Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2020, Blaðsíða 39
SPORT 433 39DV 15. MAÍ 2020
Það stóð ekki til að fara
þarna út og svo kom þetta upp,
að ég var tæpur og stutt í leik,
þá var alveg eins gott að gefa
mér pásu. Hann vildi leysa
þetta og sparkaði í rassinn á
mér og sagði mér að fara. Það
hefði vissulega verið fínt að
því hefði verið haldið á lofti,
Óli er stórkostlegur karakter
og týpa.“
Stórmót væri heppilegur
tímapunktur til að hætta
Hannes hefur varið mark ís-
lenska landsliðsins á meðan
liðið hefur blómstrað og þjóðin
hefur heillast. Hannes er 36
ára gamall og hefur velt því
fyrir sér hvenær hann hættir
að leika með landsliðinu.
Tímapunkturinn gæti komið
á næsta ári.
„Það verður að viðurkenn-
ast að stórmót er heppilegur
tímapunktur að hætta, ef við
komumst þangað. Ef við kom-
umst á þriðja stórmótið er það
stórkostlegur árangur fyrir
Ísland, að vera partur af slíku
væri algjört ævintýri.
Maður skoðar það þá, það er
pottþétt að allir eru að fara að
gefa allt í þetta, til að komast
inn á þetta mót. Hvort ég hefði
hætt í sumar eða ekki, veit ég
ekki. Ég er alltaf eitthvað að
hugsa og plana framtíðina og
það getur alveg verið að það
hefði farið þannig. Það kemur
alltaf tími á kynslóðaskipti,
ég er með tvo frábæra mark-
menn á eftir mér. Ég ætla að
halda mér í þessu liði fram
yfir Evrópumótið og svo tekur
maður stöðuna.“
Til að Hannes haldi sæti
sínu í landsliðinu þarf hann
að blómstra með Val og hann
er spenntur fyrir nýjum tím-
um þar. Heimir Guðjónsson
var ráðinn þjálfari liðsins og
bjartsýni ríkir á Hlíðarenda.
„Það gengu allir út úr síð-
asta tímabili með sært stolt og
eru staðráðnir í að bæta upp
fyrir það, allt sem gat farið
úrskeiðis á síðustu leiktíð, fór
úrskeiðis. Tímabil sem situr
eftir með leiðindaminningar
og það eru allir sammála um
það. Það eru allir staðráðnir í
að snúa við blaðinu.“
Kærkomið frí frá fótbolta
Íslenski boltinn fer af stað
13. júní en Hannes og aðrir
íþróttamenn voru settir í frí
vegna kórónaveirunnar. Mikið
álag og áreiti hefur verið á
Hannesi síðustu ár og hann
tók fríinu fagnandi.
„Ég viðurkenni að þetta var
öðruvísi frí en ég hef fengið,
ég fékk að taka mér mánuð í
frí eftir landsleikina í nóvem-
ber. Ég fékk mikið að heyra
það frá liðsfélögum mínum,
af því að þeir voru byrjaðir
að æfa.
Það er ekki tekið mikið til-
lit, ég er búinn að vera mjög
mikið á keyrslu og með fótinn
á bensíninu síðustu ár. Ég
var að skipta um deildir sem
stangast á, fara úr sumardeild
í vetrardeild og öfugt. Þó að
maður hafi fengið einhver frí
hér og þar, þá er það öðruvísi.
Þetta var í fyrsta skipti sem
maður gat slakað alveg á,
það var bannað að gera hluti.
Maður gat verið afslappaður
og virkilega hlaðið batteríin.“
Einn færasti leikstjóri
þjóðarinnar
Frá unga aldri hefur Hannes
mundað myndavélina og gert
það gott sem leikstjóri sjón-
varpsþátta og auglýsinga. At-
vinnumennirnir okkar, Manna-
siðir Gillz og fleiri þættir hafa
verið í umsjón Hannesar. Hann
hefur svo framleitt auglýsing-
ar fyrir stór fyrirtæki.
„Ég er byrjaður að daðra við
þann bransa aftur, ég hef verið
að vinna töluvert frá því að ég
kom heim, án þess að flagga
því. Ég er kominn á gott skrið,
síminn hringir og það er nóg
að gera. Ég gæti farið á fullt í
það en fótboltinn er í forgangi
og maður má ekki gleyma því,
það er númer eitt, tvö og þrjú.
Mér gengur oft vel þegar
ég er að gera bæði, styður við
hvort annað. Ég gerði aug-
lýsingu rétt fyrir HM í Rúss-
landi, það gekk vel. Mér finnst
gaman að vera í báðu,“ sagði
þessi geðþekki knattspyrnu-
maður þegar við höfðum klár-
að kaffibollann og fórum hvor í
sína áttina af þessari fjölförnu
bensínstöð. n
Það er þórðargleði þegar
hlutirnir ganga ekki upp, þó
ég sé ekki sammála sleggju-
dómum.
Heimkoma Hannesar hefur ekki gengið eins og í sögu en fyrsta tímabil hans með Val var erfitt. MYND/SIGTRYGGUR ARI