Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2020, Qupperneq 24
SAKA MÁL
S kylar var 16 ára gömul er hún kvaddi þennan heim árið 2012. Hún
bjó í smáborginni Morgan-
town í Vestur-Virginíu. Faðir
hennar, David Neese, vann
við vörusamsetningar fyrir
Walmart, en móðirin, Mary
Neese, var aðstoðarmaður
á rannsóknarstofu í hjarta-
sjúkdómum. Skylar var ein-
birni og að sögn foreldranna
var hún bráðgert barn og
lærði til dæmis fyrr að lesa
og reikna en almennt tíðk-
ast. Henni gekk vel í skóla og
var vinsæl meðal jafnaldra
sinna.
En á unglingsárunum varð
Skylar dálítið óstýrilát. Hún
átti til að skrópa í skólanum,
reykja gras og drekka bjór.
Ekkert sem bakaði foreldrum
eða skólayfirvöldum stór-
felldar áhyggjur. Námið gekk
þrátt fyrir þetta alltaf mjög
vel. Sumarið eftir annað ár í
framhaldsskóla fékk Skylar
vinnu á veitingastaðnum
Wendy’s og líkaði það afskap-
lega vel.
Að kvöldi 5. júlí 2012 kom
Skylar heim af kvöldvakt á
Wendy’s og fór að sofa – eða
svo virtist. Faðir hennar
ætlaði að hitta hana heima í
hádeginu daginn eftir og var
hissa á því að hún væri ekki
heima. Glugginn í herbergi
Skylar var galopinn. David
hringdi í Mary sem sagði að
Skylar hefði örugglega bara
farið út að hitta vinkonur sín-
ar. Vaktin hennar á Wendy’s
ætti að hefjast klukkan 16 og
hún myndi áreiðanlega skila
sér þangað.
En upp úr klukkan fjögur
var hringt frá Wendy’s heim
til Skylar og spurt hvort hún
myndi mæta til vinnu. Þá
fyrst urðu David og Mary
óttaslegin og höfðu samband
við lögreglu. Fyrsta eftir-
grennslan leiddi ekkert í ljós
og angist foreldranna óx.
Steig upp í bíl
eftir miðnætti
Foreldrar Skylar útbjuggu
dreifimiða með mynd af
henni og festu upp víðs vegar
um borgina. Vinir og vanda-
menn lögðu lið, gengu hús
úr húsi með dreifimiðann og
spurðust fyrir um hana, en
enginn hafði séð hana.
Æskuvinkona Skylar, Shelia
Eddy, var meðal þeirra sem
hjálpuðu til og gerði sitt besta
til að hughreysta foreldrana.
En nokkrum dögum eftir
hvarf Skylar játaði hún dá-
lítið fyrir föður Skylar: Hún
sagði að Skylar hefði stolist
út með sér og Rachel Shoaf,
annarri vinkonu, og þær farið
í bíltúr. Þetta var eftir klukk-
an tíu, það er eftir leyfilegan
útivistartíma 16 ára unglinga
á svæðinu.
Skömmu síðar komu niður-
stöður úr athugun á mynda-
eftirlitskerfi í götunni. Þar
fannst nokkuð afar athyglis-
vert: Klukkan hálf eitt var
kornótt myndskeið af Skylar
að troðast út um gluggann
á herberginu sínu, hoppa
niður á jörð, ganga niður
eftir götunni og setjast upp
í bíl við enda hennar. Hvorki
var hægt að sjá bílnúmerið á
óskýru myndskeiðinu, né bíl-
tegundina.
Ljóst var að Skylar hafði
farið sjálfviljug upp í bílinn.
Það vakti grunsemdir um að
hún hefði einfaldlega strokið
að heiman, skýring sem for-
eldrar hennar gátu engan
veginn kyngt enda hafði allt
leikið í lyndi á heimilinu, að
þeirra mati.
Skylar hafði hins vegar
skilið símann sinn eftir og
nokkrum dögum eftir hvarf-
ið var enn engin hreyfing á
bankareikningum hennar.
Þetta vitnaði sterkt gegn
því að hún hefði strokið að
heiman og hennar nánustu
voru orðnir sannfærðir um
að eitthvað hræðilegt hefði
gerst.
Ekkert nýtt kom hins vegar
fram í málinu fyrr en í mars
árið 2013, heilum átta mán-
uðum eftir hvarf Skylar. En
þá leystist málið á skömmum
tíma.
