Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2020, Blaðsíða 2
2 27. mars 2020FRÉTTIR
dæmi um furðuleg lög
Lög eru mis-
munandi í
hverju landi
fyrir sig og oft
hefur það komið
ferðamönnum
í vandræði. Hér
eru fimm dæmi
um furðuleg lög
víðs vegar um
heiminn.
Í Singapúr er ólöglegt
selja tyggjó
Innflutningur og sala á
tyggjói var alfarið bönnuð
í Singapúr árið 1992 en það
kom meðal annars til vegna
mikils óþrifnaðar sem leiddi
af sér mikinn viðhalds-
og hreinsunarkostnað í
háhýsum, á götum úti og í
almenningsvögnum. Árið
2004 voru gerðar breytingar
á lögunum sem heimiluðu
sölu á nikótín- og tann-
hreinsityggjói gegn lyfseðli.
Það er ekki ólöglegt að nota
tyggjó en þeir sem henda því
ekki í ruslið geta átt von á
háum sektum.
Í Danmörku má ekki
vera með grímu á
almannafæri
Þessi umdeildu lög hafa
verið í gildi í Danmörku frá
því í ágúst 2018. Ástæðan
er sú að yfirvöld vilja geta
borið kennsl á fólk ef til
dæmis slys eða glæpir
eiga sér stað á stórum
atburðum.
Í Póllandi er
Bangsímon ekki
velkominn
Í skólum og á leikvöllum
í Póllandi er óheimilt að
klæðast fatnaði með
mynd af Bangsímon.
Bangsinn vinalegi er
talinn óviðeigandi og
óæskilegur fyrir ung börn
því hann klæðist allajafna
ekki buxum.
Í Rússlandi er ólög-
legt að klæðast
blúndunærfötum
Lög í Rússlandi, Hvíta-Rúss-
landi og Kasakstan kveða á
um að undirföt eigi að vera
lágmark sex prósent bómull.
Þetta mun vera af heilbrigð-
is- og öryggisástæðum.
Í Nebraska máttu
ekki gifta þig ef þú ert
með kynsjúkdóm
Lög í Nebraska-fylki í
Bandaríkjunum kveða á
um að ekki megi ganga í
hjónaband með annarri
manneskju ef maður er með
einhvers konar kynsjúkdóm.
Þrátt fyrir að þessi lög séu í
fullu gildi þá er ekki krafist
læknisvottorðs þegar sótt
er um giftingarleyfi.
Á þessum degi,
27. mars
1625 – Karl 1. var krýndur konungur
Englands og Skotlands.
1884 – Fyrsta langlínusímtal sögunn-
ar átti sér stað þegar hringt var á milli
New York og Boston.
1963 – Quentin Tarantino, kvik-
myndaleikstjóri og rithöfundur,
fæddist.
1993 – Jiang Zemin tók við embætti
sem forseti Kína.
1998 – Bandaríska matvæla- og
lyfjaeftirlitið (FDA) samþykkti lyfið
viagra.
Fleyg orð
„Líf okkar byrjar að enda
daginn sem við þegjum um
hluti sem skipta máli.“
– Martin Luther King
„Þetta er hundleiðin-
legt til lengdar“
n COVID-19 í paradís n Útgöngubann og strangt eftirlit á Tenerife„Öryggisvörðurinn
horfði á mig stórum
augum og benti mér á að
sækja mér nýja latexhanska
A
nna Kristjánsdóttir vélstjóri er orðin lesendum DV vel kunn.
Hún flutti til Tenerife síðasta haust og hefur haldið úti vinsæl-
um pistlum á Facebook um dvöl sína í „Paradís“. COVID-19
faraldurinn hefur nú varpað skugga á lífið í paradís og ríkir út-
göngubann á eyjunni fögru til að hefta útbreiðslu veirunnar.
Pistlaskrif í útgöngubanni
Anna hefur haldið fylgjendum sínum upplýstum um lífið í útgöngu-
banni af mikilli orðfimi.
„Dagur 222 og dagur 10 í einangrun.
Ég fór í búð í gær, hafði heyrt af nýjum kröfum um andlitsgrímur
fyrir vitunum og því bjó ég mig eins og sögur sögðu að ég ætti að búa
mig, klippti skálm af gömlum buxum og setti fyrir vitin.
