Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2020, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2020, Qupperneq 25
Sérblað21. febrúar 2020 KYNNINGARBLAÐ GNÁ SPRAUTUN: Sprautulökkun er svarið sem þú hefur verið að leita að! Er eldhúsinnréttingin orðin lúin? Dreymir þig um að skipta út gömlu, dimmu viðarinnréttingunni fyrir bjart og fallegt nútímaeldhús? Það getur verið gífurlega tímafrekt, kostnaðarsamt og satt að segja alls ekki svo umhverfisvænt að skipta út heilli eldhúsinnréttingu, sérstaklega ef hún gerir ennþá sitt gagn. Sprautulökkun er afar hagkvæm og einföld leið til þess að gefa lúinni eldhúsinnréttingu eða gömlum viðarhúsgögnum alveg nýtt líf á verði sem er brotabrot af því sem kostar að kaupa nýtt. „Það má segja að þeir sem láta sprauta heila eldhúsinnréttingu og skipta um borðplötu í leiðinni, eyði að meðaltali ekki nema 20–25% af því sem hefði kostað að kaupa allt nýtt,“ segir Garðar Hreinsson hjá Gná Sprautun. Lakka hvað sem er „Við hjá Gná Sprautun höfum sérhæft okkur í innréttingum verslana en bjóðum samhliða upp á sprautulökkun fyrir húsgögn, innréttingar, hurðir, og í raun hvað sem er, nema málm.“ Lökkunin fer fram á verkstæðinu hjá Gná í rykfríu og loftræstu rými. Allajafna tekur ekki nema um 5–6 daga að sprauta eldhúsinnréttingu. Þá býður Gná enn fremur upp á þá þjónustu að sækja það sem á að lakka innan höfuðborgarsvæðisins, ef fólk hefur ekki tök á að koma sjálft. Alveg eins og nýtt á mettíma! „Við notum eingöngu sýruhert gæðalakk frá Hegas sem er langstærsti söluaðili í húsgagnalakki á Íslandi. Við getum boðið viðskiptavinum okkar upp á alla regnbogans liti sem og mismunandi áferð allt eftir smekk viðskiptavinarins. Við erum með allar gerðir af gljástigi frá alveg möttu yfir í háglans. Einnig erum við með strúktúrlakk með sandi sem gefur mjög skemmtilega, grófa áferð. Eftir sprautun er eins og maður sé kominn með alveg glænýja innréttingu og þetta tekur ekki nema fimm daga sem er gríðarlegur kostur.“ Nánari upplýsingar má finna á Facebook-síðunni: Gná Sprautun Sími: 894-7200 Tölvupóstur: gardar.hreinsson@ gmail.com

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.