hans.
8 Gunnar Rúnar rekinn frá Hafnar-firði eftir þrjá daga – Enn í
afplánun og fær ekki vinnu Gunnar
Rúnar Sigurþórsson var rekinn úr
vinnu eftir aðeins þrjá daga.
9 Sakamál: Hélt að hann hefði unnið lottó þegar hann kynnt-
ist henni. Sakamál DV rifjuðu upp
hrottalegt morð á Travis Alexander í
Bandaríkjunum 2008.
10 Guðmundur metinn hæfastur umsækjenda Guðmundur
Jónsson, fyrrverandi forstöðumaður
Byrgisins, hefur rekið tjaldsvæðið á
Borg síðan 2017.
MEST LESIÐ
Á DV Í VIKUNNI Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST...
Ástralía á Íslandi
Ástralir hafa óskað eftir því að Eurovision-keppnin vinsæla
verði haldin á Íslandi, fari svo að þeir vinni keppnina. Bæði
mennta- og menningarmálaráðherra og borgarstjóri Reykja-
víkur hafa tekið vel í hugmyndina. Ástralir myndu að sjálf-
sögðu borga brúsann.
England á Íslandi
Til skoðunar hefur verið hvort ensk úrvalsdeildarlið í knatt-
spyrnu komi hingað til lands til að stunda æfingar á næstu
vikum. Helsta ástæða þessara viðræðna er árangurinn sem
Ísland hefur náð í baráttunni við COVID-19. Engin formleg
beiðni hefur borist þegar samantekt þessi er skrifuð.
Enn fleiri sækjast eftir Bessastöðum
Tveir forsetaframbjóðendur til viðbótar hafa bæst í hóp þeirra
sem sækjast eftir að steypa sitjandi forseta, Guðna Th. Jó-
hannessyni, af stóli. Það eru þeir Kristján Örn Elíasson og
Magnús Ingiberg Jónsson. Fyrir höfðu Guðni Th. Jóhannes-
son, forseti Íslands, Axel Pétur Axelsson, Arngrímur Friðrik
Pálmason og Guðmundur Franklín Jónsson tilkynnt að þeir
sæktust eftir embættinu.
Icelandair
Flugfélagið Icelandair stefnir í þrot. Félagið hefur greint frá
því að það skipti sköpum að það takist að gera félagið sam-
keppnishæft á alþjóðagrundvelli en slíkt náist ekki nema helstu
þrjár starfsstéttir þess, flugliðar, flugmenn og flugþjónar, sam-
þykki kjaraskerðingu. Flugliðar hafa skrifað undir samning
sem verið er að bera undir félagsmenn, flugmenn telja skammt
í land í samningaviðræðum en flugfreyjur hafa hafnað því að
samþykkja skerðingar. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair,
stendur nú í ströngu og hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir
að láta starfsmenn taka skellinn vegna stöðu félagsins.
2,2 milljarðar í 3.400 sumarstörf
Ríkisstjórnin kynnti í vikunni aðgerðir í málefnum stúdenta.
2,2 milljörðum verður varið í að fjölga tímabundið störfum
fyrir námsmenn og er gert ráð fyrir 3.400 störfum. Til skoð-
unar verður tekið að fjölga störfum eða tryggja aðrar leiðir til
framfærslu ef í ljós kemur að fjöldi starfa dugi námsmönnum
ekki. Eins verður fjármagni varið í sumarnám við háskóla og
boðið upp á greiðsludreifingu á skrásetningargjöldum opin-
berra háskóla.
Opna má bari
Þann 25. maí verður samkomubann
rýmkað og mega allt að 200 koma
saman í þessu næsta skrefi afléttinga
takmarkana. Opna má líkamsræktar-
stöðvar með ákveðnum skilyrðum og
barir fá leyfi til að hafa opið til ellefu á
kvöldin. Ferðatakmarkanir verða einn-
ig rýmkaðar og verður ferðamönnum
heimilt að velja um sóttkví eða skimun
fyrir kórónaveirunni. Eins geta þeir
framvísað nýlegu vottorði um sam-
bærilega sýnatöku erlendis.
CMYK
SV/HV
Vertu viss um að velja
besta kjötið á grillið!
Meira á
www.fjallalamb.is
4 FRÉTTIR 15. MAÍ 2020 DV