Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2020, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2020, Page 8
8 FRÉTTIR 19. JÚNÍ 2020 DV REYNSLUSAGA EIGINMANNS SPILAFÍKILS Fyrrverandi eiginmaður spilafíkils segist hafa reynt að styðja við konu sína, en ítrekað fyllst van- mætti, vegna þess hversu sterk fíknin væri. Konan stoppaði á leið í bíó með dóttur sinni og eyddi bíó- peningunum í spilakassa, stal gjald- eyrinum hans og tók veð í íbúðinni, án hans vitneskju. Ég var í tæpa tvo áratugi með mín- um spilafíkli. Þegar við kynntust vorum við bæði að koma úr vímu- efnameðferð. Hún sagði mér strax að hún væri spilafíkill, ég vissi í raun ekki hvað það væri og fannst það eitthvað svo ómerkilegt. Við höfðum bæði náð að hætta neyslu, sem var mikið afrek, og ég sá fyrir mér að spilafíkn væri ekkert mál. Það fóru síðan brátt að renna á mig tvær grímur. Fíkn í spilakassa er rosalegasta fíkn sem ég veit um. Spilafíknin er ástæðan fyrir því að við skildum. Ég verð aldrei samur eftir þetta samband.Við vorum alltaf virk í AA-samtökunum en spilafíknin bankaði alltaf upp á. Ég ákvað hins vegar að hjálpa minni konu og tók yfir allt sem tengdist fjármálum okkar. Hún bað mig um það og var sátt við það. Hönnun spilakassanna útpæld Við höfðum aðeins verið saman í nokkra mánuði þegar ég var á leið til útlanda og fattaði allt í einu að allur gjaldeyririnn minn var horf- inn. Það var fyrsta stóra sjokkið. Hún útskýrði þá fyrir mér að svona virkaði spilafíknin. Ég varð eigin- lega bæði reiður og sár, var fullur vanmáttar. Eftir þetta leitaði ég eftir aðstoð fyrir mig hjá SÁÁ og sálfræðingi. Þeir sögðu mér að þessi fíkn væri sterkari en fíknin sem við hefðum losað okkur við. Ég fékk að heyra að spilakassarnir væru hannaðir til að ná sálfræði- legum tökum á fólki, hljóðin í þeim, litirnir og hraðinn – allt er þetta út- pælt til að ná fólki. Ég verð alltaf mjög pirraður þegar farið er að tala um að það þýði ekki að loka spilakössum, því þá fari spilafíklar bara á netið. Mín kona fór aldrei á netið, hún spilaði aldrei í Lottó. Það voru bara kassarnir sem hún sótti í. Hún þráði ekkert heitar en að hætta þessu. Þetta yfirtók allt. Algjört stjórnleysi Eitt sinn þegar ég var að taka til heima fann ég kvittanir fyrir því að hún hefði tekið 2 milljóna króna bankalán út á íbúðina okkar. Þegar ég spurði hana út í þetta sagðist hún hafa eytt þessum peningum í spilakassa á þremur dögum. Ég man líka vel eftir því þegar hún var að fara með ellefu ára dóttur sína í bíó. Hún hringdi síðan í mig grátandi, sagðist hafa farið í spilakassa á leiðinni og væri ekki með neinn pening. Stjórnleysið var algjört. Þetta voru auðvitað ekki miklir peningar, bara fyrir bíómiðum og nammi, en hún náði ekki að hafa hemil á sér. Á nóttunni þegar hún var sofnuð leitaði ég oft í vösunum hennar í leit að einhverjum kvittunum sem sýndu fram á að hún hefði verið að spila, og oftar en ekki fann ég eitt- hvað. Hún þráði ekkert meira en að hætta. Spilafíkil langar ekki að spila – hann verður að spila. Við töluðum oft um að það væri góð lausn ef spilafíklar gætu sett sig í straff og látið banna sig í spilasölum. Dró línuna við smálán Þegar við skildum fyrir þremur árum skuldaði hún tvær milljónir í smálánum. Ég var búinn að ákveða að þar lægju mín mörk og var búin að segja henni frá því að ef hún tæki smálán til að spila, þá yrði ég að fara. Ég stóð við það. Hún náði oft nokkrum mánuðum án þess að spila