Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2020, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2020, Síða 24
Hlaðvarpið HÁSKI kemur út á mánudögum á vef DV. Lumar þú á Lífsháskasögu? Sendu okkur endi- lega ábendingu á haskipodcast@gmail.com Ricky var ungur og áhyggjulaus þegar hann fór í afdrifaríka bílferð frá Adelaide til Port Hedland. Hann hafði keypt sér Mitsubishi Challenger og beið hans rúmlega 1.000 kílómetra ferð yfir óbyggðir Ástralíu. Ferðin gekk vel og þegar Ricky sá þrjá menn í vegar- kantinum standa yfir biluðum bíl þótti honum sjálfsagt að stöðva bíl sinn og bjóða fram aðstoð. Mennirnir voru hinir almennilegustu og var ákveð- ið að einn þeirra fengi far með Ricky að nálægum smábæ. Ricky bauð nýja ferðafélaga sínum svaladrykk úr kæliboxi í aftursætinu og þáði hann drykkinn með þökkum. Þeir spjölluðu um daginn og veg- inn og bað Ricky hann um að rétta sér eina dós úr aftursæt- inu þar sem hann var orðinn þyrstur. Saklaus ferðafélagi? Ricky fann fyrir yfirþyrm- andi þreytu og reyndi að halda augunum opnum. Það leið ekki á löngu þar til hann var orðinn svo sljór að hann gat ekki lengur stýrt bílnum. Við hlið hans sat ferðafélaginn og brosti, alveg áhyggjulaus yfir þessu öllu saman. Þennan dag var Ricky Me- gee rænt af mönnunum sem hann hafði boðið hjálp sína, þeir byrluðu honum ólyfjan í bílnum og næstu daga rank- aði Ricky aðeins nokkrum sinnum við sér til að drekka vatn og í því voru meiri lyf. Í þau fáu skipti sem hann var með meðvitund kallaði hann til mannanna að sleppa sér, að leyfa sér að fara, en aldrei bárust nein svör. Hvar eru skórnir mínir? Næst þegar Ricky vaknaði var allt dimmt, hann hreyfði fæturna og fann að hann var skólaus. Hann fann fyrir mold í andliti sínu og áttaði sig á að hann hafi verið grafinn lif- andi. Mennirnir höfðu grafið grunna gröf og hent honum ofan í hana. Ricky náði að klóra sig upp og við honum blasti allt annað landslag en það sem hann hafði keyrt eftir í byrjun ferðarinnar. Þetta var algjör auðn, þarna var ekkert. Berfættur, með engar vistir og ekki svo mikið sem vatnsdropa byrjaði Ricky Megee að ganga. Ferðin sem fram undan var er vægast sagt ótrúleg. Hvað ert þú tilbúinn að gera til að lifa af? Ricky var orðinn mjög sár- fættur og þyrstur. Þegar ljóst var að hann fyndi ekkert vatn og tekið var að blæða úr fótum hans endaði hann á að drekka þvagið úr sjálfum sér. Hann ákvað með sjálf- um sér að hann myndi gera hvað sem er til að lifa af. Eftir tvær vikur í óbyggðun- um fann Ricky uppistöðulón, yfirfullt af vatni, sem varð honum til lífs. Hann byggði sér skýli úr mold og borðaði gróðurinn í kringum stífluna. En líkami hans var veik- burða af hungri svo Ricky brá á það ráð að smakka hin ýmsu skordýr sem leyndust við stífluna. Hann veiddi froska, engisprettur, krybbur, eðlur, maura og síðast en ekki síst blóðsugur. Blóðsugurnar fundust hon- um bestar. Hann borðaði þær með jurtum sem hann nýtti sem bragðbæti. Hvaða dagur er í dag? Ricky barðist eins og ljón við að halda í sér lífinu, hann létt- ist hratt og þrátt fyrir tilraun- ir hans til að fá næringu, varð hann sífellt meira veikburða. Einn morguninn vaknaði hann með svo sáran verk í munninum að tárin runnu nið- ur kinnarnar. Ricky gat lítið annað gert en að athuga málið með fingrunum og var fljótur að átta sig á því að hann var með sýkta tönn