Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2020, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2020, Page 32
32 FÓKUS 19. JÚNÍ 2020 DV Við hvetjum lesendur til að senda spurningar og vangaveltur sínar til Kristínar í tölvupósti á: hjonabandssaela@gmail.com. Spurningunum verður svo svarað hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf- sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði. Fjölskylduhornið Sérfræðingur svarar Kristín Tómasdóttir, hjónabandsráðgjafi svarar spurningum lesenda um málefni er varða fjölskylduna, börnin og ástina í Fjölskylduhorni DV. Í þessari viku tekur Kristín fyrir hvernig kynda megi undir rómantíkinni á heimilinu. ÞAÐ SEM ER ÓVENJULEGT EÐA ÓLJÓST GETUR KVEIKT NEISTANN M aðurinn minn er steinaldarmaður! Hann er frábær faðir og virkilega góður við okkur öll, en áttar sig ekki á mikil- vægi þess að halda neistan- um við í sambandinu. Hann spyr mig alltaf hvað ég vilji í jóla- og afmælisgjafir og virðist engan veginn skilja að blómvöndur, smá „surprise“ eða einlæg skilaboð myndu breyta miklu fyrir mig. Geta menn lært rómans??? Tjáning borgar sig Sæl. Takk fyrir góða spurn- ingu. Stutta svarið er já. Þú getur kennt manninum þínum hvaða merkingu þú leggur í rómans og hvað þú sérð fyrir þér til þess að halda neist- anum í sambandinu. Ef þú vilt að ég taki hann í kennslu væri það sennilega ekki væn- legt til heilla. Langa svarið er alltaf að tjáning borgar sig. Hvernig líður þér og hvað þarftu? Þér líður eins og neistinn sé að slokkna og þú þarft meiri rómantík. Hvernig líður manninum þínum með það og hvað þarf hann? Þetta eru voldugar spurningar. Svo er vert að hafa í huga að það er afar ólíkt hvað fólk upplifir sem rómantík og sömuleiðis að það er hægt að halda neistanum í sam- bandinu gangandi án þess að rómantík komi þar við sögu. Skrítið? Tveir verða einn Í sumum ástarsamböndum byggir neistinn á losta, nánd, ástríðu, eða blöndu af þessu öllu saman. Í þínu sambandi þarftu meiri rómantík til þess að halda glóðunum heitum. Þegar fólk er spurt hve- nær það laðast mest að maka sínum þá eru svörin að sjálf- sögðu misjöfn, en þau eiga það mörg hver sammerkt að þau tengjast óvissu eða ein- hverju sem myndar fjarlægð. Nokkuð sem hljómar þver- sagnakennt því í ástarsam- bandi felst skuldbinding, þar sem báðir aðilar vilja tilheyra og finna fyrir því að þeir séu teymi. Tveir verða einn. Margir nefna að þeir laðist helst að maka sínum þegar makinn geislar. Í því felst að makinn er glaður og öruggur, en það liggur ekki endilega fyrir hvers vegna. Það er eitthvað dulið á bak við þessa orðnotkun. Þá nefna margir að þegar makinn er í burtu þá er þráin eftir viðkomandi hvað mest. Nokkuð ljóst að það sem er ekki til staðar er eftirsóknarvert. Sumir segja líka að þegar makinn kemur þér á óvart verði hann / hún meira aðlaðandi. Allt sem er óljóst, óvenjulegt eða öðru- vísi. Öryggiskenndin mikilvæg Þú nefnir að maðurinn þinn spyrji þig alltaf hvað þig langar í og að fyrir vikið sé hann steinaldarmaður sem kunni ekki að halda neist- anum gangandi. Það gæti einmitt orsakast af því að þú þráir að hann sé pínu dulur og ekki eins og opin bók. Ég leyfi mér að giska á að hann sé einmitt upptekin af því að hafa allt uppi á borðum og spyrji þig fyrir vikið hvað þú viljir í afmælisgjöf, til að veita sér og þér öryggis- kennd. Fyrir honum er rómantík sennilega eitthvað allt annað en óvissa. Getur verið að honum finnst rómantík ekki mælast í blómvöndum? Ég er alls ekki að dæma þig, ég vil heldur benda þér á að þú þráir að þrá mann- inn þinn meira. Til þess gæti hann þurft að vita hvað liggur þar að baki, að það sé gott að vita af öryggi hans, en þér þætti vænt um meiri spennu. Þar er hægt að leika sér og gætir þú jafnvel sýnt fordæmi á þessu sviði gagn- vart honum. n MYND/GETTY Þegar fólk er spurt hvenær það laðast mest að maka sínum þá eru svörin að sjálf- sögðu misjöfn en þau eiga það mörg hver sammerkt að þau tengjast óvissu, eða ein- hverju sem myndar fjarlægð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.