Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2020, Page 28
28 MATUR 19. JÚNÍ 2020 DV
Una í eldhúsinu
Kjúklingabringur fylltar með rjómaosti og grænmeti
Fyrir 4
4 kjúklingabringur
Salt og pipar
Ólífuolía
30 g smjör
150 g brokkólí
½ paprika, gul
½ paprika, rauð
½ paprika, appelsínugul
10 sveppir
2 hvítlauksrif
Smábútur af fersku engiferi
150 g hvítlauksrjómaostur með
graslauk
½ dl rjómi
Byrjið á að setja ólífuolíu í eld-
fast mót og leggið kjúklingabring-
urnar ofan í mótið og kryddið með
salti og pipar. Setjið í ofninn á 200
gráður í um 30 mínútur.
Útbúið fyllinguna, fínsaxið græn-
metið, pressið hvítlauksrifin með
hvítlaukspressu og rífið niður
engiferbútinn á rifjárni. Steikið allt
grænmetið á pönnu með smjöri.
Þegar grænmetið er aðeins farið
að mýkjast er rjómaosturinn og
rjóminn settur út á pönnuna, hafið
lágan hita á hellunni og hrærið vel
í blöndunni þar til osturinn hefur
bráðnað.
Takið kjúklingabringurnar úr ofn-
inum og leyfið þeim aðeins að
kólna og jafna sig áður en þær eru
skornar endilangt og fyllingin sett
inn í. Gott er að loka bringunum svo
með tannstönglum.
Bringurnar eru svo settar aftur inn
í ofn í um 10-12 mínútur.
Sætar kartöflur með fersku rósmaríni
Sæt kartafla
Ferskt rósmarín
Salt og pipar
Skerið sæta kartöflu í meðalþykkar
sneiðar, setjið í eldfast mót með
olíu og kryddið með salti og pipar.
Setjið í ofn við 200 gráður í um 30
mínútur, takið svo kartöflurnar úr
ofninum og leggið ferskar rósmar-
íngreinar yfir og leyfið að vera í um
10 mínútur í ofninum til viðbótar.
Mjög gott er að bera þetta fram
saman, leggja kjúklingabringurnar
ofan á kartöflurnar og um að gera
að nota restina af fyllingunni sem
meðlæti með.
Una Guðmundsdóttir, matgæð-
ingur DV, er í miklum ham þessa
dagana. Afraksturinn er virkilega
girnilegt föstudagsgúmmelaði
sem fjölskyldan elskar.
MYNDIR/AÐSENDAR