og þá var lífið yndislegt en vandinn þróaðist samt alltaf áfram hjá elsku konunni. Það er svaka- legt að fara frá manneskju sem á við þennan vanda að stríða. Þetta bara var svo yfirþyrmandi og tók aldrei enda. Nú er loksins komið inn í umræðuna hér á landi að taka upp spilakort, sem er þá hægt að loka á. Það væri frábært ef það gæti orðið að veruleika. Ég held að það væri raunhæf lausn. V ið höfum oft heyrt frá forsvarsfólki Samtaka áhugafólks um spila- fíkn (SAS) og tillögugerð okk- ar hnígur að sama markmiði. Við skiljum vel að fólk innan SAS þrýsti á aðgerðir, en Ís- landsspil geta ekki ein og sér komið á breytingum. Það er í höndum stjórnvalda og þætti okkur fengur að því ef SAS beitti sér á þeim vettvangi,“ segir í sameiginlegri yfir- lýsingu til DV frá formönnum Rauða krossins, Slysavarna- félagsins Landsbjargar og SÁÁ, en þessi félög eiga sam- an Íslandsspil. Skila skömminni til rekstraraðila Samtök áhugafólks um spila- fíkn birtu heilsíðuauglýsingu í Fréttablaðinu á miðvikudag, með lista yfir nöfn stjórnar- fólks í þeim félögum, fyrir- tækjum og stofnunum sem koma að rekstri spilakassa á Íslandi. „Í stjórnum þessara félaga sitja einstaklingar sem láta átölulaust að fólk sem er veikt af spilafíkn spili frá sér aleig- una. Spilafíklar, börn þeirra, fjölskyldur og vinir, skila skömminni af spilakössum til þeirra sem eiga þá og reka,“ segir í auglýsingunni. Spilakassar hér á landi eru reknir af tveimur aðilum: Ís- landsspilum og Happdrætti Háskóla Íslands. DV óskaði eftir viðbrögðum frá öllum þeim félögum, fyrirtækjum og stofnunum sem koma að rekstri kassanna. Hvorki höfðu borist svör frá Happ- drætti Háskóla Íslands né Há- skóla Íslands, þegar blaðið fór í prentun. Vilja fund með dómsmálaráðherra „Við skiljum ákafa forystu- fólks SAS að koma á úrbótum, sem endurspeglast meðal ann- ars í umræddri auglýsingu,“ segir meðal annars í svari frá formönnum félaganna sem eiga Íslandsspil. Þar er einnig bent á að þess- ir þrír formenn sendu í síðustu viku frá sér tillögur að bættu fyrirkomulagi peningaspila hérlendis. „Þar var bent á að upptaka á svokölluðu spila- korti, sem nær til allra pen- ingaspila, væri forsenda þess að ná árangri. Vel hefur tekist til með þetta fyrirkomulag á hinum Norðurlöndunum. Sam- tök áhugafólks um spilafíkn, SAS, hafa mælt með upptöku á slíku korti, þannig að þar SPILAKORT RAUNHÆF LAUSN Formenn Rauða krossins, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og SÁÁ segjast skilja að það brenni á Samtökum áhugafólks um spilafíkn að koma á úrbótum fyrir spilafíkla. Erla Hlynsdóttir erlahlyns@dv.is Spilakort geta nýst til að halda fjárhæð spilunar innan ákveðinna marka, sem spilarinn ákveður fyrir fram. MYND/ANTON BRINK Íslandsspil geta ekki ein og sér komið á breytingum. erum við á sama báti. Til að þetta verði að veruleika þarf atbeina dómsmálaráðuneytis- ins og að öll líknar-, mannúð- ar- og íþróttasamtökin og Há- skóli Íslands, sem standa að peningaspilum, taki þátt. Við bíðum eftir fundi með dóms- málaráðherra um þetta mál,“ segja formennirnir. Fyrirhugað spilakort virkar þannig að allir þurfa að hafa það til að geta tekið þátt í pen- ingaspilum, hvort sem er í spilakössum eða á innlendum netsíðum. Kortið nýtist til að halda fjárhæð spilunar innan ákveðinna marka sem spilar- inn ákveður fyrir fram og getur ekki breytt strax. Hann getur líka lokað fyrir aðgang- inn. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.