Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2020, Page 8
8 UMRÆÐA
Sandkorn
27. mars 2020
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
Aðalnúmer: 512 7000
Auglýsingar: 512 7050
Ritstjórn: 512 7010
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Ritstjóri: Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Prentun: Torg prentfélag Dreifing: Póstdreifing
FRÉTTASKOT
512 7070
ABENDING@DV.IS
Suðurlandsbraut 14
2. hæð
108 Reykjavík
Hegðun hálfvitanna
Þ
að fauk í Víði Reynisson
á daglegum upplýsinga-
fundi Almannavarna, Sótt-
varnarlæknis og Land-
læknis í vikunni. Ástæðan? Jú,
Víði blöskraði hvernig Íslendingar
höguðu sér í hertu samkomu-
banni. Sagði hann marga ekki
taka þetta alvarlega. Líklegast í
fyrsta sinn sem almenningur hef-
ur séð þennan nýjasta hálfguð
landsins virkilega pirraðan.
Þótt ég sé ekki hlynnt því að láta
embættismenn lesa mér pistil-
inn þá fannst mér nokkuð gott
hjá Víði að skipta svo greinilega
skapi. Það er nefnilega algjörlega
óþolandi hve litla virðingu sumir
bera fyrir öðrum. Það er ekki að-
eins óþolandi heldur getur það
einnig verið hættulegt, þó ekki
eingöngu vegna smithættu.
Ég þekki allavega tvær mann-
eskjur sem gortuðu sig af því við
komu til landsins að hafa lagt
lykkju á leið sína til að sleppa við
sóttkví. Í ræktinni, áður en hert
samkomubann skall á, heyrði ég
hóp af konum tala fjálglega um að
þær vissu ekki hvort þær ættu að
mæta strax til vinnu þar sem þær
væru nýkomnar frá hættusvæði.
Svo eru það grasasnarnir sem
anda ofan í hálsmálið á manni í
matvöruverslunum, fábjánarnir
sem maður mætir í göngutúrum
sem víkja ekki til að virða tveggja
metra regluna, þorskhausarn-
ir sem fara ekki eftir einföldum
reglum og halda mannmörg partí
í heimahúsum.
Við erum samt ekki öll Al-
mannavarnir eins og þetta þreyt-
andi slagorð, sem framleitt var á
rándýrum hugarflugsfundi á aug-
lýsingastofu, reynir að sannfæra
okkur um. Almannavarnir eru
Almannavarnir. Við erum bara
við. Við eigum að nota heilbrigða
skynsemi og fara eftir reglun-
um, því eins og Víðir sagði rétti-
lega þegar hann stökk upp á nef
sér – þetta er ekkert grín. Þetta
er dauðans alvara. Við eigum að
virða persónurými hvers og eins
og reyna, á þessum einkenni-
legu tímum, að setja okkur í spor
annarra. Fjölmargir glíma við
heilsukvíða, hafa áhyggjur af ást-
vinum með undirliggjandi sjúk-
dóma eða vilja einfaldlega standa
sig vel fyrir samfélagið. Þvo hend-
ur vel og vandlega, spritta, þrífa
heimilið hátt og lágt, leyfa bara
einum úr fjölskyldunni að fara út
í búð, halda sig í að minnsta kosti
tveggja metra fjarlægð frá fólki og
bjóða ekki fólki heim til sín. Þetta
er hins vegar allt fyrir bí þegar
þöngulhausarnir mæta á svæðið
og nánast sleikja mann frá toppi
til táar.
Ég veit um nokkra nálægt mér
sem hafa nánast misst þolinmæð-
ina gagnvart fábjánunum. Næst-
um því misst stjórn á skapi sínu.
Næstum því slegið frá sér. Ekki
furða, enda er þráðurinn ansi
stuttur þegar allt er lokað og engir
mega hittast. Þess vegna segi ég
að þessi hegðun hálfvitanna er
ekki aðeins hættuleg vegna smit-
hættu heldur getur hún orðið til
þess að til handalögmála kemur.
Þegar sprengiþráðurinn er orðinn
jafn stuttur og raun ber vitni hjá
ansi mörgum í samfélaginu í dag
þá getur farið illa.
