Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2020, Page 35

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2020, Page 35
SAKAMÁL 3521. febrúar 2020 LÍFIÐ ER ENGINN LEIKUR – ÞAÐ ER DAUÐANS ALVARA n Brynn dreymdi um frægð og frama n Vegferðin á toppinn reyndist torsótt n Sat eftir þegar eiginmaður hennar baðaði sig í sviðsljósinu Fjölskyld- an Börnin voru heima þegar Brynn greip til byssunnar. Skemmtikraftur Phil var á hátindi ferils síns þegar hann var myrtur. M arcus Lyon, bóndi í Bandaríkjunum, fannst látinn á á vegi skammt frá bænum Wilbraham í Hampden-sýslu í Massachusetts í nóvember árið 1805. Um svipað leyti höfðu tveir Írar, Dominic Daly og James Halligan, átt leið um svæðið á leið til New Haven í Connecticut. Þegar spurðist um ferðir Íranna hófst að þeim leit og þann 12. nóvember höfðu laganna verðir hendur í hári tvímenninganna í borginn Northampton í Hampshire-sýslu. Þar var þeim umsvifalaust komið fyrir bak við lás og slá og þeir ákærðir fyrir morð og rán, en sá sem átti heiðurinn af handtökunni fékk í verðlaun 500 dali. Bandamaður utan fangelsis Dominic og James sóru og sárt við lögðu að þeir hefðu ekki komið nálægt morðinu á Marcus Lyon. Yfirvöld töldu sig þó ekki þurfa frekari vitna við því þeir voru með öllu ókunnugir á svæðinu og Írar í þokkabót. Dominic og James þurftu að dúsa í fangelsi næsta hálfa árið, eða svo gott sem, var neitað um lausn gegn tryggingu og ráðgjöf lögfræðings. Írsku ólánsmennirnir áttu þó einn bandamann utan fangelsisins, séra Jean- Louis Lefebvre de Cheverus, biskup kaþólskra í Boston. Írskir og kaþólskir Tveimur sólarhringum áður en réttarhöld hófust yfir Dominic og James fengu þeir að hitta lögfræðing, í byrjun júní árið 1806. Að sögn var nokkuð ljóst að íbúar Northampton deildu áliti ákæruvaldsins um sekt þeirra þegar réttarhöld hófust, Dominic og James voru írskir, kaþólskrar trúar og farandverkamenn eða flakkar- ar, frekari sannanir þurfti ekki. Við réttarhöldin höfðu þeir, kannski eðlilega, fátt fram að færa sem staðfest gæti sakleysi þeirra og voru réttarhöldin stutt, í orðsins fyllstu merkingu. Heilar fimm mínútur Félagarnir fengu fimm mínútna, „sanngjörn“ réttarhöld, því ekki tók lengri tíma að leiða málið til lykta. Sennilega hefur kviðdómur rétt fengið tíma til að segja sitt. Þann 5. júní, 1806, voru Dominic Daly og James Halligan hengdir í Northampton og ljóst að viðburðurinn trekkti vel. Um 15.000 manns fylgdust með aftökunni. Síðar var það mat manna að eiginlegar sannanir hefðu verið svo rýrar í roðinu að varla hefði verið ástæða til að ákæra Dominic og James yfirhöfuð. Uppreisn æru Séra Jean-Louis Lefebvre de Cheverus lagði sig allan fram, og jafnvel í hættu, í viðleitni til að koma í veg fyrir aftökuna, en hafði ekki erindi sem erfiði. Áður hafði hann veitt þeim sakramenti í fangaklefa þeirra og er talið að það hafi verið í fyrsta skipti sem þjónusta að kaþólskum hætti var veitt í Northampton. Á degi heilags Patreks árið 1984 sýknaði ríkisstjóri Massachusetts, Michael Dukakis, Dominic Daly og James Halligan af þeirri sök sem þeir voru hengdir fyrir. n Fimm mínútna, „sanngjörn“ réttarhöld Jean-Louis Lefebvre de Cheverus biskup Lagði sig í líma við að bjarga Írunum tveimur frá gálganum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.