Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1944, Síða 16

Íþróttablaðið - 01.02.1944, Síða 16
8 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ Frá því um veturinn 1941 hcf ég æft hjá Glímufélaginu Ármann. Kristm.: Veturinn 1928, að mig minn- ir, kom ég á riokkrar glímuæfingar á glímunámsskeiði, sem haldið var á Reynivöllum í Kjós að tilhlutun Ungmennafélagsins „Drengur“. Kenn- ari var hinn snjalli glimumaður Þorgeir Jónsson frá Varmadal. Haustið 1932 var ég á þriggja vikna íþróttanámskeiði, sem haldið var á Hvammstanga, á vegum iþrótta félagsins þar. Kennari var Björn Jónsson frá Ölvaldsstöðum i Borg- arfirði. Veturinn 1934 var ég á iþróttaskól- anum í Haukadal hjá hinum ágæta kennara, Sigurði Greipssyni, þang- að til ég fór á vertíð. Svo var ég þar veturinn eftir i tvo mánuði. en þá meiddist ég lítil- lega á fæti og gat ekki tekið neinn verulegan þátt í glímunni. Einnig kenndi ég glímu i Ungmennafélag- inu Víði og Ungmennafélagi Þing- húa i Austur-Húnavatnssýslu. Mjög var erfitt um æfingar fyrir flesta, þvi að oft varð að fara lang- an veg eftir að lokið var gegning- um dagsins, stundum í ófærð og slæmum veðrum, en ungmennafé- iögin áttu mörg glæsileg glímu- mannaefni. 1940 var ég um tíma i Glimufélag- inu Ármann. Var glíman æfð ])ar talsvert öðruvisi en ég hafði vanizt. Sérstaklega fannst mér luin þyngri. Ég reyndi þá að breyta glímulagi mínu eftir því. En tíminn var stutt- ur og ég varð að kalla hálf bragða- Iaus um tíma. Veturinn 1941 æfði ég í Ármanni og fyrri hluta vetrar- ins 1942. En ég meiddist i Skjald arglímu Ármanns, þá um veturinn, og gat ekki æfl nema lítið af þeim sökum, seinni hhita vetrarins. 1943 gekk ég í Knattspyrnufélag Reykjavíkur og æfði seinni hluta vetrarins hjá hinum ágæta glímu- kennara og glímusnillingi Ágústi Kristjánssyni. Hve oft lceppl í fflímu? Guðm.: Alls 10 sinnum. Kristm.: Ég hefi keppt 12 sinnum í kappglimu. Fyrsta kappglíman, sem ég tók þátt i var bændaglíma að loknu námsskeiði á Hvammstanga 1932. Var hún á milli Hvamms- tangabúa, og þeirra sem sóttu nám skeifíið úr sveitunum í kring. Var afar mikil aðsókn að þessari bænda- glímu. Ég var bóndinn fyrir liði sveitamannanna, en Daníel Mark- ússon fyrir liði Hvammstangabúa. Mikið kapp var i glímunni, 'en þó ríkti alger drengskapur og prúð- mennska. Hvammstangabúar unnu. Ég iag'ði bóndann, en fór úr liði um olnbogann í úrslitaglímunni við síðasta manninn, bar skakkt fvrir mig hendi. Á árunum frá 1933—1938 keppti ég fimm sinnum i glimu á sam- baridsmóti Ungmennafélaga Vestur- Húnavatnssýshi. Vann ég glímuna í öll skiptin. Keppt var um mjög fallega gripi, þrjú síðustu árin er ég keppti þar, útskorinn bikar eftir Ríkarð Jónsson, fyrir kappglímu, en fagran silfurskjöld fyrir fegurðar- glímuna. Guðmundur bróðir minn vann alltaf fegurðarverðlaunin keppti hann jafnoft mér í glímunni, en við vorum báðir félagar í U.M.F. Víði. Hefi ég ekki keppt við neinn eins oft í glímu og við Guðmund. Næst keppti ég í Íslandsglímunni 1940, en þá varð Ingimundur Guð- mundsson glímukongur. Árið 1942 keppti ég i Skjaldarghmu Ármanns en það er fjölmennasta glíma sem ég hefi tekið jiátt í. Keppendur voru 20. 'Vann ég þá glímu. Sama ár vann ég einnig Íslandsglímuna. Á síðastliðnum vetri vann ég glinm- horn K.R. í innanfélagsképpni fé- lagsins. Síðastliðið vor keppti ég á Íslandsglímunni og nú síðast á Skjaldarglímu Ármanns, en lienni varð ég að hætta vegna lasleika. Guðmundur Ágústsson vann bæði þessi glímumót. Ilve oft tekið þátt i Íslandsglímu? Guðm.: Einu sinni, 1943. Kristm.: Fjórum sinnum alls. Hvaða fflímumenn eru þér minnis- stæðastir? Guðm.: Sá glímumaður, sem ég veitti mesta athygli í þessari íslands- glímu, var Kristmundur Sigurðsson. Ég vissi að hann var mjög snjall glímumaður og að liann mundi verða mér hættulegur. líristm.: Kappglimu sá ég ahlrei fyrr en ég fór að keppa, en ég á margar góðar endurminningar frá kapp glímura. Gæti ég betur svarað þess- ari spurningu síðar, er ég lít yfir hópinn, sem ég hef keppt við, og séð glima. Hvuða glímumenn hefur þú útt mest við? Guðm.: Það er dálítið erfitt að svara þessu. Á glímuæfingum glími ég 'ekki við einn, fremur en annan, en sá maðurinn, sem ég hef átt lengsta glímu við í keppni er Davíð Hálf- dánarson á Skjaldarglímu Ármanns 1942. Urðum við að glíma í tveir.i lotuni áður en glíman yrði útkljáð. Kristm.: Eins og ég tók fram áðan hef ég keppt oftast við Guðmund bróð- ir minn, þar næst við Sigurð Hall- björnsson, 5 sinnum, en færri kapp- glímur við aðra. Hvað segirðu itm glímuskjálftann? Guðm.: Það er stundum talað um að menn fái glímuskjálfta þegar þeir ætla að fara að glíma eða eru að því. Ég hefi frekar lítið fundið tii hans fram að þessu. Þessi svokall- aði glímuskjálfti, geri ég ráð fyrir að stafi af einhverjum innvortis hrolli, eða rf til vill af kvíða fyrir að leggja út i kappglímu eða þá, að glímumaðurinn bíði óþreyjufullur eftir því að komast i glímuna, til þess að beita sér í baráttu við andstæðing inn, fái snert af berserksgangi, sem oft var talað um lil forna. Það er á- reiðanlegt, að sá sein er óstyrkur og kvíðir fyrir glímu, er miklu síður fær í kappglímu, en hinn, sem finn- ur ekki til neins sliks. Kristm.: Um glímuskjálftann vil ég, sem minnst tala, mér er afar kalt tii hans. Hann hefur fylgt mér í sumar kappglímur. Ég held að hann stafi af ónógri æfingu, og sé sam- bland af kvíða og kappi. Hvaða brögðum beitir þú mest? Guðm.: Ég hefi alltaf notað mest há- brögðin, klofbragð og sniðglímu a lofti, tekin með vinstra fæti. Kristm.: Sniðglíma á lofti hefur oft-

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.