Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2020, Qupperneq 26
26 MATUR 27. mars 2020
Prófaðu Pretzel
n Þýska góðgætið bjargar deginum n Hræódýrt hráefni og einfaldara en það sýnist
Þ
ýska góðgætið Brezel, það sem við köll-
um Pretzel, er tilvalið til að spreyta sig
á þegar lítið annað er að gera. Ekki
skemmir fyrir að hráefnin eru hræó-
dýr og alls ekki eins flókið að gera Pretzel
og maður heldur. Hægt er að leika sér með
grunndeigið og búa til alls kyns skemmti-
lega brauðrétti sem nánast bráðna í munni.
Þá er vert að taka fram að grunndeigið er algjör-
lega vegan.
n 1 1/2 bolli volgt vatn
n 1 msk. sykur
n 2 tsk. sjávarsalt
n 1 pakki þurrger (12 g)
n 2 msk. ólífuolía
n 4 1/2 bolli hveiti
n smá bragðdauf olía
n 10 bollar vatn
n 2/3 bolli matarsódi
n meira sjávarsalt
Blandið vatni, sykri og sjávarsalti saman í stórri skál og
stráið þurrgeri yfir blönduna. Leyfið þessu að standa
í um 5 mínútur eða þar til blandan byrjar að freyða.
Blandið ólífuolíu og hveiti saman við gerblönduna og
hrærið þokkalega vel saman. Hnoðið deigið í 1 til 2
mínútur í skálinni, skellið deiginu svo á borð sem er
búið að dusta hveiti á og hnoðið í 2 til 3 mínútur í við-
bót. Smyrjið smá bragðdaufri olíu í skálina og dembið
deigkúlunni ofan í hana. Setjið hreint viskastykki yfir
skálina og leyfið þessu að hefast í 55 til 60 mínútur á
volgum stað.
Stillið ofninn á 230°C og setjið smjörpappír á ofnplötu.
Hellið vatni og matarsóda í stóran pott og látið koma
upp suðu á hæsta hita. Á meðan vatnið er að hita sig
búið þið til lengjur úr deiginu, eins stórar og þið viljið
og mótið pretzel úr lengjunum. Þið getið einnig búið
til bollur og skorið grunnt x í þær með borðhníf. Þegar
vatnið er byrjað að bullsjóða skellið þið saltkringlun-
um/bollunum ofan í það, bara 1 til 2 í einu, og látið
þær liggja í vatns- og matarsódablöndunni í 30 sek-
úndur. Takið saltkringlurnar upp úr vatninu og raðið
á ofnplötuna. Stráið vel af sjávarsalti yfir kringlurnar
og bakið í 14 til 16 mínútur, eða þar til kringlurnar eru
orðnar dásamlega dökkar og djúsí.
n 1/4 bolli púðursykur
n 1 bolli volgt vatn
n 1 bréf þurrger (12 g)
n 2 msk. ólífuolía
n 3 bollar hveiti
n 8 bollar vatn
n 1/2 bolli matarsódi
n sjávarsalt
n ostur að eigin vali
Blandið sykri, vatni og þurrgeri saman í skál og látið
bíða í nokkrar mínútur þar til blandan freyðir. Blandið
ólífuolíu saman við og síðan hveiti, einum bolla í einu.
Hnoðið vel, fyrst í skál og síðan á borði. Smyrjið smá
bragðdaufri olíu í skálina og setjið deigið ofan í. Setj-
ið hreint viskastykki yfir skálina og leyfið deiginu að
hefast í um klukkustund. Hitið ofninn í 225°C og setjið
smjörpappír á ofnplötu. Skiptið deiginu í 10 til 12 jafn-
stóra hluta og búið til lengjur úr hverjum hluta sem þið
fletjið ögn út með höndunum. Setjið vænan bút af osti
í miðja lengjuna og klípið deigið saman frá hverri hlið
þannig að deig hylji ostinn frá öllum hliðum. Hellið
vatni og matarsóda í stóran pott og látið koma upp
suðu á hæsta hita. Þegar vatnið er byrjað að bullsjóða
skellið þið lengjunum ofan í það, bara 1 til 2 í einu, og
látið þær sjóða í vatns- og matarsódablöndunni í 30
sekúndur. Raðið lengjunum á ofnplötuna. Stráið vel af
sjávarsalti yfir þær og bakið í 10 til 12 mínútur.
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is
Pretzel-saltkringlur/
Pretzel-brauðbollur
Ostafylltar
Pretzel-stangir
n 1 1/2 bolli volgt vatn
n 3 msk. púðursykur
n 2 tsk. salt
n 1 bréf þurrger (12 g)
n 2 1/2 bolli hvítt hveiti
n 2 bollar heilhveiti
n 4 msk. ólífuolía
n 10 bollar vatn
n 2/3 bolli matarsódi
n 1 eggjarauða blönduð við 1 msk. af vatni
n sjávarsalt
n sesamfræ
Blandið vatni, sykri og salti saman í stórri skál og
stráið þurrgeri yfir blönduna. Leyfið þessu að standa
í um 5 mínútur eða þar til blandan byrjar að freyða.
Blandið ólífuolíu og hveiti saman við gerblönduna
og hrærið þokkalega vel saman. Hnoðið deigið í 1 til
2 mínútur í skálinni, skellið deiginu svo á borð sem
er búið að dusta hveiti á og hnoðið í 2 til 3 mínútur í
viðbót. Smyrjið smá bragðdaufri olíu í skálina og leyf-
ið deiginu að liggja þar. Setjið hreint viskastykki yfir
skálina og leyfið þessu að hefast í 55 til 60 mínútur á
volgum stað.
Stillið ofninn á 225°C og setjið smjörpappír á ofn-
plötu. Hellið vatni og matarsóda í stóran pott og látið
koma upp suðu á hæsta hita. Á meðan vatnið er að
hita sig búið þið til kúlur úr deiginu og búið til þokka-
lega stórt gat í þeim miðjum með fingri. Þegar vatnið
er byrjað að bullsjóða skellið þið beyglunum ofan í
það, bara 1 til 2 í einu, og látið þær liggja í vatns- og
matarsódablöndunni í 30 sekúndur. Takið beyglurn-
ar upp úr vatninu og raðið á ofnplötuna. Stráið vel af
sjávarsalti og/eða sesamfræjum yfir beyglurnar og
bakið í 10 til 12 mínútur.
Heilhveiti
Pretzel-beyglur