Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2020, Qupperneq 4
4 21. febrúar 2020FRÉTTIR
Örmagna í verkfalli
Þ
ar kom að því. Nú hefur þeim sem með
völdin fara í þessari höfuðborg okkar
Íslendinga endanlega tekist að ganga
fram af Svarthöfða. Braggamálið? Það
var ekki svo slæmt. Svarthöfði naut þess að
rökræða málin fram og til baka í pönnuköku-
boðum hjá nákomnum. Bílastæðavandinn,
göngugötur og framkvæmdir í miðbæn-
um? Svarthöfða var alveg sama enda hann
og flestir aðrir Íslendingar löngu hættir að
nenna að olnboga sig framhjá ferðamönn-
um í miðbænum til að standa í langri röð til
að borga alltof mikið fyrir ósköp óspennandi
kaffibolla.
Það sem hins vegar gerði útslagið, og
Svarthöfði mun seint fyrirgefa, er þetta
blessaða verkfall. Þeir geta tekið bílastæðin
frá Svarthöfða, þeir geta ráðstafað útsvari
hans í dýran minnisvarða um hvernig fá-
tækrahverfin litu út á árum áður, en þeir geta
hins vegar ekki ætlast til að Svarthöfði sitji
heima með afkvæmunum daginn út og
daginn inn.
Hver einasti dagur er nú eins og laugar-
dagur á heimili Svarthöfða. Afkvæmin að
drepast úr leiðindum og foreldrarnir að drep-
ast úr samviskubiti vegna tapaðra vinnu-
stunda. Nú gætu einhverjir eflaust spurt: Já,
en Svarthöfði, af hverju ekki að njóta sam-
vista við börnin og gera
það besta úr þessu? Pff!
Svarthöfði er búinn að
því. Það er búið að
fara í kvikmynda-
hús, út á róló, í
göngutúr, í Húsdýragarðinn, ísbíltúr og búið
að horfa á alla þætti af Hvolpasveit svo oft
að Svarthöfði er fyrir lifandis löngu búinn
að glata tölunni. Leikskólabörn þurfa örvun,
rútínu og dagskrá, og Svarthöfðar þurfa sam-
skipti við fólk sem kann að margfalda og deila.
Þetta ástand er ólíðanlegt, bæði fyrir börn og
foreldra. Nú þarf borgin að girða sig í brók
og ganga frá samningum. Ef ekki þá mætir
Svarthöfði í ráðhúsið á mánudaginn og skil-
ur afkvæmin þar eftir, ef hann finnur stæði,
og mun ekki sækja þau aftur fyrr en leikskól-
arnir geta hafið eðlilega starfsemi að nýju. Þá
geta þessir vitleysingar í ráðhúsinu kynnst
því sjálfir hvernig það er að sinna börnum
heilan vinnudag. Þá væru þeir líklega fljótir
til að hækka launin hjá starfsmönnum leik-
skólanna.
Og Dagur B. fær síðan persónulega reikn-
inginn frá lækninum vegna þeirra geðlyfja
sem Svarthöfði þarf að fara á til að losna við
upphafsstefið úr Hvolpasveit af heilanum.
Því eins og allir vita þá ber Dagur persónu-
lega ábyrgð á öllu því sem miður fer þar sem
Reykjavík kemur við sögu. n
Svarthöfði
Það er
staðreynd að…
Rithöfundurinn William Shakespeare
fann upp á nafninu Jessica.
Á Bretlandi er Elísabet II eina
manneskjan sem má löglega keyra án
ökuskírteinis.
Geimfarinn Buzz Aldrin var fyrsta
manneskjan til að kasta af sér
þvagi á tunglinu.
Hægt er að finna lykt af skunki
úr tæplega tveggja kílómetra
fjarlægð.
Til eru skór með GPS-sóla sem virkj-
ast með því að slá saman hælunum
þrisvar, rétt eins og Dórótea gerði í
Galdrakarlinum í Oz.
Hver er
hann
n Hann er fæddur
árið 1938.
n Hann var leik-
tjaldahönnuður hjá
Þjóðleikhúsinu og fleiri
leikhúsum á árunum 1966–1980.
n Hann stundaði nám í grafík
við Institut del Llibre og sem
gestanemandi við Beaux Arts í
París árið 1960.
n Hann var valinn heiðurslista-
maður Kópavogs árið 2007.
n Hann átti um margra ára
skeið Íslandsmet fyrir stærsta
málverkið.
SVAR: BALTASAR SAMPER
„Ég vil að þeir fari í fangelsi“
n Hópnauðgun á íslenskri stúlku hefur vakið mikinn óhug á Krít
n Skildu stúlkuna eftir á víðavangi og sögðu: „Thank you for your time“
N
auðgun á 19 ára
íslenskri stúlku er enn
til rannsóknar hjá
yfirvöldum í Heraklion
á Krít. Málið er á borði
saksóknaraembættisins. Tveir
Þjóðverjar af arabískum uppruna
eru ákærðir fyrir verknaðinn.
