Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2020, Page 17
FÓKUS 1721. febrúar 2020
komu í heimsókn og þau fóru
saman út að borða var Brynhildur
að eigin sögn svo ánægð að fá
loksins almennilegan mat að það
lá við að hún gréti af gleði.
Komst strax inn í bransann
Ófáir eru þeir íslensku leikarar
sem reynt hafa fyrir sér árangurs
laust í leikhúborginni London en
svo bar við rétt fyrir jól að ung ís
lensk leikkona steig á fjalir Oli
ver sviðsins i sjálfu þjóðleikhúsi
Breta á suðurbakka Thamesár.
Þetta er Brynhildur Guðjónsdóttir
sem kallar sig Inku Magnusson og
lauk námi við Guildhall School of
Music and Drama síðastliðið vor.
Þannig hófst grein sem birtist
í DV janúar árið 1999 en þar var
rætt við Brynhildi sem hafði land-
að hlutverki Skellibjöllu (Tinker-
bell) í uppsetningu Breska þjóð-
leikhússins á Pétri Pan.
„Ég fer í prufur þegar ég er laus
hér og lifi bara einn dag í einu. Mér
hefur gengið vonum framar síð-
an ég lauk námi í júní í sumar. Þá
fékk ég hlutverk í Gate-leikhúsinu
og svo þetta strax á eftir. Ég fékk
líka tilboð frá Konunglega Shake-
speare-leikhúsinu um tvö hlut-
verk og níu mánaða starf en valdi
Þjóðleikhúsið af ýmsum ástæð-
um, bæði hef ég mikið dálæti á
Pétri Pan og hef elskað Tinkerbell
frá því ég var barn,“ sagði Bryn-
hildur.
Það sama ár kom Brynhildur
heim og tók þátt í uppsetningu
Þjóðleikhússins á söngleiknum
Rent. „Ég leik Mímí sem er ofsa-
lega tragískur karakter. Þetta er
sextán, sautján ára stelpa sem er
með eyðniveiruna, háð krakki
og vinnur fyrir sér sem dansari
á sadó-masóklúbbi,“ sagði hún í
samtali við DV á sínum tíma. Bryn-
hildur viðurkenndi jafnframt í við-
talinu en henni fyndist ákveðnir
söngleikir mjög skemmtilegir en
Andrew Loyd Webber þætti henni
„alveg ofsalega leiðinlegur.“
Í nóvember þetta ár birtist við-
tal við Brynhildi og þáverandi
mann hennar, Atla Rafn Sigurðs-
son leikara, í Morgunblaðinu.
Brynhildur lýsti þar meðal annars
spennunni og taugatitringnum
sem myndast áður en leikarinn
fer inn á sviðið.
„Hjá mér er þetta þannig að
ég fer að svitna um leið og ég finn
hvernig adrenalínið pumpast út
í líkamann, lófarnir verða þval
ir og sjáöldrin þanin! Þetta ger
ist fyrir hverja einustu sýningu en
fer eftir því hver ábyrgðin er í sýn
ingunni.“
Þá sagðist hún ekki finna fyrir
pressu varðandi útlitið eins og
sumir leikarar. „Það tekur alla-
vega ekki milda orku frá mér að
halda mér til. Ég er eins og ég er
og vonandi boðleg fyrir það sem
ég er að gera.“ Þá sagðist hún
einkum nota frístundirnar til að
„ræka sambandið við fjölskyldu
og vini. Þá kom fram að hún not-
aði frönskukunnáttuna einkum
til að lesa bækur „og aftan á vín-
flöskur.“
Sló í gegn sem Edith Piaf
Brynhildur var fastráðin við Þjóð-
leikhúsið á árunum 1999 til 2011,
áður en hún fór yfir í Borgar-
leikhúsið. Hlutverk Brynhildar á
íslensku leiksviði eru nú komin á
þriðja tuginn. Hún sló rækilega í
gegn þegar hún fór með titilhlut-
verkið í uppsetningu Þjóðleik-
hússins á Edith Piaf árið 2004.
Brynhildur, sem þá var 32 ára
gömul, lék söngkonuna ástsælu á
öllum ævistigum, allt frá því hún
var barn og þar til hún lést.
