Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2020, Page 11
GÓÐ RÁÐ VIÐ SKOÐUN Á FASTEIGN
AÐ UTAN
Ástand lóðar Þegar gengið er að
húsi er gott að athuga ástand lóðar.
Óeðlilega mikil bleyta í lóð og opnar
regnvatnslagnir af þaki, eru var-
hugaverðar. Sé drenlögn við hús er
hún ein og sér ekki trygging gegn
lekavandamálum. Því er mikilvægt
að athuga lóðina og frágang regn-
vatnslagna vel. Ef halli er á lóð er
vert að athuga að sú hlið hússins
sem snýr upp í hallann er viðkvæm-
ari fyrir bleytu í jarðvegi. Ef þar er
kjallari eða niðurgrafin hæð þarf að
skoða útveggi vel.
AÐ INNAN
Aldur húss og viðhaldssaga Hér
skiptir aldur húss og viðhaldssaga
þess höfuðmáli. Hana ætti fast-
eignasali að þekkja. Sé viðhalds-
saga óþekkt er það ekki endilega
merki um skort á viðhaldi, en er þó
ástæða til að gæta enn meiri var-
úðar en ella.
Ástand veggja Í eldri húsum þarf að
skoða ástand veggja. Mygla þrífst
þar sem illa hefur verið loftað út.
Sjáanlegir blettir eða útfellingar á
útveggjum og lykt úr skápum við
útveggi eru tilefni til þess að skoða
ástand einangrunar og rakasperra
í þaki. Gott er að kippa húsgögnum
við útveggi aðeins frá og kanna
ástand þeirra. Sé grunur um myglu,
er það tilefni til þess að kalla til fag-
mann með mælingatæki áður en
lengra er haldið.
Gler Líftími glers er aðeins um 20
ár, sem rýrist frekar á veðurhliðum
húss. Sól fer líka illa með flest bygg-
ingarefni og því ástæða til að kanna
ástand glugga í sólríkri suðurátt.
Vatnslagnir Gefðu þér tíma til að at-
huga hvort bæði heitt og kalt vatn
flæði úr krönum með jöfnum og
nægilegum þrýstingi. Einnig hvort
sjáanlegur leki, gamall eða nýr, sé í
eldhúsi eða baði. Jafnframt er gott
að athuga ofna. Þegar fasteign er
skoðuð á hlýjum sumardegi er lík-
legt að allir ofnar séu kaldir, en þá
er hægt að setja krana á heitustu
stillingu og hlusta eftir vatnsflæði
og þreifa eftir hita efst á ofni.
Húsfélag Í fjölbýli er ráð að spyrja
um húsfélag, hvort samþykktir um
framkvæmdir séu í gildi og hvort
sameiginlegur sjóður sé til staðar. Í
fjölbýlishúsum eru vatns- og skolp-
lagnir að miklu leyti sameign og því
á ábyrgð húsfélagsins.
Nýjar eignir Ef um nýja eign er að
ræða, er vert að kynna sér hver sá
um byggingu hússins, hvort til séu
skýrslur eftirlitsaðila, hvort lokaút-
tekt hafi verið gerð og hvort ábyrgð
byggingastjóra sé enn í gildi. Mikið
hefur verið rætt um það í fjölmiðlum
undanfarin ár, að krafa um styttri
byggingatíma sé að valda því að
steypa sé klædd og einangruð
áður en hún nær að þorna almenni-
lega, og ekki sé vandað nægilega til
verka við einangrun og þaksmíðar.
Einhverjir gallar eru vissulega óum-
flýjanlegur fylgifiskur allra fram-
kvæmda. Þó að um smágalla sé að
ræða í flestum tilfellum skiptir máli
að hafa á hreinu hver ber ábyrgð
og hvernig staðið verði að viðgerð
á þeim. Vert er að taka fram að
lokaúttektir eiga að vera aðgengi-
legar hjá Mannvirkjastofnun.
Ítarlegri skoðun Þegar kauptilboð
er gert er alltaf hægt hafa í því
fyrirvara um enn ítarlegri skoðun,
ef ástæða þykir til. Eins og áður var
sagt ber fasteignasölum skylda til
að tryggja hagsmuni bæði kaup-
enda og seljenda. Þess vegna er
um að gera að láta fasteignasalann
vinna fyrir kaupinu sínu og spyrja
spurninga, sérstaklega þeirra
erfiðu!
FRÉTTIR 11DV 19. JÚNÍ 2020
MYND/EYÞÓR
MYND/ERNIR