Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2020, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2020, Blaðsíða 54
54 FÓKUS 21. febrúar 2020 YFIRHEYRSLAN Ísold Wilberg Antonsdóttir „Mér hefur alltaf liðið vel í sviðsljósinu Ísold Wilberg Antonsdóttir söngkona sló eftirminnilega í gegn í undankeppni Söngvakeppni sjónvarpsins en hún stígur aftur á svið í kvöld, föstudag, með framlag sitt, Klukkan tifar. Lagið syngur hún ásamt Helgu Ingibjörgu Gunnarsdóttur en þær stöllur segja sín eftirlætis Eurovision-lög eiga það sameiginleg að vera óhefðbund- in svo ekki sé meira sagt. Ísold er í yfirheyrslu helgarinnar. Hvar líður þér best? Mér hefur alltaf liðið vel í sviðsljósinu, það er alveg hugsanlegt að athyglissýkin hafi upprunalega leitt mig út í tónlistina. Einnig þykir mér fá betra en að keyra út úr bænum og koma mér fyrir í heitri náttúrulaug í góðum félagsskap og auðvitað með gott snarl. Hvað óttastu mest? Að láta ótta minn stjórna mér og vakna einn daginn og átta mig á að ég lifði lífinu ekki til fulls vegna hræðslu við hvað öðrum fyndist um mig. Þess vegna reyni ég alltaf að njóta augnabliksins, vera samkvæm sjálfri mér og elta ástríður mínar. Hvert er þitt mesta afrek? Ég hélt lengi að ég gæti ekki samið lög og var búin að sætta mig við að vera bara söngkona en ekki lagasmiður. Það var ekki fyrr en eftir tvítugt sem lífið greip inn í og fékk mig til að kafa dýpra og horfast í augu við sárin sem dvöldu í sál minni, þá samdi ég mitt fyrsta lag sem fjallar um litla bróður minn, Má Gunnarsson. Ég lærði að vera berskjölduð og tjá mig í gegnum tónlistina mína og það er eitt það dýrmætasta sem ég hef lært. Furðulegasta starf sem þú hefur tekið að þér? Ég bjó til „Pub-Quiz“/„Bar-Svar“ fyrir Kofa Tómasar frænda í tæp tvö ár, svo ég er upp full af alls konar tilgangslausum staðreyndum. Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Ég er svöng. Hvernig væri bjórinn Ísold? Hann væri tveir Espresso Martini. Besta ráð sem þú hefur fengið? Það var leigubílstjóri á Bali sem sagði við mig „Don’t just go with the flow, the trick is to go slower than the flow.“ Það fékk mig til að hugsa, vill maður nokkuð fljóta stefnulaust áfram í sama straumi og allir aðrir? Er ekki betra að hægja á sér, líta í kringum sig og ákveða sjálfur í hvaða átt maður vill stefna og með hverjum? Hvert er leiðinlegasta húsverkið? Vaska upp, auðveldasta spurningin til þessa! Á mínu heim- ili gildir sú regla að sá sem eldar þarf ekki að vaska upp, þess vegna er ég afbragðskokkur í dag og kærastinn minn alltaf með rúsínuputta. Besta bíómynd allra tíma? Lord of the Rings! Allar þrjár, „extended“ útgáfurnar að sjálfsögðu. Hvaða hæfileika myndir þú vilja búa yfir? Ég væri til í að geta talað öll tungumál í heimi, það væri virkilega töff. Hver er mesta áhætta sem þú hefur tekið? Þegar ég fór í miðnætursjósund á Flateyri eftir 4 of mörg tekíla skot, ekki segja mömmu. Hvaða frasi eða orð fer mest í taugarnar á þér? Mig hlakkar til … Hvaða geturðu sjaldnast staðist eða ert góð í að réttlæta fyrir þér? Ég er mikill nammigrís og er orðin mjög góð í að skapa tilefni til að verðlauna mig, annars get ég staðist allt, nema freistingar. Hvað er á döfinni hjá þér? Núna eru ég og Helga í fullum undirbúningi fyrir úrslit Söngva- keppni Sjónvarpsins þar sem við verðum fyrstar á svið með lagið „Meet me halfway“. Föstudaginn 13. mars kem ég svo fram á stórtónleikum með Má bróður í Stapa í Reykjanesbæ. Svo vonandi bara fleiri tónleikar og enn fleiri frumsamin lög á Spotify. MY N D : E Y Þ Ó R Á R N A S O N Íris Hauksdóttir iris@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.