Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2020, Side 21
MAGMA HÓTEL
KIRKJUBÆJARKLAUSTRI
Magma hótel og Bistro 1783 er staðsett í Landbroti,
um 3 kílómetra frá Kirkjubæjarklaustri. Hótelið var
byggt 2017 og hefur verið nánast uppbókað síðan og
þá einna helst af erlendum ferðamönnum. Hótelið
er staðsett í stórbrotinni náttúru og eru herbergin í
formi nútímalegra smáhýsa með verönd.
n Tilboð: Nú sjást verð frá 19.900 krónum fyrir
nóttina, sem var áður 35.900 krónur. Ef bókaðar
eru fleiri en 2 nætur á hótelinu fá viðskiptavinir
5.000 kr. inneign á veitingastað hótelsins fyrir
hverja aukanótt.
n Tripadvisor: 5 af 5 /215 umsagnir.
B59 Í BORGARFIRÐI
Hótelið er mjög smekklega innréttað og frábærlega
staðsett við aðalgötuna í Borgarnesi, svo stutt er
að ganga í Landnámssetrið, í sund eða Leikfanga
safn Soffíu í Englendingavík svo fátt eitt sé nefnt.
Einnig er ísbúð á hótelinu. Veitingastaðurinn þykir
góður en einnig er spa á staðnum og bistró.
Hægt er að bóka fallega svítu með frístandandi
baðkeri sem bræðir hjörtu, séstaklega ef það er
konfekt og kampavín á kantinum.
n Tilboð: Gisting, þriggja rétta kvöldverður,
freyðandi fordrykkur og aðgangur að Lóu heilsu
lind á 24.900 kr. Gildir fyrir tvo.
n Tripadvisor: 4.5 af 5 /111 umsagnir.
SIGLÓ HÓTEL
Þetta hótel er sannkallaður gim
steinn. Hótelið er jafn vinsælt
vetur og sumar, en Siglufjörður
er vinsæll áningarstaður fyrir
skíðagöngufólk. Gluggar hótels
ins eru sérstaklega skemmti
legir, en í betri herbergjunum
eru bekkir í gluggunum svo
hægt er að sitja í þeim og njóta
útsýnisins. Í setustofunni er
kamína og hönnun hótelsins er
mjög vel heppnuð.
n Tilboð: Tveggja manna her
bergi frá 17.900 krónum.
n Tripadvisor: 5 af 5 /
415 umsagnir.
360 HÓTEL
Hótelið er staðsett rétt fyrir utan
Selfoss og var opnað í ágúst
2018. 360 hótel þykir eitt það
fallegasta á landinu, en mikið er
gert út á útsýni og náttúrulegar
innréttingar. Hótelið er lokað til
1. júní vegna breytinga á spa
aðstöðunni, en þar er bæði að
finna heitan pott og sundlaug.
n Tilboð: 27.000 kr. nóttin, en
almennt verð hefur verið
55.000 kr. á nótt. Afsláttur
verður einnig á veitingastað
hótelsins í sumar.
n Tripadvisor: 5 af 5 /
159 umsagnir.
UMI HÓTEL
UMI hótel var opnað í lok sumars 2017 og er stað
sett við rætur Eyjafjallajökuls. Dóttir eiganda
hótelsins, Sandra Dís Sigurðardóttir innanhúss
arkitekt og lýsingarhönnuður, sá um alla hönnun á
hótelinu sem er ákaflega falleg, en arkitekt hússins
er Gunnar Páll Kristinsson. Hótelið er 28 herbergja,
4 stjörnu Boutiquehótel, sem hefur hlotið bæði
World Luxury Hotel Awards og Travel and Hospit
ality Awards.
n Tilboð: Fyrir helgar í maí og júní ásamt öðrum
frídögum: Gisting í eina nótt í standard herbergi
ásamt morgunverði fyrir tvo: 17.900 kr. Gisting í
eina nótt í standard herbergi ásamt þriggja rétta
kvöldverði að hætti kokksins og morgunverði
fyrir tvo: 30.000 kr.
n Tripadvisor 4.5 af 5 / 202 umsagnir.
HÓTEL RANGÁ
Rangá er ein vinsælasta veiðiá landsins, en við ána
stendur hið fagra Hótel Rangá. Hótelið hefur verið
vinsælt meðal Íslendinga, en þar hafa einnig stór
stjörnur á borð við Kardashianklanið hvílt lúin og
ofmynduð bein sín. Á Hótel Rangá eru 52 herbergi,
þar á meðal eru í boði glæsilegar svítur en hönn
unin á þeim tekur mið af heimsálfunum og eru þær
nefndar eftir þeim.
n Tilboð: Rangá býður um þessar mundir 10 ára
gamalt verð. Gisting í standard tveggja manna
herbergi, þriggja rétta sælkerakvöldverður
að eigin vali af matseðli, eldfjallakokkteill og
morgunverður með kampavínsívafi, 43.900 kr.
fyrir tvo.
n Tripadvisor 4.5 af 5 / 2.351 umsögn.
ION ADVENTURE
Við Nesjavelli stendur hið gullfallega hótel ION Adventure. Hótelið er
byggt ævintýralega inn í landslagið og skartar vinsælum veitingastað.
Á staðnum starfa meðlimir kokkalandsliðsins, en maturinn þykir sér
staklega góður. Hótelið var opnað í ársbyrjun 2013 og hefur unnið til
fjölda verðlauna og skartar glæsilegri sundlaug.
n Tilboð: Helgartilboð í allt sumar frá 29.900 kr. á nótt/ 49.900 fyrir
tvær nætur – innifalið: Miðað við tvo í herbergi, gisting, 2 rétta
kvöldverður og morgunverður. Jóga og gönguferðir með leiðsögn.
Einnig er boðið upp á börger og bjór á 2.990 kr. alla föstudaga og
laugardaga í sumar – innifalið: Hamborgari, franskar og bjór +
ókeypis aðgangur að Lava Spa, ganga um Hengilssvæðið og jóga.
n Tripadvisor 3.5 af 5 / 1191 umsagnir.
DÝRUSTU HÓTEL Á ÍSLANDI ENN LOKUÐ
Deplar, frá 270.000 kr.
Hótelparadísin Deplar býður upp
á 13 lúxusherbergi og er stærðin
á byggingunum yfir 2.600 fer
metrar. Nóttin á hótelinu kostar
frá 270.000 kr. upp í milljón, en alls
kyns lúxus er innifalinn. Hótelið
er lokað sem stendur. Ekki hefur
verið tekin ákvörðun um að draga
úr þjónustustigi og lækka verð til
að opna fyrir innlendan markað að
svo stöddu. Hingað til hafa nánast
eingöngu erlendir ferðamenn sótt
hótelið.
The Retreat Hotel
við Bláa Lónið,
frá 180.000 kr.
Hótelin tvö við Bláa lónið, Silica
og The Retreat Hotel, eru lokuð
í það minnsta út maí. Nóttin á
Silica kostar almennt á þessum
tíma, miða við heimasíðu þess, frá
78.900 krónur. Svítan á The Re
treat Hotel, sem er eitt fyrsta fimm
stjörnu hótel landsins, kostar frá
180.000 krónum.
Deplar í Fljótshlíð. The Retreat Hotel við Bláa lónið í Grindavík.
FÓKUS 21DV 15. MAÍ 2020