Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2020, Blaðsíða 11
Fjarfundartímar í
samkomubanni
Yama er lítil og persónuleg
stöð á annarri hæð við Ár-
múla. Gurrý býður þar upp á
alhliða þjálfun enda var hug-
myndin að önnum kafið fólk
gæti í einum og sama tím-
anum fengið styrktaræfingar,
þolþjálfun og slökun.
„Þetta hefur gengið vonum
framar og ég held að ég hafi
hitt naglann á höfuðið með
þessari uppsetningu. Litlir
hópar mæta ýmist tvisvar
eða þrisvar í viku í fjölbreytta
tíma, sem nánast aldrei eru
eins. Þetta er dýrara en á
stóru stöðvunum en þjónust-
an meiri. Stærsti hluti þeirra
sem byrjuðu hjá mér í haust er
enn að æfa á stöðinni og alltaf
einhver á biðlista,“ segir hún.
Þetta ár hefur þó verið áskor-
un fyrir þá sem reka líkams-
ræktarstöðvar, enda þurfti
að loka þeim öllum fyrir um
tveimur mánuðum vegna CO-
VID-19.
„Ég var mjög stressuð yfir
því hvernig þessar lokanir
færu með fyrirtækið. Margir
sem ég hef verið að þjálfa
fylktu sér þá á bak við mig
og eiginlega kröfðust þess að
borga áfram til að fyrirtækið
gæti lifað. Þetta sleppur fyrir
horn þeirra vegna og fyrir það
er ég ævinlega þakklát.
Í staðinn fengu þau aðgang
að heimaæfingaáætlunum í
fjarþjálfun og svo sendi ég
út fjartíma þrisvar á dag
í gegnum fjarfundakerfið
Zoom. Þetta mæltist vel fyrir
og margir drógu bara alla fjöl-
skylduna með á æfingar.
Eftir páska varð þó ljóst
að fólk var hratt að missa
áhugann, enda ekki kjörað-
stæður að æfa á stofugólfinu
með krakkana í kös rekandi
hausinn í sófaborðið. Ég reikn-
aði með að mega opna 4. maí
eins og hárgreiðslustofur,
nuddarar og fleiri, en þurfti
enn og aftur að hugsa stand-
andi og hannaði þá æfingar
sem framkvæmdar voru úti í
sjö manna hópum.
Fólk var eins og beljur að
vori, í gleðikasti yfir því að
komast út að æfa, og er ég
mjög stolt af því hversu dug-
leg þau voru að hreyfa sig
meðan allt var lokað.“
Væri til í eina seríu
til viðbótar
Meðal þeirra sem eru að æfa
hjá Gurrý eru Agla Steinunn
Bjarnþórudóttir, sem stóð uppi
sem sigurvegari í seríu 3 af
Biggest Loser Ísland, og Arna
Vilhjálmsdóttir, sem sigraði
í seríu 4. „Arna leysti mig
meira að segja af einu sinni
þegar ég var lasin,“ segir
Gurrý.
„Þær eru vinir mínir og
hafa kennt mér mjög mikið.
Ég er búin að þjálfa þær svo
lengi að þær eru hluti af lífi
mínu. Þátttaka í stóru verk-
efni eins og Biggest Loser hef-
ur auðvitað stóra kosti. Ég hef
eignast trausta vini, stækkað
tengslanetið og öðlast dýr-
mæta reynslu. Biggest Los er
var skemmtileg áskorun. Ég
er með gríðarlegt keppnisskap
og hefði stundum mátt slaka
aðeins á – en þetta var nátt-
úrulega keppni.“
Gurrý segist meira en til í
að þjálfa í einni seríu til við-
bótar, ef boðið kæmi. „Já, og
í dag hefði ég vit á að taka
gagnrýnina ekki jafnmikið
inn á mig. Ég er orðin stærri
og betri manneskja, og örugg-
lega betri þjálfari.“
Venjuleg kona með falleg ör
Þeir sem ekki þekkja Gurrý
hafa af henni ákveðna ímynd
sem hún vill gjarnan hrista
af sér. „Fólk er spurt: „Guð,
hvernig þorir þú að æfa hjá
henni?“ Ég hef heyrt að ég sé
alltaf að reyna að drepa fólk
í ræktinni, sé svakalega hörð
og tillitslaus. Fyrst særði það
mig því ég er ekki þannig, en
ég veit hvaðan þetta kemur.
Biggest Loser er auðvitað
sjónvarpsefni þar sem búið
er að klippa allt til, þannig að
bara mesta kryddið er sýnt
og samtöl jafnvel ekki sýnd í
heilu lagi.
Ég segi alveg það sem mér
finnst, en ég er passlega næs,“
segir hún og hlær. „Ég læt fólk
alveg gera erfiðar æfingar, en
það er því ég geri ráð fyrir að
fólk sé að borga mér fyrir að
hjálpa sér að ná árangri. En ég
hef heyrt margt ljótt um mig,
sérstaklega frá konum.“
Spurð um hverjar hún telji
ástæður þess segir Gurrý af
sinni alkunnu hreinskilni:
„Sumir eru bara fífl. En síðan
eru eins og gengur aðrir sem
vita ekki betur, draga upp ein-
hverja mynd sem á sér ekki
stoð í raunveruleikanum. Auð-
vitað er það stundum óþægi-
legt að heyra hvernig fólk
heldur að ég sé og misskilur
mig.
Ég veit að ég tala frekar hátt
og er að reyna að vanda mig
við að milda tóninn í röddinni.
Ég geng um bein í baki og
virðist hörð í gegn en er bara
ósköp venjuleg kona sem fær
appelsínuhúð og ber falleg ör
eftir að hafa gengið með þrjú
börn.
