Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2020, Síða 28
28 FÓKUS 27. mars 2020
Guy Fawkes – V for Vendetta
Þessi gríma er ekki alslæm og ef við tökum allan
búninginn úr V for Vendetta eins og hann legg
ur sig er hér einn vel varinn maður. Það getur þó
verið óþægilegt til lengdar að anda með þessa
grímu á andlitinu og fer rakinn heldur
betur að segja til sín. Þó myndi þessi
gríma standast flestar kröfur, væri
ekki fyrir litla loftgatið við munninn
sem býður hættunni heim.
5/10
Kylo Ren – The Force
Awakens the Last
Jedi Skywalker
Þessi sver sig í ætt við afa
sinn, Svarthöfða, og af góðri
ástæðu. Gríman hjá
Kylo léttari, en
því miður færðu
ekki jafnflotta
rödd og gamla
fyrirmyndin.
9/10
Bane – The Dark
Knight Rises
Bane er í hörkugóðum mál
um, svo framarlega sem hann
snertir ekki andlitið með ber
um höndum. Hann er tengdur
við sérstakt lofthylki og ofar
öllu er grímuhönnunin grjót
hörð. Helsti ókostur
mikillar notkunar
er litamismunur
inn á kollinum eft
ir heitan dag í sól
inni.
8/10
Svínstrýnið í Saw
Jú, þessi steinliggur og ætti að verja höf
uð og háls vel. Auk þess er nóg pláss
undir grísatrýninu til að bæta við
loftsíu.
En svona í alvöru, er ekki í lagi?
8/10
Spider-Man
Undir hefðbundnum
kringumstæðum myndi fólk
segja að á meðan þú nærð
að anda gegnum spandexið,
þá getur þú vissulega hóstað
gegnum það. Nýjustu Spider
Man grímurnar eru þó gædd
ar einhverri undratækni
frá Járnmanninum,
annarri hetju sem
væri í jafn sterkum,
ef ekki betri, mál
um í þessari
samantekt.
7/10
Tom Cruise í Vanilla
Sky
Tom Cruise í Vanilla Sky yrði
ekkert rosalega vel undir
búinn. Gríma hans er meira
hugsuð sem eins konar gervi
húð til að fela áverka hans og
afmyndun eftir slæmt slys.
Hún er sennilega þægileg í
notkun (en óhugguleg fyrir
annað fólk þegar skotist er í
ríkið eða matvörubúðina) en
það þyrfti hiklaust einhverja
viðbót við gúmmíið þegar of
urflensa blasir við. Sama
prinsipp gild
ir um hina
svonefndu
Micha
el Myers
grímu.
5/10
Scarecrow – Batman
Begins
Í kvikmyndinni Batman
Begins er fígúran Scarecrow
með fátt annað en prýðilega
skreyttan kartöflupoka. Gott
á hrekkja
vöku, en
pass í
heimsfar
aldri.
4/10
Jason Vorhees – Fri-
day the 13th o.fl.
Jason Vorhees er ekki nógu vel
varinn. Götin á blóð
ugu hokkígrímunni
eru of stór til að
halda veirunni frá.
En mikið óskaplega
er hún flott samt.
4/10
Ghostface (Scream)
Það er skárra að hafa þessa
grímu en enga, en efnið er
engu að síður þunnt og
meira til skrauts.
Það hjálpar
heldur ekki að
munurinn er al
gjörlega óvarinn
í hönnuninni.
4/10
Hannibal Lecter
Það eina jákvæða við grímu
Hannibals Lecter er að lítil
hætta er á því að hann bíti
næstu manneskju. Að vísu er
mannætu venjulega haldið
í strangri einangrun dag
hvern, þannig að hann væri
nokkuð öruggur. Gríman ein
og sér gerir hins vegar
ekki nokkurn skap
aðan hlut, nema
hræða yngstu
hópana.
3/10
Batman (í gegnum
árin)
Þessi verndar þig fyrir um það
bil öllu … nema því sem máli
skiptir í veirufaraldri. Ben Af
fleck fann að
vísu lausn
á þessu í
sinni bíó
mynd
þegar
hann
hjólaði í
Súpermann.
2/10
Zorro
Það besta sem
Zorro gæti gert í
COVID19 að
stæðunum væri
að halda sig í
hesthúsinu.
2/10
Gríman í The Mask
Þessi lýsir athyglissýki og
stanslausri löngun til hreyf
ingar. Ekki mælt
með því í
einangr
un.
1/10.
Sundaborg 1
104 Reykjavík
777 2700
xprent@xprent.is
BANNER-UP STANDAR
Ódýr
og einföld
leið l að
kynna
þína vöru.
Bestu og verstu
grímurnar
á tímum COVID-19
Hvor er öruggari í miðri farsótt, Spider-Man eða Svarthöfði?
Þ
að er ekki óeðlilegt að fólk setji upp félags
legar grímur við ýmsar aðstæður og nú stend
ur mannkynið á tímamótum. Árið 2020 hefur,
ásamt fjölda öðru, aukið vitundarvakningu
fólks gagnvart áþreifanlegum grímum af ýmsu tagi.
COVID19 hefur sett veröldina á hliðina og skráð
sig með ógnarhraða í sögubækurnar. Fólk víða um
heim hefur gripið til hugmyndaríkra ráða með alls
konar grímur, á almennum vettvangi eða í hlut
verkaleik í einangrun.
Á undanförnum vikum hefur neytandinn, sem
aldrei fyrr, sankað að sér streymisveitum, línu
legri dagskrá og afþreyingu, ekki síst ævintýrum. Þá
sakar ekki að renna yfir þekktar grímur kvikmynda
sögunnar og sjá hvernig sumar fígúrur myndu
spjara sig í farsótt á við kórónuveiruna. Til að krydda
þetta fylgir einkunn, sem metin er eftir því hvort eða
hvernig grímurnar gagnast í núverandi faraldri.
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is
Svarthöfði
Svarthöfði er bú
inn undir hvað
sem er og lík
ur á veirusmiti
sama sem engar.
Vel græjaður,
innsiglaður og
flottur. Gæti þó
reynst minni
háttar ókostur að
grímunni undir
Svarthöfðahjálm
inum fylgja sól
gleraugu.
10/10