Ég vil því biðla til fábjánanna,
hálfvitanna, þöngulhausanna
og þorskhausanna að gyrða sig í
brók og læra einfalda mannasiði,
fyrir sig og hina. Þeir eru ekki Al-
mannavarnir en þeir geta hætt að
vera svona djöfulli óbærilegir. n
Spurning vikunnar Hvers saknar þú mest þessa dagana?
„Þar sem ég er sjálfstætt starfandi þykir mér ansi
gott að byrja daginn á kaffihúsi og vinna aðeins. Þá
verður Te og kaffi oftast fyrir valinu, er því í öngum
mínum yfir lokun þess.“
Heiðar Sumarliðason
Ég sakna þess mest að hitta fólk og sitja og spjalla
við fjölskyldu og vini. Að tala saman gegnum netið
eða símann er bara alls ekki það sama þótt það
bjargi miklu. Ég get ekki beðið eftir að þetta gangi
yfir. Ég held að maður horfi öðrum augum á lífið
eftir þetta.“
Sigríður Sigurðardóttir
„Þetta eru skrítnustu tímar sem flestir ef ekki allir
eru að upplifa. Ég fagna öllum þeim aðgerðum sem
eru í gangi til þess kæfa þessa veiru sem geisar á al-
þjóðasamfélaginu. Ég mun sakna þess að geta ekki
hitt fólkið mitt í Eyjum um næstkomandi helgi þar
sem við ætluðum að eyða tíma saman, pabbi minn
hefði orðið sjötugur 25. mars. Ég mun sakna þess
að fara ekki á Blúshátíðina á Hilton um páskana.
Að öðru leyti er ég bara góð og óska öllum góðs
gengis á þessum erfiðu tímum.“
Ragnheiður Rut Georgsdóttir
„Líf mitt hefur satt að segja tekið litlum breyting-
um þrátt fyrir þessar reglur og það er ósköp svipað
því sem það hefur verið sl. 20 ár því að á meðan
ég er að skrifa bók þá er ég og vil vera ein heima
að vinna, í friði fyrir öðrum. Ég kemst að vísu ekki
í ræktina lengur en bæti það upp með daglegri
kraftgöngu um miðbæinn með tónlist í eyrunum.
Ég sakna þess helst að geta ekki hitt tæplega árs-
gamla dótturdóttur en það er lítil fórn til þess að
verja nána ættingja með undirliggjandi sjúkdóma
fyrir mögulegu smiti.“
Vilborg Davíðsdóttir
Viljið þið gjöra
svo vel …
Ekki er öll vitleysan eins, en
Lögreglan á Suðurnesjum
ákvað að slá á létta strengi
í vikunni með beiðni til
tilvonandi brotafólks.
Í tilkynningunni eru
einstaklingar, sem hyggjast
brjóta af sér, beðnir um að
láta af þeim áformum þangað
til kórónuveirufaraldurinn
væri yfirstaðinn. Því neyðast
góðkunningjar lögreglunnar
til að taka fordæmalaust
tillit til samfélagsins, og
helst fremja brot sín heima
í huggulegheitunum,
skyldi sjálfsstjórnin fara úr
böndunum. Óvenjulegir
tímar krefjast óhefðbundinna
lausna og þar sem lögreglan
hefur beðið svona fallega,
þá er boltinn augljóslega hjá
krimmunum.
Kreppa hjá
fíkniefnasölum
Dópsalar sleppa ekki undan
COVID-19 afleiðingum.
Nú er samkomubann og
skemmtanalífið á landinu
hefur smækkað niður
í öreindir og þar með
eftirspurnin eftir fíkniefnum,
sömuleiðis eru birgðir
takmarkaðar þar sem
innflutningur verður fyrir
áhrifum samgönguhafta.
Dópsalar geta líklega ekki nýtt
sér þau úrræði sem ríkið hefur
boðað til að styðja launþega
og launagreiðendur á þessum
tímum. Varla sækja þeir um
atvinnuleysisbætur? Því þurfa
neytendur fíkniefna líklega
að sætta sig við að verð á
fíkniefnum rjúki upp úr öllu
valdi. Æ æ.
Leiðari
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is
MYND: EYÞÓR ÁRNASON
Kyrrð á tímum COVID-19 Þetta par tyllti sér hjá Sólfarinu og naut
þess að líða eins og það væri eitt í heiminum í skugga herts samkomubanns.