Ég elska fólk og ég elska að
fylgjast með árangri þeirra
sem ég er að hjálpa. Ég er sátt
við mig, líður vel þar sem ég
er, og legg mig stöðugt fram
við það sem ég geri best. Ég
veit að skoðanir annarra skil-
greina mig ekki og ég þarf
ekki að hafa skoðanir á skoð-
unum annarra. Ég hef verið að
æfa mig í því.“
Samstæð nærföt í sundi
Hún segir það hafa verið
ákveðið þroskaferli að verða
opinber persóna. „Ég er mjög
prívat manneskja og mér
fannst óþægilegt þegar ég
upplifði að fólk væri að horfa
á mig úti á götu og fór í mikla
vörn. Þegar ég fór út í búð
passaði ég að versla bara sjúk-
lega hollt, því ég vildi ekki að
fólk sæi mig með óhollan mat
í körfunni, hvað þá sæi mig
í ósamstæðum nærfötum í
sundi. Sem betur fer er ég
ekki lengur á þessum stað.
Ég er bara venjuleg mann-
eskja; stundum pínu skrýtin,
stundum pínu ofvirk, stund-
um ofsalega þreytt. Stundum
nenni ég ekki á æfingu en fer
samt.
Ég er mjög þakklát fyrir
það tækifæri sem ég fékk í
Biggest Loser og held að ég
hafi líka verið búin að vinna
fyrir því. Ég var búin að þjálfa
í mörg ár og fólk vissi að það
væri hægt að treysta á mig, þó
ég rífi stundum kjaft og segi
eitthvað sem aðrir þora ekki
að segja,“ segir hún og kímir.
Þættirnir Biggest Loser
voru sagðir ala á fitufordóm-
um og Gurrý hefur sjálf feng-
ið harkalega gagnrýni í þá
veru. „Mér fannst þetta pínu
fyndið því þetta er svo langt
frá sannleikanum. Þetta er
raunar eitt af því sem snerti
mig ekki neitt. Ég stend á gólf-
inu allan daginn að vinna með
fólki sem er í ofþyngd. Ef ég
væri með fitufordóma þá væri
ég líklega að vinna við eitt-
hvað annað. Það var lítið vægi
í þessum orðum, að mínu mati,
því þetta var bara rangt.“ Hún
segist í raun þakklát fyrir þá
reynslu sem hún fékk við að
takast á við opinbert mótlæti.
„Allir erfiðleikar herða
mann, ef fólk kemst í gegnum
þá. Ég myndi samt ekki vilja
hafa skrifað um einhvern á
netinu eins og fólk skrifaði um
mig. Ég myndi ekki vilja hafa
slík skrif eftir mig á Inter-
netinu,“ segir hún og vísar til
þess að orð hafa afleiðingar.
Óttaðist að mistakast
Gurrý hafði lengi stefnt að því
að opna eigin stöð, en óttaðist
lengi vel að mistakast.
„Ég var hrædd við þetta.
Annars hefði ég verið búin að
opna eigin stöð fyrir löngu.
Ætli þetta undirstriki ekki
að ég sé bara venjuleg kona.
Við viljum alltaf hugsa allt í
þaula, plana og skipuleggja og
reyna að sjá allt fyrir fram.
En í fyrrahaust var auðvitað
ekki gert ráð fyrir alheims-
faraldri í mínum plönum. Við
þurfum að treysta á þekkingu
okkar og reynslu. Bara leggja
af stað og láta reyna á hlutina,
ef við brennum sterkt fyrir
einhverju. Það kostar blóð,
svita og tár að vinna að eigin
hugmyndum, en er svo mikils
virði.
Pabbi á og rekur Gítarskóla
Reykjavíkur og hann var bú-
inn að segja við mig að það
jafnaðist ekkert á við að vera
sinn eigin herra. Mamma og
pabbi hafa alltaf verið rosa-
lega hvetjandi og sagt mér að
ég gæti gert allt sem ég vildi.
Ég fékk að gaurast áfram
eins og ég vildi og þau reyndu
aldrei að setja mig í neitt box.
Ég var ofvirkur krakki og of-
virk stelpa í þokkabót, en þau
leyfðu mér alltaf að fá mína
útrás. Núna fæ ég þessa útrás
í þjálfuninni.“
Hún er mikil fjölskyldu-
manneskja og hittist öll stór-
fjölskyldan vikulega, yfir-
leitt í lambalæri, heima hjá
foreldrum hennar á sunnu-
dögum. „Við hittumst mikið
og mér þykir vænt um það.
Síðan ég flutti að heiman höf-
um við alltaf borðað saman
í hverri viku. Núna á tímum
sam komu banns áttar maður
sig betur á því hvað skiptir
mestu máli.“
Gurrý á þrjá stráka, en þann
elsta sem er 22 ára eignaðist
hún aðeins 18 ára. Miðdreng-
urinn er að verða 18 ára og sá
yngsti að verða 12.
„Ég held að okkur pabba
þeirra hafi bara tekist vel
til. Þeir eru ólíkar persónur
en hver og einn að standa sig
vel í sínu. Þeir eldri eru mjög
sjálfstæðir og á fullu að sinna
sínu en við eigum okkar gæða-
stundir. Það er fátt betra en að
taka kósíkvöld, horfa á mynd
og borða nammi. Sjálf er ég
svo alltaf að reyna að ein-
falda lífið. Æfa mig í að hafa
færri bolta á lofti, og fæ rými
til þess aðra hverja viku þegar
strákarnir eru ekki hjá mér.
Við fjölskyldan erum annars
mjög dugleg að ferðast saman
Sumir eru
bara fífl.
FRÉTTIR 11DV 15. MAÍ 2020