Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2020, Blaðsíða 25
Sérblað21. febrúar 2020 KYNNINGARBLAÐ
GNÁ SPRAUTUN:
Sprautulökkun er svarið sem
þú hefur verið að leita að!
Er eldhúsinnréttingin orðin lúin? Dreymir þig um að skipta út gömlu, dimmu
viðarinnréttingunni fyrir bjart
og fallegt nútímaeldhús? Það
getur verið gífurlega tímafrekt,
kostnaðarsamt og satt að segja
alls ekki svo umhverfisvænt að
skipta út heilli eldhúsinnréttingu,
sérstaklega ef hún gerir ennþá
sitt gagn. Sprautulökkun er afar
hagkvæm og einföld leið til þess að
gefa lúinni eldhúsinnréttingu eða
gömlum viðarhúsgögnum alveg
nýtt líf á verði sem er brotabrot af
því sem kostar að kaupa nýtt. „Það
má segja að þeir sem láta sprauta
heila eldhúsinnréttingu og skipta um
borðplötu í leiðinni, eyði að meðaltali
ekki nema 20–25% af því sem hefði
kostað að kaupa allt nýtt,“ segir
Garðar Hreinsson hjá Gná Sprautun.
Lakka hvað sem er
„Við hjá Gná Sprautun höfum
sérhæft okkur í innréttingum
verslana en bjóðum samhliða upp
á sprautulökkun fyrir húsgögn,
innréttingar, hurðir, og í raun hvað
sem er, nema málm.“ Lökkunin fer
fram á verkstæðinu hjá Gná í rykfríu
og loftræstu rými. Allajafna tekur
ekki nema um 5–6 daga að sprauta
eldhúsinnréttingu. Þá býður Gná
enn fremur upp á þá þjónustu að
sækja það sem á að lakka innan
höfuðborgarsvæðisins, ef fólk hefur
ekki tök á að koma sjálft.
Alveg eins og nýtt á mettíma!
„Við notum eingöngu sýruhert
gæðalakk frá Hegas sem er
langstærsti söluaðili í húsgagnalakki
á Íslandi. Við getum boðið
viðskiptavinum okkar upp á
alla regnbogans liti sem og
mismunandi áferð allt eftir smekk
viðskiptavinarins. Við erum með allar
gerðir af gljástigi frá alveg möttu
yfir í háglans. Einnig erum við með
strúktúrlakk með sandi sem gefur
mjög skemmtilega, grófa áferð. Eftir
sprautun er eins og maður sé kominn
með alveg glænýja innréttingu og
þetta tekur ekki nema fimm daga
sem er gríðarlegur kostur.“
Nánari upplýsingar má finna á
Facebook-síðunni: Gná Sprautun
Sími: 894-7200
Tölvupóstur: gardar.hreinsson@
gmail.com