„Brynhildur Guðjónsdóttir
hefur sungið sig inn í hug og
hjörtu landsmanna með túlk
un sinni á Edith Piaf. Dökk yfir
litum, lágvaxin og grönn leik
konan er með ótrúlega stóra og
breiða rödd. Gagnrýnendur sem
og áhorfendur hafa keppst við að
lofa frammistöðu Brynhildar og
þykir engu líkara en goðsögnin
Piaf hafi endurholdgast á sviðinu
í meðförum hennar. Það kemur
því verulega á óvart að leikkonan
hefur aldrei lært söng,“ kom fram
í grein Ský á sínum tíma.
Árið 2004 var Brynhildur ein
af sex þjóðþekktum Íslendingum
sem tóku þátt í verkefni á vegum
Samtaka iðnaðarins sem gekk út
á að kynna íslenska tísku. Hver og
einn af þátttakendum vann með
teymi fagmanna og var afrakstur-
inn kynntur í tímariti Morgun-
blaðsins.
Brynhildi Guðjónsdóttur
leikkonu fannst sjálfsagt að
leggja íslenskum fagmönnum á
sviði tískunnar lið. „Erlendis hef
ur það lengi vel tíðkast að leikar
ar séu í samvinnu við þekkt tísku
hús, þótt hér á landi sé ekki hefð
fyrir slíku,“ segir Brynhildur sem
hefur ákveðnar skoðanir á fötum.
„Föt geta breytt fólki og haft ótrú
leg áhrif á vaxtarlagið þar sem
flott hönnun getur dregið fram
það fallega sem manneskjan
vill undirstrika. Svo er náttúru
lega alltaf hægt að klæða sig eft
ir skapi og föt geta verið ákveðin
yfirlýsing. Ég hef mjög gaman af
fallegum fötum og hef gaman af
því að klæða mig upp á. En fata
stíll minn frá degi til dags ein
kennist frekar af þægindum en
yfirlýsingum svona almennt séð,
þar sem ég er mikið í gallabux
um og bol,“ segir hún en kveðst
þó vita að það sé ekkert ægilega
smart.
Þetta var ekki í fyrsta skipti
sem Brynhildur ræddi um tísku
og fatnað í viðtali, því árið 2003
ræddi hún við Fréttablaðið og
meðal annars um skó sem voru
í miklu uppáhaldi. Þar ljóstraði
hún því upp að væri með einstak-
lega smáa fætur.
Ég á skó sem eru algjörlega
guðdómlegir. Þeir eru skærbleikir
með háum og mjóum hæl, úr
rúskinni, opnir í tána og með
bleiku blómi. Þeir eru númer 35
og þar af leiðandi á við meðal
gemsa. Ég er algjör Öskubuska
í þeim. Þeir nýtast mér ekki sem
skyldi í íslenskri veðráttu en ég
tók mig út eins og prinsessa í
brúðkaupi í London í 35 stiga
hita á vel hirtum krikketvelli.
Þeir henta vel á þannig samkom
um. En eins og vænta má af
alvöru Öskubuskuskóm endist
maður ekki lengur í þeim en til
tólf á miðnætti, fæturnir þola
ekki meira.“
Brynhildur segir það ekki
algengt að finna skó hér á landi
sem smellpassa svona á hana.
„Ég keypti þessa í Flex í Banka
stræti í sumar. Þeir stóðu uppi í
glugga og kölluðu svo hátt í mig.
Ég sneri mér við til að athuga
hver væri að hrópa og þarna
stóðu þeir og biðu. Það er gjarn
an þannig með skó,“ segir Bryn
hildur og viðurkennir fúslega
að vera með skóáráttu. „En það
þarf ekkert að lækna svoleiðis, ég
get lifað nánast eðlilegu lífi með
þessu.“ Brynhildur segist þó ekki
safna skóm en að kannski geri
hún það seinna ef fjárráð leyfa. „Í
dag á ég fáa en sérstaka skó.“
Í janúar 2005 var Brynhildur
tekin fyrir í liðnum „Kostir og
Gallar“ í DV. Fram kom að kostir
Brynhildar væru þeir að hún væri
„sterk leikkona, hæfileikarík og
metnaðargjörn.“
Hún er ákveðin og víðsýn,
finnur nýjar hliðar á öllum mál
um og kann að nálgast hluti svo
hún geti unnið með þá. Hún legg
ur sig alla fram við það sem hún
tekur sér fyrir hendur og er glað
leg og skemmtileg.
Gallar Brynhildar voru sagðir
Framhald á síðu 18