Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2020, Side 30
30 27. mars 2020STJÖRNUSPÁ
M
ikið mæðir á Páli Matthíassyni, forstjóra
Landspítalans, um þessar mundir. Því
fannst DV tilvalið að lesa í tarotspil Páls
á þessum COVID-tímum og athuga hvað
framtíðin ber í skauti sér. Lesendum er bent á að
þeir geta sjálfir dregið sér tarotspil á vef DV.
Litlu vandamálin
Fyrsta spilið sem kemur
upp hjá Páli er 5 stafir.
Bersýnilega er Páll að tak-
ast á við gríðarlega stórt
vandamál og áskorun ásamt
sínu fólki á Landspítalanum.
Hins vegar eru einnig smá-
vægileg vandamál að angra
hann, þó að honum sé bent á
að þessi litlu vandamál skipti
ekki máli í stóra samhenginu.
Páll er hins vegar þannig maður
að hann vill ekki láta neitt ósagt
og gengur því í það að friða sam-
viskuna, hvort sem vandamálin eru
stór eða lítil. Hann er að nýta færni sína á sviði heil-
brigðismála og rekstrar til hins ítrasta þessa dagana
og mun breyta þessari reynslu í ávinning síðar meir.
Kaldur en tilfinninganæmur
Næst er það Bikarkonungur. Oft getur Páll virk-
að kaldur og lokaður karakter á þá sem ekki þekkja
hann. Sökum sérfræðimenntunar sinnar og stöðu
hefur hann búið sér til þann persónuleika út á við
og tekur þessi persónuleiki æ meira yfir. Páll er tilf-
inninganæmur en á oft erfitt með að tjá tilfinningar
sínar og á það til að
skammast sín fyrir þær.
Hann þarf að minna sig
á skilin á milli vinnu og
einkalífs og umlykja fólkið
sitt heiðarleika og hlýju á
þessum erfiðu tímum þar
sem vinnan gleypir hann.
Kveður spítalann
Loks er það 4 sverð. Eftir að
COVID-stormurinn er liðinn hjá
kemur það Páli á óvart hve miklu
hann hefur áorkað með skipulag, kraft og dugnað
að vopni. Heimsfaraldurinn hefur tekið sinn toll
og þarf Páll að hvíla sig vel og lengi eftir að stríðinu
lýkur. Hann þarf að huga betur að áhugamálum sín-
um, en ekki síst heilsunni. Þó að líf hans einkenn-
ist af hraða þarf hann að gefa sér tíma til að staldra
við og hlusta á líkamann og þarfir hans. Páll þarf að
komast í snertingu við hina djúpu kyrrð en einnig
velta fyrir sér hvort hann sé á þeim stað í lífinu sem
hann vill vera. Hugsanlega er tíð hans á Landspítal-
anum lokið og eitthvað nýtt tekur við. n
stjörnurnar
Spáð í
Naut - 20. apríl–20. maí
Fiskur - 19. febrúar–20. mars
Vatnsberi -
20. janúar–18. febrúar
Steingeit -
22. desember–19. janúar
Bogmaður -
22. nóvember–21. desember
Sporðdreki -
23. október–21. nóvember
Vog - 23. sept.–22. október
Meyja - 23. ágúst–22 .sept.
Ljón - 23. júlí–22. ágúst
Krabbi - 22. júní–22. júlí
Tvíburi - 21. maí–21. júní
Stjörnuspá vikunnar
Gildir 29. mars – 4. apríl
Þú ert þekkt/ur fyrir að fá fullt af
hugmyndum og sumar eru ansi brjálaðar.
Núna hefurðu meiri tíma til að hugsa,
eins og flestir, og allt í einu poppar upp í
kollinn gömul hugmynd sem þér fannst
alltof brjáluð hér einu sinni. Núna eru
hins vegar breyttir tímar og hugsanlega
er þessi hugmynd ekki það fráleit eftir
allt saman. Þá er bara að hrinda henni í
framkvæmd!
