Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2020, Side 54
54 FÓKUS 21. febrúar 2020
YFIRHEYRSLAN
Ísold Wilberg
Antonsdóttir
„Mér hefur
alltaf liðið
vel í sviðsljósinu
Ísold Wilberg Antonsdóttir söngkona sló eftirminnilega í gegn
í undankeppni Söngvakeppni sjónvarpsins en hún stígur aftur á
svið í kvöld, föstudag, með framlag sitt, Klukkan tifar. Lagið syngur
hún ásamt Helgu Ingibjörgu Gunnarsdóttur en þær stöllur segja sín
eftirlætis Eurovision-lög eiga það sameiginleg að vera óhefðbund-
in svo ekki sé meira sagt. Ísold er í yfirheyrslu helgarinnar.
Hvar líður þér best?
Mér hefur alltaf liðið vel í sviðsljósinu, það er alveg hugsanlegt að athyglissýkin
hafi upprunalega leitt mig út í tónlistina. Einnig þykir mér fá betra en að keyra út
úr bænum og koma mér fyrir í heitri náttúrulaug í góðum félagsskap og auðvitað
með gott snarl.
Hvað óttastu mest?
Að láta ótta minn stjórna mér og vakna einn daginn og átta mig á að ég lifði lífinu
ekki til fulls vegna hræðslu við hvað öðrum fyndist um mig. Þess vegna reyni ég
alltaf að njóta augnabliksins, vera samkvæm sjálfri mér og elta ástríður mínar.
Hvert er þitt mesta afrek?
Ég hélt lengi að ég gæti ekki samið lög og var búin að sætta mig við að vera bara
söngkona en ekki lagasmiður. Það var ekki fyrr en eftir tvítugt sem lífið greip inn
í og fékk mig til að kafa dýpra og horfast í augu við sárin sem dvöldu í sál minni,
þá samdi ég mitt fyrsta lag sem fjallar um litla bróður minn, Má Gunnarsson. Ég
lærði að vera berskjölduð og tjá mig í gegnum tónlistina mína og það er eitt það
dýrmætasta sem ég hef lært.
Furðulegasta starf sem þú hefur tekið að þér?
Ég bjó til „Pub-Quiz“/„Bar-Svar“ fyrir Kofa Tómasar frænda í tæp tvö ár, svo ég er
upp full af alls konar tilgangslausum staðreyndum.
Hver væri titillinn á ævisögu þinni?
Ég er svöng.
Hvernig væri bjórinn Ísold?
Hann væri tveir Espresso Martini.
Besta ráð sem þú hefur fengið?
Það var leigubílstjóri á Bali sem sagði við mig „Don’t just go with the flow,
the trick is to go slower than the flow.“ Það fékk mig til að hugsa, vill
maður nokkuð fljóta stefnulaust áfram í sama straumi og allir aðrir? Er
ekki betra að hægja á sér, líta í kringum sig og ákveða sjálfur í hvaða
átt maður vill stefna og með hverjum?
Hvert er leiðinlegasta húsverkið?
Vaska upp, auðveldasta spurningin til þessa! Á mínu heim-
ili gildir sú regla að sá sem eldar þarf ekki að vaska upp,
þess vegna er ég afbragðskokkur í dag og kærastinn minn
alltaf með rúsínuputta.
Besta bíómynd allra tíma?
Lord of the Rings! Allar þrjár, „extended“ útgáfurnar
að sjálfsögðu.
Hvaða hæfileika myndir þú vilja búa yfir?
Ég væri til í að geta talað öll tungumál í heimi, það
væri virkilega töff.
Hver er mesta áhætta sem þú hefur
tekið?
Þegar ég fór í miðnætursjósund á Flateyri eftir 4
of mörg tekíla skot, ekki segja mömmu.
Hvaða frasi eða orð fer mest í
taugarnar á þér?
Mig hlakkar til …
Hvaða geturðu sjaldnast staðist eða ert
góð í að réttlæta fyrir þér?
Ég er mikill nammigrís og er orðin mjög góð í að skapa
tilefni til að verðlauna mig, annars get ég staðist allt, nema
freistingar.
Hvað er á döfinni hjá þér?
Núna eru ég og Helga í fullum undirbúningi fyrir úrslit Söngva-
keppni Sjónvarpsins þar sem við verðum fyrstar á svið með
lagið „Meet me halfway“. Föstudaginn 13. mars kem ég svo
fram á stórtónleikum með Má bróður í Stapa í Reykjanesbæ.
Svo vonandi bara fleiri tónleikar og enn fleiri frumsamin lög
á Spotify. MY
N
D
: E
Y
Þ
Ó
R
Á
R
N
A
S
O
N
Íris Hauksdóttir
iris@dv.is