Svo mætti ég í búðina. Öryggisvörðurinn horfði á mig stórum aug-
um og benti mér á að sækja mér nýja latexhanska, litur dags-
ins var víst blár og hleypti mér síðan inn í búðina.
Mér leið eins og ég get ímyndað mér einmana
bankaræningja, var ein í búðinni með grímu fyrir and-
litinu.“
Hún kveðst í pistlum sínum ekki endilega vera
ósátt við einangrunina, enda séu aðgerðirnar skilj-
anlegar í ljósi þess fordæmalausa faraldurs sem
Evrópa stendur frammi fyrir.
„Ég reyni að láta ástandið ekkert fara of mik-
ið í taugarnar á mér. Þetta er kannski ekkert
öðruvísi en stuttur túr á frystitogara, þá
miðað við að einangrunin verði fram-
lengd einu sinni og verði fjórar vikur.
Það er allavega enginn veltingur hérna
og ég kemst að auki í búðina og get fyllt
á birgðirnar af klósettpappír og bjór.
Að vísu sá ég danska hryllingsmynd
um krónuveiruna á RÚV í gærkvöldi.
Þetta var svona álíka uppbyggjandi
eins og að hlusta á ónefnda útvarps-
stýru tala um sömu hluti á annarri
útvarpsstöð. Má ég þá heldur biðja
um spænska útgáfu af Latabæ með
Stefáni Karli heitnum.
Svo er ég viss um að það sé ekk-
ert verra að vera í sóttkví í Paradís en
á Íslandi. Ég hefi allavega sól allan
daginn og inn á svalirnar í fjóra tíma á
dag þótt sundlaugarbakkinn sé lokaður
með lögregluvaldi. Ef allt færi til fjand-
ans og ég hrykki upp af hvort heldur af
áfengiseitrun eða krónuvírus er örugg-
lega betra að henda öskunni af mér í sjó-
inn nærri Paradís. En ég viðurkenni alveg
að ég sakna þess að sjá ekki lengur fallega
fólkið streyma niður að ströndinni á morgn-
anna á sama tíma og ég drekk morgunkaffið á
svölunum.“
Mun harðari aðgerðir en á Íslandi
DV hafði samband við Önnu og spurði um stöðuna. Hún segir
reglurnar og eftirfylgnina með þeim vera töluvert harðari á
Tenerife en á Íslandi.
„Reglurnar eru mun harðari en á Íslandi. Það ríkir út-
göngubann. Her og lögregla gæta þess að enginn sé á ferli
að óþörfu. Búið að loka öllum hótelum og veitingastöðum
sem ekki senda mat heim. Fólk má fara í búðina, í apótek-
ið og til læknis sem og fara í hraðbanka,“ segir Anna. Utan
þessa fær fólk lítið að fara út úr húsi. „Ég má ekki heimsækja
fólk í næsta húsi en fólk má mæta til vinnu.“
Hún segir ástandið þó vissulega þreytandi. „Þetta er
hundleiðinlegt til lengdar. Það er þegar búið að framlengja
bannið fram yfir páska. Það einasta sem fólk getur gert sér
og öðrum til skemmtunar er að klukkan 19.00 fara margir
út á svalir og klappa fyrir heilbrigðisstarfsfólki.“
Spurð hvernig andinn sé í Íslendingasamfélaginu
þarna úti segir Anna að það sé erfitt að meta. „Þar
sem engin bein samskipti eru á milli fólks öðruvísi en
í gegnum síma eða á netinu get ég ekki svarað miklu
um það enda flestir farnir heim sem ekki búa hér.“
Verður þetta ekkert einmanalegt?
„Það fer að verða það, en samt, það er til sími og
netið er notað á fullu. Það eru mjög margir stað-
ir lokaðir á þessu svæði. Þar sem allt gengur út á
túrismann er allt steindautt. Ég hef ekki farið út á
Amerísku ströndina síðan allt lokaðist en get ekki
ímyndað mér að þar sjáist lifandi sála. Hér er þó
slatti af íbúum. Það verður gaman þegar allt opn-
ast aftur.“
Pistlaskrif Önnu hafa sannarlega vakið mikla
athygli og hafa fjölmiðlar gripið gullgæsina og
deilt þeim með lesendum sínum. Anna hef-
ur nú hafið formlegt samstarf við Mannlíf sem
mun framvegis birta pistla hennar, þar sem
hún mun án efa halda áfram að greina listilega
frá dvöl sinni og, um þessar mundir, einangrun
í Paradís. n