Stúlkan flaug til Krítar í nóvember
síðastliðnum til að gefa frekari
vitnisburð í málinu. Málið hefur
vakið mikinn óhug á meðal íbúa
Hersonissos. DV greindi fyrst
íslenskra miðla frá málinu í júní
síðastliðnum. Fjölmargir grískir
fjölmiðlar greindu einnig frá
málinu.
„Með tár í augum“
Síðustu ár hafa sífellt fleiri
Íslendingar lagt leið sína til
Hersonissos, sem er orðinn
einn stærsti og vinsælasti
ferðamannabærinn á Krít. Stúlkan
var stödd í fríi á Hersonissos
þann 13. júní síðastliðinn í
útskrifarferð menntaskólanema.
Var hún að skemmta sér á bar í
bænum og hitti þar mennina tvo
frá Þýskalandi. Kemur fram að
mennirnir tveir hafi einnig verið
staddir í fríi á Krít. Annar þeirra er
sagður vera 34 ára gamall en hinn
38 ára.
Samkvæmt málsgögnum
drógu mennirnir tveir stúlkuna út
af barnum seinna um kvöldið. Á
fréttavefnum Matrix kemur fram
að árásin hafi átt sér stað í dimmu
húsasundi og að mennirnir
tveir hafi nauðgað stúlkunni
„margsinnis“. Þeir flúðu því næst
af vettvangi. Stúlkan leitaði á
sjúkrahús í kjölfarið.
Lögreglan er sögð hafa
brugðist afar skjótt við og leiddi
það til þess að mennirnir tveir
fundust og voru handteknir
aðeins nokkrum klukkustundum
síðar. Stuttu eftir að mennirnir
voru handteknir bar stúlkan
kennsl á þá á lögreglustöðinni
„með tár í augum“.
Stúlkan gekkst undir
læknisskoðun á sjúkrahúsi og
kemur fram að læknir hafi meðal
annars fundið smápeninga
og peningaseðil í leggöngum
hennar. Þá kemur fram að
erfitt hafi reynst að finna lífsýni
á líkama stúlkunnar. Ekkert
sæði fannst við skoðunina en
að sögn stúlkunnar notuðu
árásarmennirnir smokk.
Fram kom í fréttum í júní
síðastliðnum að mennirnir
neituðu báðir sök í málinu.
Við yfirheyrslur
sögðust þeir
aldrei hafa
hitt stúlkuna
áður. Þeir
voru
úrskurðaðir í gæsluvarðhald.
„Ég vil að þeir fari í fangelsi“
Grískir fjölmiðlar greindu frá
því í nóvember síðastliðnum að
rannsókn á málinu stæði enn
yfir. Fram kemur að stúlkan hefði
nýlega flogið til Krítar ásamt
foreldrum sínum til að gefa
frekari vitnisburð. Kemur fram að
stúlkan hafi verið afar staðföst í
framburði sínum og viss um sekt
mannanna tveggja. Hún fari fram
á bætur frá mönnunum. „Ég vil
að þeir fari í fangelsi,“ sagði hún
við yfirheyrslur.
Að sögn heimildarmanns
lögreglu og samkvæmt
vitnisburði stúlkunnar sjálfrar
settu mennirnir smápeninga inn
í leggöng hennar í þeim tilgangi
að niðurlægja hana, líkt og hún
væri sjálfsali sem væri að taka við
greiðslu fyrir verknaðinn.
Við skýrslutökur lýsir stúlkan
því þannig að annar
mannanna hafi verið
hávaxinn og dökkur
með skegg en hinn
hafi verið lágvaxnari.
Sagði hún lágvaxna
manninn hafa haldið
henni niðri á meðan
hinn braut á henni.
„Ég reyndi að
streitast á móti, en
ég kom ekki upp
öskri af því
að ég var í
sjokki.“
Þá sagði stúlkan að eftir að
mennirnir hefðu lokið sér af hefði
sá hávaxni sagt við hana á ensku:
„Thank you for your time.“
Við skýrslutöku sagði stúlkan
að mennirnir hefðu skilið hana
eftir og hún hefði ekki haft
hugmynd um hvar hún var. „Ég
var ekki með úr. Ég var með
símann minn á mér en það var
slökkt á honum af því að hann
var batteríslaus Ég var einhvers
staðar úti á víðavangi, ég var að
reyna að finna hótelið en ég fann
það ekki.“
Þá tjáði stúlkan lögreglu að
hún hefði farið inn á annað hótel
í grenndinni og þar hefði hún
komist að því að aðskotahlutir
hefðu verið skildir eftir í
leggöngum hennar. Sagðist hún
hafa verið kvalin. Starfsmenn
hótelsins hefðu hringt á leigubíl
fyrir hana sem síðan flutti
hana á sjúkrahús. Starfsfólk
sjúkrahússins hefði í kjölfarið
haft samband við hótelið þar sem
stúlkan dvaldi.
Fram kemur að mennirnir tveir
sem grunaðir eru um verknaðinn
neiti alfarið sök. Þeir hafa áfrýjað
gæsluvarðhaldsúrskurði án
árangurs. Í grein sem birtist á
fréttavefnum Flashnews kemur
fram að málið hafi vakið mikinn
óhug. Lýsingar á verknaðinum
séu mun hrottalegri en áður hafa
sést í nauðgunarmálum þar um
slóðir. n