Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2020, Síða 10
10 FRÉTTIR 15. MAÍ 2020 DV
Í dag skiptir álit annarra mig ekki máli því ég veit hver ég er. Ég hef gert
flotta hluti og hjálpað fjölda
fólks að ná árangri. Ég tók þátt
í að byggja upp næststærstu
líkamsræktarkeðju á Íslandi
þegar ég starfaði hjá Reebok
Fitness og ég gerði það mjög
vel. Ég hef tekist á við mótlæti
og er orðin sterkari persóna.
Ég er stolt af því sem ég hef
áorkað,“ segir Guðríður Torfa
dóttir, betur þekkt sem Gurrý.
Hún hefur um tuttugu ára
reynslu sem líkamsræktar
þjálfari og varð þjóðþekkt
sem þjálfari í íslensku raun
veruleikaþáttunum Biggest
Loser. Þar var máluð upp
mynd af Gurrý sem algjörum
nagla en mörgum þótti hún
heldur hörð og beinskeytt
við þátttakendur og varð hún
fyrir mjög óvægnum árásum
á netinu.
Gurrý var framkvæmda
stjóri líkamsræktarstöðva
Reebok Fitness frá opnun og
til ársloka 2017, þegar hún
var komin í algjört kulnunar
ástand, bæði út af vinnuálagi
og hömlulausri persónulegri
gagnrýni á opinberum vett
vangi. Í haust lét hún gamlan
draum rætast og opnaði eigin
stöð, Yama heilsurækt.
Guðríður Torfadóttir, eða Gurrý
eins og hún er alltaf kölluð, segist
hafa þroskast mikið síðustu ár og
vera nú orðin bæði sterkari per-
sóna og örugglega betri þjálfari.
Ég er passlega næs
Gurrý segir
að sé hún
þreytt, þá
noti hún það
trikk að fara
fyrst í sturtu
og klæða sig
síðan í æf-
ingagallann.
MYNDIR/
SIGTRYGGUR ARI
Erla
Hlynsdóttir
erlahlyns@dv.is