Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2020, Síða 35
SAKAMÁL 3521. febrúar 2020
LÍFIÐ ER ENGINN LEIKUR – ÞAÐ ER DAUÐANS ALVARA
n Brynn dreymdi um frægð og frama n Vegferðin á toppinn reyndist torsótt n Sat eftir þegar eiginmaður hennar baðaði sig í sviðsljósinu
Fjölskyld-
an Börnin
voru heima
þegar Brynn
greip til
byssunnar.
Skemmtikraftur Phil var á hátindi
ferils síns þegar hann var myrtur.
M
arcus Lyon, bóndi í Bandaríkjunum, fannst látinn á á vegi skammt frá
bænum Wilbraham í Hampden-sýslu í Massachusetts í nóvember árið
1805.
Um svipað leyti höfðu tveir Írar, Dominic Daly og James Halligan, átt
leið um svæðið á leið til New Haven í Connecticut.
Þegar spurðist um ferðir Íranna hófst að þeim leit og þann 12. nóvember
höfðu laganna verðir hendur í hári tvímenninganna í borginn Northampton í
Hampshire-sýslu.
Þar var þeim umsvifalaust komið fyrir bak við lás og slá og þeir ákærðir fyrir
morð og rán, en sá sem átti heiðurinn af handtökunni fékk í verðlaun 500 dali.
Bandamaður utan fangelsis
Dominic og James sóru og sárt við lögðu að þeir hefðu ekki komið nálægt
morðinu á Marcus Lyon. Yfirvöld töldu sig þó ekki þurfa frekari vitna við því þeir
voru með öllu ókunnugir á svæðinu og Írar í þokkabót.
Dominic og James þurftu að dúsa í fangelsi næsta hálfa árið, eða svo gott sem,
var neitað um lausn gegn tryggingu og ráðgjöf lögfræðings.
Írsku ólánsmennirnir áttu þó einn bandamann utan fangelsisins, séra Jean-
Louis Lefebvre de Cheverus, biskup kaþólskra í Boston.
Írskir og kaþólskir
Tveimur sólarhringum áður en réttarhöld hófust yfir Dominic og James fengu
þeir að hitta lögfræðing, í byrjun júní árið 1806. Að sögn var nokkuð ljóst að íbúar
Northampton deildu áliti ákæruvaldsins um sekt þeirra þegar réttarhöld hófust,
Dominic og James voru írskir, kaþólskrar trúar og farandverkamenn eða flakkar-
ar, frekari sannanir þurfti ekki.
Við réttarhöldin höfðu þeir, kannski eðlilega, fátt fram að færa sem staðfest
gæti sakleysi þeirra og voru réttarhöldin stutt, í orðsins fyllstu merkingu.
Heilar fimm mínútur
Félagarnir fengu fimm mínútna, „sanngjörn“ réttarhöld, því ekki tók lengri tíma
að leiða málið til lykta. Sennilega hefur kviðdómur rétt fengið tíma til að segja sitt.
Þann 5. júní, 1806, voru Dominic Daly og James Halligan hengdir í Northampton
og ljóst að viðburðurinn trekkti vel. Um 15.000 manns fylgdust með aftökunni.
Síðar var það mat manna að eiginlegar sannanir hefðu verið svo rýrar í roðinu
að varla hefði verið ástæða til að ákæra Dominic og James yfirhöfuð.
Uppreisn æru
Séra Jean-Louis Lefebvre de Cheverus lagði sig allan fram, og jafnvel í hættu, í
viðleitni til að koma í veg fyrir aftökuna, en hafði ekki erindi sem erfiði. Áður
hafði hann veitt þeim sakramenti í fangaklefa þeirra og er talið að það hafi verið í
fyrsta skipti sem þjónusta að kaþólskum hætti var veitt í Northampton.
Á degi heilags Patreks árið 1984 sýknaði ríkisstjóri Massachusetts, Michael
Dukakis, Dominic Daly og James Halligan af þeirri sök sem þeir voru hengdir
fyrir. n
Fimm mínútna,
„sanngjörn“ réttarhöld
Jean-Louis Lefebvre de
Cheverus biskup Lagði sig
í líma við að bjarga Írunum
tveimur frá gálganum.