Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2020, Síða 12
12 27. mars 2020FRÉTTIR
F
rá því í fyrrahaust hafa
stöðvar Reebok Fitness
verið án starfsmanna á
ákveðnum tímum virka
daga, snemma á morgnana og
svo aftur yfir miðjan daginn.
Þetta staðfestir Ólafur Geir Ott-
ósson, fyrrverandi einkaþjálfari
stöðvarinnar, og fullyrðir hann að
starfsmannaleysið geti haft alvar-
legar afleiðingar í för með sér fyrir
viðskiptavini með tilliti til öryggis
og viðeigandi viðbragðsáætlana.
Ólafur segist margoft hafa bent
yfirmönnum líkamsræktarstöðv-
arinnar á eftirfarandi atriði en
talað fyrir daufum eyrum.
„Það er gjörsamlega galin til-
hugsun að vita til þess að ung-
lingar allt niður í fjórtán ára aldur
megi æfa í stöðvunum með sam-
þykki forráðamanna. Á sama tíma
er enga starfsmenn þar að finna,
sem dæmi um þetta er hvorki eft-
irlit né aðhald á staðnum milli
klukkan 14 og 17 alla virka daga.
Líkamsræktarstöð er æfinga-
svæði þar sem geta verið stór og
mikil tæki og búnaður sem auð-
velt er að slasa sig á með rangri
notkun. Börn undir átján ára ættu
að vera undir eftirliti og aðhaldi
einhvers fullorðins á staðnum
sem getur gripið inn í og verið til
staðar. Sívirkt myndavélaeftirlit er
þó á stöðvunum en það er engan
veginn það sama og að vera með
starfsmann á staðnum.“
Kalla þurfti til sjúkrabíl og
enginn starfsmaður á staðnum
Komi upp veikindi eða slys seg-
ir Ólafur að treysta þurfi á við-
skiptavini til að bregðast við.
„Í sumum tilfellum eru þjálfar-
ar á staðnum, sem geta brugðist
við, en þeir eru ekki starfsmenn
Reebok Fitness. Samkvæmt
leyfisskilyrðum þarf að vera til
staðar viðbragðsáætlun fyrir
stöðvarnar og hún er til staðar. Í
öllum tilfellum byggir hún á því
að starfsmaður á staðnum bregð-
ist við aðstæðum með því að fara
strax í að tryggja ákveðna hluti
samkvæmt verkferlum. Þegar
ekki er starfsmaður á staðnum
er ekki hægt að bregðast strax
við samkvæmt áætlun og þarf því
starfsmaður Reebok Fitness að
koma á staðinn, sem getur tek-
ið einhvern tíma. Dæmi eru um
að kalla hafi þurft til sjúkrabíl
vegna bráðaveikinda viðskipta-
vina þegar ekki var starfsmaður
í húsinu, að brunaviðvörunar-
kerfi hafi farið í gang og því sinnt
seint og illa. Konur hafa stundum
upplifað og orðið fyrir óþægilegri
nærveru og athygli karlmanna og
það hefur gerst að inn hafa komið
einstaklingar sem við höfum talið
mjög líklega undir áhrifum ein-
hverra óæskilegra efna. Dæmi er
um að karlmaður hafi með skýr-
um ásetningi farið inn í bún-
ingsklefa kvenna þegar ekki var
starfsmaður á staðnum. Í þess-
um tilfellum má deila um hvort
starfsmaður á staðnum hefði get-
að komið í veg fyrir eitthvað. Mín
skoðun er sú að starfsmaður á
staðnum gæti í öllum tilfellum
brugðist við og verið viðskipta-
vinum innan handar og gengið í
málið.“
Ólafur nefnir jafnframt að á
nokkrum stöðvum Reebok Fit-
ness séu heitir pottar, sána og
gufa sem hann telur þurfa eftirlit.
Starfsmannaleysið hefur valdið
Ólafi miklum áhyggjum og segir
hann fleiri starfsmenn stöðvar-
innar deila þeim áhyggjum. Við-
skiptavinir hafi jafnframt komið
með athugasemdir, en yfirmenn
stöðvarinnar virt þá að vettugi, að
sögn Ólafs.
„Ég er fyrst og fremst að hugsa
um hagsmuni viðskiptavinanna
hvað þessi öryggismál varðar,
því þetta er ekki spurning um
hvort, heldur hvenær slysin ger-
ast. Slysin gera ekki boð á undan
sér en það er vel hægt að byrgja
brunninn áður en barnið fellur í
hann. Hér er það svo sannarlega
ekki raunin.“
Að lokum nefnir Ólafur dæmi
þar sem ekki hefur verið hægt að
bregðast við skyndilegum óþrifn-
aði, til dæmis á salernum þegar
slíkt hefur gerst.