Þú átt það til að þvinga fólk til að vera
sammála þér eða til að fá þínu fram-
gengt. Þú átt það til að æða áfram, líkt
og þú værir stjórnlaus, sem þú ert samt
í raun ekki. Í þessari viku hittir þú hins
vegar fólk sem lætur ekki bjóða sér slíkt
og þarft þú því að taka á honum stóra
þínum og sannfæra það með traustri
röksemdafærslu og samkennd.
Þó að þú þurfir að halda þig í fjarlægð frá
manneskju sem er þér kær þýðir það ekki
að þú getir ekki tjáð tilfinningar þínar eða
umhyggju. Nú er akkúrat tíminn til að
finna nýjar leiðir til að gleðja og viðhalda
ástarloganum, til dæmis með fallegum
orðsendingum eða heimsendum pakka.
Myndsímtöl eru líka til margs gagnleg, þá
sérstaklega í svefnherberginu.
Þú átt mjög erfitt með að viðurkenna
þegar þú hefur rangt fyrir þér og átt oft
erfitt með að víkja. En sá vægir sem vitið
hefur meira og stundum er gott að játa
vanmátt sinn. Það er hins vegar ýmislegt
að angra þig þessa dagana og af-
brýðisemi blossar upp í nánu sambandi.
Afbrýðisemi er aldrei af hinu góða og þú
skalt passa þig vel á þeim vegi sem þú
fetar nú.
Þín yndislega sál vill alltaf sjá það besta í
öllum, elsku ljón. Nú er hins vegar tími til
að vera á varðbergi. Það er einhver úlfur
í sauðargæru nálægt þér og það reynist
þér erfitt verk að bera kennsl á þann
svikahrapp. Ekki saka neinn um neitt
fyrr en þú ert 100 prósent viss í þinni sök.
Láttu frekar lítið fyrir þér fara og safnaðu
upplýsingum sem styðja mál þitt.
Einhleypar meyjur hafa sjaldan eða
aldrei fundið fyrir jafnmiklum neistum og
fiðrildum í maganum og nýta þessa viku
til að segja einhverjum sérstökum hvernig
þeim líður. Lofaðar meyjur þurfa engar
áhyggjur að hafa því um miðja vikuna
fyllast þær af sjálfstrausti og metnaði til
að gera vel við makann á alla mögulega
og ómögulega vegu. Þessi vika verður ein,
stór flugeldasýning.
Þú hefur verið að sópa einhverjum litlum
verkefnum undir mottu en nú er komi tími
til að viðra mottuna rækilega og takast
á við þessi verkefni, sem eru alls ekki eins
flókin og þú hélst í byrjun. Síðan þarftu að
gera upp viss mál við ákveðinn aðila og
skalt passa þig á að vera ekki of fljót/ur
til árekstra og rifrildis. Reyndu að takast
á við þetta á yfirvegaðan hátt.
Einhver sem stendur þér nærri heldur að
sér stóru leyndarmáli, en það er sama
hvað þú reynir að draga það upp úr
þessum aðila – það tekst ekki. Því skaltu
einbeita þér að öðru og leyfa þessari
manneskju að ákveða sjálf hvenær og
hvernig hún nálgast þig og léttir af sér
leyndarmálinu. Það er nefnilega stórt og
þú þarft að hafa þig alla/n við að sýna
skilning.
Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu hefur
þú dregið saman seglin og ekki eytt
jafnmiklu og þú gerir vanalega. Þú ert
nefnilega soddan eyðslukló en núna
horfir þú á peninga á allt annan hátt. Þú
eyðir í nauðsynjar – ekki munað. Þetta
er góður tími fyrir þig til að endurskipu-
leggja fjármálin og athuga hvort þú getir
jafnvel lagt aðeins fyrir, áður en harðindin
banka upp á.
Það er mikill kraftur sem býr innra með
þér en undanfarið hefur þú þurft að eyða
aðeins of miklum kröftum í ákveðna
manneskju sem hefur sogað úr þér mikla
orku. Í þessari viku ákveður þú að einbeita
þér að því að endurstilla þig og fá alla
þessa orku til baka með því að gera það
sem þér finnst skemmtilegt, ganga um
í guðsgrænni náttúrunni og lesa góðar
bækur.
