Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2020, Síða 25
SAKAMÁL 2527. mars 2020
MYRTI FJÖLSKYLDU SÍNA FYRIR FRELSI
n Fjölskylduföðurinn dreymdi um fullkomið frelsi n Áform hans reyndust dýrkeypt n Eiginkona og þrjú börn skyldu ekki standa í vegi hans
„Svar
hans
var stutt
og laggott:
„Nei, þakka
þér.“
hafði ausið fé. Einnig var kallað-
ur til vitnis starfsmaður banda-
rísku alríkislögreglunnar, FBI,
sem hafði þýtt 140 blaðsíður sem
Christopher hafði skrifað á með-
an hann beið réttarhalda í fang-
elsi.
Textann hafði Christopher
skrifað með rúnaletri, en hann
hafði víst mikinn áhuga á drúíd-
um og öllu sem þá snerti.
Rúnapár
Ekki fylgir sögunni hvað rúnaskrif
Christophers innihéldu nákvæm-
lega. Ekki minntist hann þó einu
orði á eiginkonu sína og börn,
en ein nektardansmeyjanna sem
höfðu glatt augu hans áður en
hann myrti fjölskyldu sína varð
þess heiðurs aðnjótandi að fá til-
vísun eða tvær í rúnapárinu.
Hvað sem því líður þá kom í
ljós að Christopher hafði þrýst
hlaupi skammbyssunnar undir
höku Kimberly og tekið í gikk-
inn. Síðan hafði hann beint bys-
sunni að börnum sínum, einu á
fætur öðru, og skotið hvert og eitt
tveimur skotum, einu í höfuðið
og öðru í bringuna. Að minnsta
kosti eitt barnanna hafði reynt að
bera hönd fyrir sig.
Hafði ekkert að segja
Christopher Vaughn var sakfelld-
ur fyrir morðin á eiginkonu sinni
og þremur börnum og fékk fjóra
lífstíðardóma sem hann á að af-
plána hvern á fætur öðrum.
Áður en dómurinn var kveðinn
upp var Christopher boðið að
ávarpa viðstadda. Svar hans var
stutt og laggott: „Nei, þakka þér.“
Börnin þrjú Cassandra, Blake og Abigayle áttu sér einskis ills von.
Móðirin Kimberly féll fyrst
fyrir hendi Christophers.