Morðið undirbúið í
marga mánuði
Í marsmánuði árið 2013
hringdi Shelia Eddy grátandi
í lögregluna í Morgantown og
játaði á sig morðið á Skylar
Neese. Samkvæmt hennar
framburði hafði þriðja vin-
konan, Rachel Shoaf, tekið
fullan þátt í glæpnum.
Sagan var ótrúleg en ýmis
gögn áttu eftir að styðja
hana og hún reyndist vera
sannleikurinn. Þær Skylar,
Shelia og Rachel voru mikl-
ar vinkonur sem sífellt voru
að bralla eitthvað saman.
Shelia og Rachel voru þó
taldar ganga dálítið lengra í
uppátækjunum og stundum
slettist upp á vinskapinn við
Skylar.
Þetta kvöld keyrðu stelp-
urnar Skylar fyrst heim,
eftir að þeim hafði orðið
sundurorða við hana. En eftir
miðnætti sendu þær henni
skilaboð og buðu henni að
koma á rúntinn. Skylar þáði
boðið. Bílinn sem sást fremur
ógreinilega í myndaeftirlits-
upptökunni hafði Shelia til
umráða þetta kvöld.
Stúlkurnar óku með Skylar
út úr bænum og stöðvuðu við
vegarslóða í um 50 kílómetra
fjarlægð frá heimili hennar.
Þar dró Rachel, sem sat í aft-
ursætinu, upp hníf og stakk
Skylar í bakið. Þær stungu
hana aftur og aftur. Skylar
sagði bara eitt orð: „Why?“ –
Hvers vegna?
Það kom á daginn að stúlk-
urnar tvær, Rachel og Shelia,
höfðu lagt á ráðin um morðið
í marga mánuði. Þær heyrð-
ust tala um þetta í skólanum
en flestir héldu að þær væru
að grínast. Skýringarnar sem
þær gáfu á morðinu voru þær
að þeim hefði ekki líkað við
Skylar.
Þær ætluðu að grafa Skylar
en jarðvegurinn þarna var of
harður. Þær huldu því líkið
með laufblöðum og trjágrein-
um. Shelia vísaði síðan lög-
reglu á illa farið lík Skylar
rétt eftir játninguna.
Ein skýring sem gefin hef-
ur verið á morðinu er sú að
Skylar hafi orðið vitni að því
að Rachel og Shelia stunduðu
kynlíf saman.
Twitter-færslur eftir allar
þrjár, sem fáir lögðu mikla
merkingu í þegar þær voru
birtar, virðast afar óhugnan-
legar í dag. Þar má meðal
annars sjá Sheliu og Rachel
ræða morðið undir rós og
fagna því meira að segja að
hafa myrt Skylar. Þar má
líka sjá Skylar gefa sterklega
í skyn að hún viti leyndarmál
vinkvenna sinna.
Shelia var dæmd í 30 ára
fangelsi með möguleika á
reynslulausn eftir 10 ár.
Rachel var dæmd í lífstíðar-
fangelsi með möguleika á
reynslulausn eftir 15 ár. Lík-
lega skipti þarna máli að
Shelia játaði fyrr og var sam-
starfsfúsari við rannsóknina.
Við réttarhöldin kváðust
stúlkurnar iðrast og báðu ást-
vini Skylar fyrirgefningar.
Þeim skilaboðum var fálega
tekið. n
ENGINN GETUR SKILIÐ HVERS
VEGNA HÚN ÞURFTI AÐ DEYJA
Skylar Neese skreið út um gluggann á herbergi sínu og steig sjálfviljug upp í
ókunnan bíl. Hún sneri aldrei aftur heim en ráðgátan leystist átta mánuðum síðar.
Skylar Neese
var aðeins 16
ára þegar hún
var myrt.
MYND/
FACEBOOK
Eftir hvarf
Skylar birti
Shelia þessa
myndasyrpu
á Twitter og
sagðist sakna
vinkonu
sinnar.
MYND/TWITTER
Dauði unglingsstúlkunnar
Skylar Neese ratar lík-
lega í flokk sérkenni-
legustu sakamála seinni
ára. Ástæðurnar fyrir
morðinu voru óljósar, eða
svo fráleitar að erfitt er að
viðurkenna þær sem raun-
verulegar ástæður fyrir
kaldrifjuðu morði.
24 FÓKUS 15. MAÍ 2020 DV