Þú þarft að pústa, elsku vatnsberi.
Hringdu í góðan vin eða annan sem þolir
að hlusta tímunum saman á allt sem er
að angra þig. Þú ert á barmi einhvers kon-
ar áfalls og það virkar ekki lengur að gera
eitthvað til að fá útrás fyrir gremjuna. Nú
þarftu að finna nýjar leiðir og jafnvel leita
þér faglegrar aðstoðar við þínum kvillum.
Það er aldrei gaman að efast um fólk en
þú þarft samt að hugsa þig tvisvar um
áður en þú treystir manneskju sem er
tiltölulega nýkomin inn í líf þitt. Þú ert
móttækilegri nú en áður fyrir gylliboðum
en þú þarft að gæta þess að hafa báðar
fætur á jörðinni og vega og meta hvert
einasta tækifæri sem verður á vegi
þínum.
Hrútur - 21. mars–19. apríl
Afmælisbörn vikunnar
Lesið í tarot Páls
Ástfangin í sóttkví –
Svona eiga þau saman
Á
hrifavaldurinn Tanja Ýr Ástþórsdóttir og
kærasti hennar, þúsundþjalasmiðurinn
Egill Fannar Halldórsson, hafa verið saman
í sóttkví í nokkra daga, allt frá því að Eg-
ill kom til landsins eftir ferð til Balí. Tanja og Egill
hafa verið saman um nokkurra ára skeið og ákvað
DV að lesa í stjörnumerki þeirra og athuga hvernig
þau eiga saman.
Egill er fiskur en Tanja Ýr er vatnsberi. Þetta
samband þrífst á gagnkvæmri virðingu fyrir hug-
myndum og tilfinningum hvort annars. Það er
ávallt ys og þys í kringum þetta par og eru þau bæði
afar sveigjanleg þegar kemur að því að stökkva á
ný tækifæri og ævintýri.
Vatnsberinn er mjög hugmyndaríkur og er sífellt
að skapa. Fiskurinn svífur áfram í draumaheimi
og saman geta þessi tvö hrint alls kyns sniðugum
hugmyndum í framkvæmd. Egill og Tanja Ýr eru
bæði mjög lausnamiðuð og eru mjög góð í að líta
inn á við þegar kemur að samskiptum við aðra,
hvort sem það er makinn eða vinir. Vatnsberinn
getur oft verið fljótur að dæma þá sem sjá heim-
inn ekki eins og hann, á meðan fiskurinn sýnir oft
of mikla góðmennsku, jafnvel þeim sem eiga hana
ekki skilið.
Vatnsberinn og fiskurinn eru ekki aðeins
æðislegir elskhugar heldur mjög góðir vinir.
Vandamál eru sjaldséð í þessu sambandi en þegar
þau koma upp eru bæði merki mjög fljót til að
fyrir gefa og halda áfram með lífið. n
Egill
Fæddur: 12. mars 1993
Fiskur
n listrænn
n blíður
n hjartagóður
n tilfinninganæmur
n treystir of mikið
n vill flýja raunveruleikann
Tanja Ýr
Fædd: 9. febrúar 1992
Vatnsberi
n frumleg
n sjálfstæð
n mannvinur
n framsækin
n fjarlæg
n ósveigjanleg
Breytir reynslu í ávinning
n 29. mars Ívar Guðmundsson útvarpsmaður, 54 ára
n 30. mars Auður Jónsdóttir rithöfundur, 47 ára
n 31. mars Steinþór Helgi Arnsteinsson umboðsmaður, 36 ára
n 1. apríl Sigríður Björg Tómasdóttir almannatengill, 49 ára
n 1. apríl Gunnar Reynir Valþórsson fjölmiðlamaður, 45 ára
n 4. apríl Jakob Bjarnar Grétarsson fjölmiðlamaður, 58 ára
n 4. apríl Gyrðir Elíasson rithöfundur, 59 ára