Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2020, Side 18
N ú þegar kreppir verulega að í efnahagslífinu blasir við að forgangs
raða þarf verkefnum ríkis og
sveitarfélaga. Meðal þess sem
hlýtur þá að koma til skoðunar
eru gríðarleg byggingaráform
æðstu stofnana ríkisins. Þess
ar ráðagerðir eru raunar svo
umfangsmiklar að þær hljóta
að vekja áleitnar spurningar
um meðferð almannafjár.
Þarf allt þetta húsnæði?
Nú stendur fyrir dyrum bygg
ing sex þúsund fermetra skrif
stofuhúss Alþingis við Vonar
stræti. Gert er ráð fyrir að
það verði tekið í gagnið 2023
en samkvæmt upplýsingum
frá Framkvæmdasýslu ríkis
ins er áætlaður kostnaður 4,4
milljarðar króna.
Alþingi hefur fram til þessa
leigt húsnæði undir hluta
starfsemi sinnar og dreifast
þær skrifstofur á nokkur hús
en fyrirhuguð nýbygging á að
hýsa skrifstofur þingmanna,
fundarherbergi þingflokka
og nefnda og vinnuaðstöðu
starfsfólks og þingflokka.
Þar með á öll starfsemi Al
þingis að verða samtengd. Í
kynningarefni um fyrirhug
aða byggingu koma fram há
stemmdar yfirlýsingar eins og
„bætt starfsaðstaða“, „lang
þráð úrbót“, „löngu tímabær“,
„standast kröfur tímans“ og
þar fram eftir götunum. Hér
er þó rétt að staldra við og
spyrja hvort þörf sé á öllu
þessu húsnæði. Geta þing
menn einstakra flokka ekki
deilt með sér vinnurými eins
og almennt tíðkast á skrif
stofum einkafyrirtækja? Var
virkilega ástæða til að ráða
alls 27 pólitíska aðstoðarmenn
þingflokka? Er ekki möguleiki
á að spara á fleiri stöðum í
skrifstofuhaldi þingsins?
Lítið sem ekkert hefur farið
fyrir spurningum af þessu
tagi. Helsta gagnrýnin á fyrir
hugaða byggingu hefur lotið
að ytra útliti hennar, en frægt
varð þegar Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, þáverandi for
sætisráðherra, gerði sjálfur
útlitsteikningar af húsi á þess
um stað í nýklassískum stíl.
Tugþúsundir fermetra
Einnig eru uppi áform um um
fangsmiklar framkvæmdir á
svokölluðum Stjórnarráðsreit,
austan við Arnarhól og norðan
Þjóðleikhússins, en nýverið
fór fram hönnunarsamkeppni
um það svæði. Þarna eru nú
þegar miklar skrifstofubygg
ingar ríkisins, Arnarhvoll,
Sjávarútvegshúsið og fleiri
mannvirki, samtals 28.473
fermetrar. Gert er ráð fyrir
því að fyrirhugaðar bygg
ingar verði 23.937 fermetrar
samkvæmt upplýsingum frá
Framkvæmdasýslunni. Við
bætast 21.420 fermetrar í bíla
geymslum með 849 bílastæð
um. Þá hefur komið til tals að
reisa 1.672 fermetra dómshús
Landsréttar á sömu slóðum.
Enn má spyrja hvort ekki
séu tækifæri til hagræðingar í
skrifstofuhaldi ráðuneyta sem
gætu þá komist af með minna
húsnæði.
Menningarsögulegt slys
Samhliða samkeppni um
skipulag á Stjórnarráðs
reitnum var efnt til keppni
um hönnun viðbyggingar við
Stjórnarráðshúsið. Hér með
fylgjandi eru útlitsteikningar
af henni. Um er að ræða um
1.200 fermetra mannvirki
sem á að hýsa meðal annars
flestar skrifstofur forsætis
ráðuneytisins, fundarými
og aðstöðu fjölmiðla. Í sam
keppnislýsingu um viðbygg
inguna sagði orðrétt: „Byggja
þarf viðbyggingu við Stjórn
arráðshúsið í Lækjargötu …“
Þessi fullyrðing stenst ein
faldlega ekki: Það þarf ekki að
byggja við Stjórnarráðshúsið.
