Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2020, Side 38
38 FÓKUS 27. mars 2020
YFIRHEYRSLAN
Bragi
Árnason
Mætti undir fölsku
flaggi á árshátíð
Bragi Árnason, leikari og söngvaskáld, kennir leiklist í Laugarnes-
skóla samhliða því að vinna að tónlist en hann gaf nýlega út lagið
Silver Screen á Spotify. Bragi leggur að eigin sögn mest upp úr ein-
lægni enda skili það á endanum bestum árangri að fylgja hjartanu.
Bragi er í yfirheyrslu helgarinnar.
Hvar líður þér best? Oft þarf ég bara örlítið ferskt loft, þá er það meira spurning
um hvenær heldur en hvar. Það er notalegt að syngja í góðra vina hópi. Ef vel lukkast
á sviði líður mér þó rosalega vel með hljóðnemann sem dæmi með Mánujazz bandið
mér við hlið, yndislegir drengir og flinkir spilarar!
Hvað óttastu mest? Að valda sjálfum mér vonbrigðum, eflaust. Og orðsporið.
Skíthræddur um það, þoli það samt ekki, finnst sá ótti oft hamla mér.
Hvert er mesta afrek þitt? Að hafa skrifað, samið og sett á svið söngleikinn
Þegar öllu er á botninn hvolft, byggðan á minni ævi. Það þurfti hugrekki til, en það var
það eina rétta í stöðunni.
Furðulegasta starf sem þú hefur tekið að þér? Ég lék nú eitt sinn Elísabetu
Englandsdrottningu í „stand-up“ sýningu – ætla ekki að segja hvernig. Annars hef ég
líka mætt undir fölsku flaggi sem leiðinlegur nýr starfsmaður hjá árshátíðum fyrirtækja
og það hefur vakið mikla kátínu. Svo var ég gangbrautarvörður í hverfinu mínu í
London. Þar í landi kallast sá starfstitill „Lollipop Man“. Grínlaust.
Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Eins og staðan er. /Minn
innri marbendill. /Ég er fiskur. Þar til mér dettur eitthvað betra í hug.
Hvernig væri bjórinn Bragi? Eitthvað karamellukennt, smá
ljóst, örlítið sætt og svalandi. Bragi var jú guð skáldskapar í goða-
fræðinni, gaman ef þetta væri svona skáldskaparmjöður.
Besta ráð sem þú hefur fengið? Að vera hreinskilinn.
Fylgja hjartanu. Virkar að lokum alltaf best.
Hvert er leiðinlegasta húsverkið? Mér finnst þau öll
mjög fín, hafa mjög róandi áhrif á mig. Það er bara þegar ég sé
fram á að ég þurfi að byrja á einhverju sem ég mun ekki getað
klárað að ég fyllist smá stressi. Þetta var nú meira í íbúðinni
sem ég bjó í í London, hún safnaði auðveldlega ryki og raka.
Besta bíómynd allra tíma? Boyhood er gífurlega
vönduð, vel skrifuð og leikin kvikmynd í alla staði, gerð af
mikilli næmni, raunsæi og laus við alla upphefð. Fallega
húmanísk saga um lífið og uppvöxtinn.
Hvaða hæfileika myndir þú vilja búa yfir? Að eiga
ekki í neinum vandræðum með það að taka ákvarðanir.
Hver er mesta áhætta sem þú hefur tekið? Að deila mér öllum,
kostum og göllum, í þessu sjálfsævisögulega sviðsverki sem ég setti á lagg-
irnar.
Hvaða frasi eða orð fer mest í taugarnar á þér? Ofnotaðir
frasar. Jafnvel: Hæ, hvasegiru? Þegar fólk hittist. Langar oft frekar að segja,
gott að sjá þig, miklu hlýrri kveðja. Það finnst eflaust mörgu fólki það líka
ofnotað. Ætli ég leggi ekki mest upp úr einlægni.
Hvað geturðu sjaldnast staðist eða ert góður í að réttlæta
að veita þér? Meðal annars sykur út í kaffið og of mikið á diskinn
almennt. Einhver ávani úr sveitinni í gamla daga. Ég þurfti að borða vel
áður en haldið var út í langa vinnutörn.
Hvað er á döfinni hjá þér? Ég mun leiða, ef allt blessast, samsöng
í Hannesarholti þann 3. maí þar sem við syngjum saman vel valin íslensk
dægurlög sem hafa skapað sér sess í hjartanu. Ætlunin er svo að sýna
söngleikinn minn aftur seinna á árinu, það þarf bara að sjá hvernig mál
þróast í tenglsum við allar samkomur og lýðheilsu auðvitað. Ég bíð svo
spenntur eftir því að sjá þau verkefni sem ég hef leikið í líta dagsins ljós – og
ferðalag stuttmyndarinnar okkar Wilmu, en hún er tilnefnd til Eddunnar.
Íris Hauksdóttir
iris@dv.is
M
Y
N
D
: E
Y
Þ
Ó
R
Á
R
N
A
S
O
N