Íþróttablaðið - 01.08.1977, Page 21
Frjálsíþróttafólk um Guðmund Þórarinsson:
Iróttablaðið fékk nokkra þeirra sem
notið hafa og njóta leiðsagnar
Guðmundar Þórarinssonar, til að
láta í ljós skoðun sína á starfi
Guðmundar. Fara svör þeirra hér á eft-
ir:
Friðrik Þór Óskarsson:
— Ég hitti Guðmund fyrst á 17. júni
mótinu 1967. Síðan hefur hann ekki
einungis verið þjálfari minn og félagi,
heldur einnig á margan hátt uppalandi.
Guðmundur hefurorðið árangursríkasti
þjálfari sem Islendingar hafa átt vegna
hans brennandi áhuga á íþróttastarfinu
og eindæma fórnfýsi. I þessi 10 ár sem ég
hef stundað frjálsíþróttir hafa orðið gíf-
urlega miklar framfarir hjá íslenzku
frjálsíþróttafólki og á Guðmundur
langstærstan þáttinn í þeim. að öðrum
ólöstuðum. Ég á honum að þakka að
áhugi minn á frjálsum íþróttum hefur
farið vaxandi með ári hverju. og hef ég
aldrei náð betri árangri en á sl. sumri.
Hjálpaði
okkur
fyrstu
sporin
25 íslandsmet sem ég hef sett síðan ég
byrjaði í frjálsum íþróttum. en ferill
minn byrjaði í Hljómskálahlaupi ÍR í
febrúar 1969.
Gunnar P. Jóakimsson:
— Ég hóf minn feril í Hljómskála-
hlaupum Guðmundar og hef síðan notið
tilsagnar hans. Hans leiðsögn í upphafi
og samskipti við hanns íðan hafa hjálp-
að mér til að ná þeim árangri sem ég hef
náð í dag. Að fá rétta tilsögn í upphafi er
ákaflega mikilvægt en á þann hátt hefur
Guðmundur lagt mikla áherzlu og
dæmin bera vott um það mikla starf sem
hann hefur unnið í þessum efnum.
Ingunn Einarsdóttir:
— Fyrstu árin eftir að ég kom til
Reykjavíkur var ég frekar löt við æfing-
ar, en Guðmundur hvatti mig óspart til
að æfa og keppa. auk þess sem hann
skaut skjólshúsi yfir mig um tíma er ég
var húsnæðislaus, en þetta hefur allt
hjálpað til við árangurinn.
Guðmundur hefur um árabil tekið virkan þátt í stjórnun og rekstri frjálsíþróttadeildar ÍR. Þessi svipmynd er frá einum mjög svo tiðra
funda.
Þórdís Gísladóttir:
— Ég hefði sennilega aldrei byrjað
frjálsíþróttaæfingar ef ekki hefði komið
til mikil hvatning Guðmundar í upphafi.
Leiðsögn hans síðan hefur skapað þann
árangur sem ég hef náð.
Ágúst Ásgeirsson; form. frjálsíþrd. ÍR
— Það óbilgjarna og óeigingjarna
starf sem Guðmundur Þórarinsson hef-
ur unnið á sviði frjálsíþrótta hefúr ekki
aðeins verið félaginu til ómetanlegs
gagns heldur íslenzkum frjálsíþróttum
einnig. Hvað sjálfan mig snertir á ég
íþróttagetu mína Guðmundi að þakka.
Án hans upphaflegu og áframhaldandi
tilsagnar, góðs viðmóts og mikillar
hjálpsemi hefði ég líklega aldrei sett þau
Jón S. Þórðarson:
— Þegar ég var 12 ára kynntist ég
Guðmundi gegnum Hljómskálahlaupið.
Mér þótti karlinn skemmtilegur og hann
kveikti áhugann hjá mér. Við erum
ótrúlega mörg sem byrjuðum 1 garðin-
um. Guðmundur hefur alltaf haft ein-
stakt lag á krökkum, þau beinlínis laðast
að honum.
21