„Það hefur skapast ákveðin
hætta þegar bleyta hefur mynd-
ast innanhúss í stigum og starfs-
maður ekki getað farið í að þurrka
hana strax, og inn hafa kom-
ið einstaklingar sem við höfum
stundum veitt sérstaka eftirtekt
vegna hegðunar þeirra og jafn-
vel ástands og hefðum helst vilj-
að hafa afskipti af en það er ekki í
okkar verkahring. Þetta er auðvit-
að hið leiðinlegasta mál og virki-
lega slæmt ef ekkert verður gert til
að bæta stöðuna.“
Æfa á eigin ábyrgð
Katrín Björk Eyvindardóttir gefur
lítið út á ásakanir Ólafs en hún er
einn forsvarsmanna Reebok Fit-
ness.
„Eftirlit á stöðvunum okkar
er mjög gott, bæði frá starfs-
fólki þegar það er í afgreiðslu og
þeim fjölmörgu þjálfurum sem
eru á staðnum hverju sinni, en
annars með öflugu eftirlitskerfi
sem sinnir okkar stöðvum á öll-
um tímum sólarhringsins. Með-
an líkamsræktarstöðin er opin
fylgist starfsmaður með og bregst
við um leið.“
Hún viðurkennir að enginn
starfsmaður sé í afgreiðslu á milli
klukkan 14 og 17.
„Á þeim tíma beinum við við-
skiptavinum á sjálfsafgreiðslu-
stöðvarnar okkar í afgreiðslu en
þar ná þeir beinu sambandi við
starfsmann með myndsímtali
sem getur brugðist við hverju
sinni. Það á þá við ef kalla þarf til
neyðaraðstoð, gefa leiðbeiningar
frá þjálfara eða öðrum tengd-
um aðillum sem vitað er að séu
staðsettir í húsi. Aðgangsstýr-
ingarkerfið okkar heldur utan
um hverjir eru á staðnum hverju
sinni. Vissulega getur fólk veikst
eða slasast í líkamsræktarstöð líkt
og annars staðar, þegar það hefur
þurft að kalla til sjúkrabíl hjá okk-
ur þá hefur það undantekningar-
laust verið leyst af mikilli prýði
af okkar starfsfólki, þjálfurum og
öðrum viðstöddum.“
Katrín segist ekki hafa heyrt
á það minnst að karlmenn valsi
óhindrað inn í kvennaklefa en ef
til slíkra tilfella kæmi yrði að sjálf-
sögðu tekið hart á því.
Fátítt að fólk slasi sig á tækj-
unum
Telji þið forsvaranlegt að við-
skiptavinir yngri en átján ára séu
eftirlitslausir innan um stór og
mikil æfingartæki sem auðvelt er
að slasa sig á með rangri notkun?
„Lágmarksaldur í stöðvar Ree-
bok Fitness er 15 ár og skilmál-
ar Reebok Fitness eru í takt við
skilmála annarra líkamsræktar-
stöðva þegar kemur að ábyrgð
viðskiptavina þegar æft er í stöð-
inni. Hér æfum við á eigin ábyrgð,
förum varlega og sýnum lóð-
um og tækjum virðingu. Það er
mjög fátítt að fólk sé að slasa sig
á tækjunum. Það er ekki reynsla
okkar að þeir yngri séu líklegri
til að slasa sig en aðrir. Þær lík-
ur aukast heldur ekki né minnka
þótt starfsmaður sé afgreiðslu,“
segir Katrín. Spurð hverjar kröfur
fyrirtækisins séu hvað öryggismál
varðar ítrekar Katrín að Reebok
fylgi kröfum þeirra opinberu að-
ila sem þau þurfi að svara til.
En hafið þið fundið fyrir óá-
nægju starfsfólks eða viðskipta-
vina ykkar?
„Í svona rekstri sem snert-
ir á þúsundum viðskiptavina og
hundruðum starfsmanna er nær
ómögulegt að geðjast öllum.
Við getum þó verið nokkuð viss
um og vonað að meirihlutinn sé
ánægður.“ nSmiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
„Þetta er ekki spurning um hvort,
heldur hvenær slysin gerast“
n Yfirmenn Reebok Fitness bornir þungum sökum n Einkaþjálfarar láta af
störfum n „Eftirlit á stöðvunum okkar er mjög gott,“ segir yfirmaður
Íris Hauksdóttir
iris@dv.is