Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2020, Qupperneq 36
36 STJÖRNUFRÉTTIR 19. JÚNÍ 2020 DV
Jackson Blue
og Maria Bello.
Ella Bleu og
John Travolta.
Blue Ivy er ekki síðri
tískufyrirmynd en
foreldrar hennar.
í Hollywood
Ofurstjörnuhjónin Beyonce og Jay-Z eiga eins og þekkt er þrjú börn; tvíburana Rumi og Sir sem eru nýorðin þriggja ára
og Blue Ivy sem er átta. Nöfn barnanna eru í
sérstakari kantinum og það vakti mikla athygli
þegar Blue Ivy var skírð árið 2012, en það er
gaman að segja frá því að Beyonce og Jay-Z
eru ekki einu stjörnurnar með dálæti á bláum.
Sonur Cher heitir Elijah Blue, en hann eignað-
ist gyðjan með tónlistarmanninum Gregg All-
man árið 1976. Þrettán árum síðar, árið 1989,
fæddist svo Blue Angel sem er dóttir The Edge,
gítarleikara U2.
Árið 2000 fæddist leikarahjónunum John Tra-
volta og Kelly Preston dóttir sem hlaut nafnið
Ella Bleu. Ári síðar fæddist Bear Blu, sonur
leikkonunnar Aliciu Silverstone, og Jackson
Blue sonur leikkonunnar Mariu Bello fæddist
sama ár.
Poison-söngvarinn Bret Michaels eignaðist
son með eiginkonu sinni árið 2005, sem heitir
Jorja Bleu Sychak.
Kryddstúlkan Geri Halliwell kom svo grjót-
hörð inn í baráttuna árið 2006, þegar hún
splæsti í dýrari týpuna og lét skíra dóttur
sína Bluebell Madonna. Við bíðum spennt eftir
næsta nafni í hinni æsispennandi blá-barna-
nafnaseríu fræga fólksins. n
BLÁU BÖRNIN
Bear Blu
í fanginu
á mömmu
sinni.
Elijah Blue
ásamt móður
sinni Cher.
Jorja Bleu með
fjölskyldunni.
Bluebell Madonna
og Ginger Spice.
Blue Angel með
pabba sínum.
Hollywood-stjörnurnar
eru frægar fyrir margt
annað og meira en hæfi-
leika sína og fegurð. Eru
undarleg barnanöfn þar
ofarlega á lista.
MYNDIR/GETTY