Íþróttablaðið - 01.08.1977, Blaðsíða 5
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
íþróttir og útilíf
Málgagn iþróttasambands (slands
Ritstjóri:
Sigurður Magnússon
Skrifstofa ritstjórnar:
íþróttamiðstöðinni Laugardal
Útgefandi: Frjálst framtak hf.
Framkvæmdastjóri:
Jóhann Briem
Skrifstofa og afgreiðsla:
Ármúla 18
Símar 82300, 82302
Blaðið kemur út annan hvern mánuð
Árgjald kr 2.370
Útlit: Árni J. Gunnarsson
Setning og umbrot:
Prentstofa G. Benediktssonar
Prentun: ísafoldarprentsmiðja
Prentun kápu: Prenttækni
Héraðssambönd innan ÍSi:
Héraðssamband Snæfellsness- og
Hnappadalssýslu
Héraðssamband Strandamanna
Héraðssamband Suður-Þingeyinga
Héraðssamband Vestur-ísfirðinga
Héraðssambandið Skarphéðinn
iþróttabandalag Akraness
iþróttabandalag Akureyrar
fþróttabandalag Hafnarfjarðar
iþróttabandalag isafjarðar
iþróttabandalag Keflavíkur
iþróttabandalag Ólafsfjarðar
iþróttabandalag Reykjavíkur
iþróttabandalag Siglufjarðar
iþróttabandalag Suðurnesja
iþróttabandalag Vestmannaeyja
Úngmenna- og íþróttasamband
Austurlands
Ungmennasamband A.-Húnvetninga
Ugmennasamband Borgarfjarðar
Ungmennasamband Dalamanna
Ungmennasamband Eyjafjarðar
Ungmennasamband Kjalarnessþings
Ungmennasamband N.-Þingeyingc
Ungmennasamband Skagafjarðar
Ungmennasamband V.-Húnvetninga
Ungmennasamband V.-Skaftfellinga
Ungmennasambandið Úlfljótur
Sérsambönd innan iSi:
Badmintonsamband (slands
Blaksamband íslands
Borðtennissamband islands
Fimleikasamband íslands
Frjólsíþróttasamband islands
Glímusamband islands
Golfsamband Islands
Handknattleikssamband islands
Júdósamband islands
Knattspyrnusamband fslands
Körfuknattleikssamband islands
Lyftingasamband íslands
Siglingasamband íslands
Skíðasamband islands
Sundsamband íslands
Ritstjórnarspjail
Ratleikur á stefnuskrá ÍSÍ
Ný íþróttagrein, sem hlotið hefur nafniö Ratleikur (á erlendu máli Orien-
tering) hóf göngu sína hér á landi um miðjan ágúst sl. að Hallormsstað. Með
þeim viðburði er hafinn nýr og merkur áfangi í íþróttastarfinu. Erlendis er
ratleikur ein allra vinsælasta almenningsíþróttin, enda sérlega heppileg sem
fjölskylduíþrótt, í senn skemmtileg og þroskandi.
Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands, sem annaöist um þetta fyrsta
ratleiksmót í nánu samstarfi við ÍSÍ, hefur leyst af hendi visst brautryðjenda-
starf, sem væntanlega á eftir aö breiðast út og festa rætur sem víðast á
landinu. Enda þótt Hallormsstaðaskógur með allri sinni fegurð og víðlendi, sé
einkar heþpilegur staður fyrir ratleik, eru margir aðrir staðir vel fallnir í þessu
skyni, eins og t.d. Kjarnaskógur við Akureyri og Vaglaskógur, Dimmuborgir í
Mývatnssveit, Heiðmörkin við Reykjavík, Þingvellir, Skaftafell, nokkrir staðir í
Borgarfirði svo eitthvað sé nefnt. Á öllum þessum stöðum og ýmsum öðrum
er auðvelt að koma uþþ aðstöðu fyrir ratleik, sem heimamenn og ferðamenn
þúsundum saman gætu fært sér í nyt.
Nýir samstarfsaðilar
Annar merkur áfangi hefur náðst með tilkomu ratleiksins:
1. Skógræktarmenn hafa lagzt á sveif með íþróttahreyfingunni við að efla
áhuga almennings fyrir útivist og hollri hreyfingu.
2. Norsk Orienterings Forbund hefur og vill áfram láta í té faglega og fjár-
hagslega aðstoð.
Ratleikurinn að Hallormsstað hefði ekki orðið að veruleika án samstarfs og
skilnings af hálfu skógræktarinnar á staðnum. Framlag Jóns Loftssonar
skógfræðings að Hallormsstað var ómetanlegt og þau ummæli nýskipaðs
skógræktarstjóra, Sigurðar Blöndal, um að skógræktin vildi stuðla að stór-
aukinni notkun skóganna í formi ratleiks, eru þæði ánægjuleg og uþpörv-
andi. Fátt er okkur eins nauðsynlegt og að meta rétt og umgangast rétt okkar
fagra land. Aukin útivist og þar með meiri kynni af landinu vega þar þyngst.
Það verður því að ætla, að þegar skógræktarmenn, íþróttahreyfingin og aðrir
aðilar sem vinna að útivistarmálum, taka höndum saman á þessum vettvangi,
muni nást umtalsverður árangur.
Norsk Orienterings forþund (norska ratleikssambandið) átti sinn drjúga
þátt í að ratleikur er orðinn að veruleika hjá íþróttahreyfingunni. Einn úr
alþjóðasamskiptanefnd sambandsins, Helge Bowim, blaðam. í Oslo, hefur
sýnt þessu máli einstakan áhuga og lagt á sig mikla vinnu og fyrirhöfn.
Norska sambandið annaðist um kortagerðina og greiddi að mestu leyti.
Loks buðu ÍSÍ og ÚlA norska sambandinu að senda hingað 6 fulltrúa til að
taka þátt í og aðstoða við framkvæmd ratleiksins að Hallormsstað og naut
íþróttahreyfingin ómetanlegs stuðnings Flugleiða hf. til að svo gæti orðið.
Það var einvalalið sem Norðmenn sendu hingað þar sem meðal þátttak-
enda var heimsmeistarinn Egil Johansen og landsliðsþjálfarinn Öjvind Mjö-
en. Hafa Norðmenn með framlagi sínu sýnt norrænt samstarf í verki eins og
þezt verður á kosið og ber að þakka þeim sérstaklega fyrir mikinn áhuga og
gott samstarf.
[þróttablaðið fagnar þessum nýja áfanga og væntir þess að héraðssam-
bönd og íþrótta- og ungmennafélög sem víðast á landinu kynni sér mögu-
leikana á að taka ratleik á stefnuskrá sína.
5