og fóru næstu tveir tímarnir í að rífa hana úr með fingrunum og hreinsa út blóð og gröft. Eftir þetta átti hann enn erfiðara með að tyggja jurt- irnar og gróðurinn sem í kringum hann var og hætti hann að lokum að geta opnað munninn vegna verkja. Líkami hans var svo illa farinn að hann var hættur að geta gengið og lá bara inni í skýlinu sínu. Hvaða dagur var? Eftir því sem hann komst næst hafði hann verið þarna í 71 dag. Það er einhver að skipta um gír Inn í skýlið barst lágt vélar- hljóð en Ricky kippti sér ekki upp við það, hélt að hann væri bara að ímynda sér þetta. En eftir því sem hljóðið færðist nær þá fór hann að velta því fyrir sér hvort mögulega gæti verið bíll að nálgast. Ricky reisti sig við og þá heyrði hann það, hljóð sem hann þekkti, hljóð sem hann myndi aldrei gleyma. Það var einhver að skipta um gír. Adr- enalínið streymdi um æðar hans og náði hann að klöngr- ast út úr skýlinu og veifa höndunum í átt að bílnum. Mennirnir í bílnum hétu Bruce og Taz og voru vinnu- menn á kúabýli. Þeir sem betur fer sáu Ricky og furðu lostnir hjálpuðu þeir þessum undarlega manni inn í bílinn. Efasemdir lögreglunnar Keyrt var með Ricky á býlið þangað sem sjúkraflugvél kom að sækja hann. Áfallið sem hann fékk þegar hann sá sjálfan sig í spegli var gríðar- legt, hann var eins og beina- grind. Ricky hafði misst 60 kíló á þessum tíma og stóð hann þarna, 46 kíló og þekkti ekki sjálfan sig. Við komuna á spítalann undirgekkst hann margar rannsóknir sem komu allar vel út, líffæri hans voru í lagi og það eina sem amaði að var næringarskortur og mikið þyngdartap. Á hverjum degi borðaði Ricky um 12 litlar máltíðir á dag til þess að ná aftur upp þyngd. Lögreglan kom fljótlega og yfirheyrði hann og þar sem Ricky var á sakaskrá fyrir líkamsárás beindust spjótin fljótt að því að hann hefði verið að gera eitthvað ólög- legt og væri ekki að segja alla söguna. Ricky sór og sárt við lagði að hann segði sann- leikann, en lögreglan hóf aldrei leit að mönnunum sem rændu honum og gerði í raun mjög lítið úr frásögn Rickys og ýjaði að því að hann væri að búa þetta allt saman til. Læknar koma Ricky til varnar Tveir virtir læknar komu Ricky til varnar og skrifuðu greinargerðir sem studdu hans mál og fóru þeir þar vel yfir að það sem Ricky hefði lent í væri mjög raunverulegt og að hann hefði verið mjög nálægt dauða sínum þegar hann fannst. Fjölmiðlar gerðu sér mikinn mat úr þessu máli og umræð- an um Ricky Megee var á allra vörum. Ricky leið illa í sviðs- ljósinu og eftir að hann bætti á sig kílóum og útskrifaðist af spítala þá flutti hann og hvarf í fjöldann. Lögreglan fann aldrei ræn- ingjana, en bíllinn hans fannst mikið skemmdur og búið var að taka öll verðmæti úr hon- um. Ricky fór aftur á þessar slóðir með blaðamanninum Greg Mclean og skrifuðu þeir félagar bók um þessa stór- brotnu reynslu Rickys. Ricky er í dag hamingju- samlega giftur og hefur heilsa hans ekki liðið fyrir lífshásk- ann. n LÍFSHÁSKI Unnur Regína Gunnarsdóttir GRAFINN LIFANDI Á EINUM AFSKEKKTASTA STAÐ ÁSTRALÍU Ricky missti 60 kíló á 71 einum degi. Í dag er hann hraustur og hamingjusamlega giftur Kate Megee. SKJÁSKOT/FACEBOOK Hinn ástralski Ricky Megee óraði ekki fyrir að ævin­ týraferðin sem hann var á leið í yrði 71 dags barátta upp á líf og dauða. 24 FÓKUS 19. JÚNÍ 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.