Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2020, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2020, Page 27
Brjálað brokkólísalat Þetta salat hefur mamma mín oft gert í gegnum tíðina fyrir veislur. Það er alltaf jafn vinsælt og svaka- lega bragðgott. Best er að gera salatið daginn áður en það er borið fram. Það er fullkomið sem með- læti með hverju sem er eða hrein- lega ofan á brauð. 1 brokkolíhaus 1 rauðlaukur 1 bréf beikonstrimlar 1 pakki furuhnetur 3 msk. majónes 3-4 dropar balsamedik Byrjið á að saxa brokkólíið smátt. Ristið furuhneturnar á pönnu. Saxið rauðlaukinn og steikið á pönnu með beikonstrimlunum. Hrærið öllu saman í skál ásamt majónesinu og balsamedikinu. Geymið í nokkrar klukkustundir í kæli og berið fram með snittu- brauði eða góðu kexi. Una í eldhúsinu Djöfulleg súkkulaðibomba 200 ml heitt vatn 6 msk. kakó, passið að sigta kakóið 100 g púðursykur 130 g smjör, mjúkt 100 g sykur 3 egg 220 g hveiti ½ tsk. lyftiduft ½ tsk. matarsódi 3 tsk. vanilludropar Ofn hitaður í 180 gráður og 20-25 cm bökunarform húðað vel að innan með annað hvort PAM-úða eða smjörlíki. Kakói og púðursykri blandað saman við heita vatnið. Smjör og sykur hrært saman þar til blandan verður ljós og létt í sér. Þá er eggjunum bætt saman við blönduna og öllu hrært vel saman. Því næst er restinni af þurrefn- unum bætt út í. Að lokum er vatninu sem búið var að blanda með sykri og kakói bætt út í og deiginu blandað vel saman. Deiginu er svo hellt í bökunarform og botninn bakaður við 200 gráður í um 30-35 mínútur. Passið að botninn kólni alveg áður en rjóminn er settur ofan á. Vanillurjómi 1 peli rjómi, þeyttur 1 vanillustöng, skafið kornin úr og blandið saman við rjómann. Smyrjið rjómanum á kökubotninn og skreytið með fallegum og góð- um ávöxtum. Grillsumarið mikla er byrjað. Þótt grillkjötið sé oft einfalt og keypt tilbúið þá er talsvert sóknarfæri í því að henda í djúsí meðlæti sem tryllir gesti og kætir kroppinn. MATUR 27DV 15. MAÍ 2020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.