Húsinu má halda óbreyttu
á sínum stað og flytja skrif
stofur forseta Íslands þangað,
eins og áður hefur verið bent
á. Skrifstofur forsætisráðu
neytisins gætu þá flust í
Safnahúsið við Hverfisgötu og
gefið því húsi nýtt og verðugt
hlutverk.
Stjórnarráðið er eitt af elstu
steinhúsum landsins, reist á
árunum 1765–1770 sem fang
elsi. Danir gátu ekki lengur
leyft sér þann munað að starf
rækja tukthús fyrir Íslend
inga eftir árás Englendinga
á Kaupmannahöfn (og fleiri
ófarir í Napólensstyrjöld
unum þegar ríkissjóður Dana
varð gjaldþrota), svo húsinu
var breytt í embættisbústað
æðsta fulltrúa dansks valds
hér á landi og síðar skrifstofur
Stjórnarráðs Íslands frá stofn
un þess 1904.
Því má velta upp hvort
menningarsögulegt slys sé
hér í uppsiglingu. Hvers
vegna vilja menn troða svo
miklu byggingarmagni á
jafnlítinn reit á viðkvæmum
stað? Í næsta nágrenni má sjá
hörmuleg dæmi um mislukk
aðar viðbyggingar við gömul
hús. Nægir að nefna hæðirnar
fjórar ofan á gamla Útvegs
bankanum og funkishliðina á
Landsbankanum sem snýr út
að Pósthússtræti. Stjórnar
ráðshúsið er þó enn eldri bygg
ing og hefur mun meira sögu
legt gildi en bankahúsin tvö.
Minnisvarðar utan
um kontóra
Almennt fara opinberar
framkvæmdir langt fram úr
kostnaðaráætlunum. Hafist
var handa við byggingu Ráð
húss Reykjavíkur undir þeim
formerkjum að það myndi
kosta 750 milljónir króna. Það
var árið 1987, en talan endaði
í þremur og hálfum millj
arði á verðlagi ársins 1992
þegar framkvæmdum lauk.
Það jafngildir nú næstum 14
milljörðum ef tekið er mið af
vísitölu byggingarkostnaðar.
Margir urðu til að gagnrýna
slíka óráðsíðu með peninga
skattborgara, sér í lagi þar
sem aðeins lítill hluti skrif
stofa borgarinnar var fundinn
staður í Ráðhúsinu. Ellert B.
Schram, ritstjóri DV, sagði til
að mynda í forystugrein blaðs
ins á þessum tíma: „Ráðhúsið
er kontór. Það hlýtur að vera
áleitin spurning hvort reisa
þurfi minnisvarða utan um
þessa kontóra og kosta til þess
þremur og hálfum milljarði og
kannski meiru.“
Á einkamarkaðnum hefur á
síðustu árum víða verið unnið
að betri nýtingu skrifstofu
húsnæðis og mikil hagræðing
átt sér stað. Í þessu efni ætti
ríkisvaldið að taka sér einka
fyrirtækin til fyrirmyndar.
Við þurfum síst af öllu fleiri
monthús í gamla bæinn,
minnismerki um sóun og flott
ræfils hátt. n
EKKI FLEIRI MONTHÚS Í MIÐBÆINN
Á ÞINGPÖLLUM
Björn Jón
Bragason
Rándýrar skrif-
stofubyggingar
æðstu stofn-
ana ríkisins eru
á teikniborðinu.
Tillaga T.ark arkitekta ehf. og SP(R)INT Studio að skipulagi svokallaðs Stjórnarráðsreits. Harpa er fjærst og Þjóðleikhúsið fremst á
myndinni vinstra megin. MYND/STJÓRNARRÁÐIÐ
Verðlaunatillaga að viðbyggingu við Stjórnarráðshúsið, en til stendur að stórri byggingu verði komið
fyrir á þröngri lóðinni aftan við húsið. Sú hugmynd hefur komið fram að flytja skrifstofur forseta
Íslands í Stjórnarráðshúsið. MYND/STJÓRNARRÁÐIÐ
18 EYJAN 15. MAÍ 2020 DV