Íþróttablaðið - 01.08.1977, Blaðsíða 31
Heimsbikarkeppnin í Diisseldorf
Hlutverka-
skipti á
toppnum
Vaktaskipti á toppnum í 1500 metra
hlaupinu, sögðu blaðamenn eftir
keppnina á Rheinstadion í Diiss-
eldorf. Þeir sem höfðu þau skipti
voru Ný-Sjálendingurinn John Walker,
heimsmethafi í míluhlaupi og 21 árs
krangalegur Breti frá Brighton, Stephen
Ovett að nafni. Stakk Ovett keppinauta sína
af í hlaupinu, en John Walker hætti hins
vegar þegar um 100 metrar voru eftir í
markið, og þótti mörgum það súrt í broti og
ekki stórmannlegt hjá methafanum að gef-
ast upp þegar hann sá að hann átti ekki
sigurmöguleika.
Þótt sigur Ovetts í Dusseldorf væri hans
mesti sigur á hlaupabrautinni til þessa, er
hann þó löngu kunnur sem góður hlaupari.
Hann var ekki nema 17 ára þegar hann
vakti fyrst athygli með afrekum sínum, en
þá varð hann brezkur meistari í 800 metra
hlaupi. Ári síðar hlaut hann silfurverðlaun í
þeirri grein á Evrópumeistaramótinu í
Róm. Á Ólympíuleikunum í Montreal var
Ovett meðal keppenda, en náði ekki sérlega
góðum árangri. Þar fylgdist hann með
Alberto Juantorena, Kúbumanninn sem
hlaut gullverðlaun bæði í 400 og 800 metra
hlaupi, og sannfærðist um að þennan mann
gæti hann aldrei sigrað. Því sneri Ovett sér
að lengri hlaupum, með von um að geta
blandað sér 1 baráttuna í þeim á Ólympíu-
leikunum í Moskvu. Árangurinn lét ekki á
sér standa. I fyrsta skipti sem hann hljóp
5000 metra hlaup náði hann tímanum
13:53,4 og bætti þann árangur í 13:25,0 mín.
í næsta hlaupi sínu.
1 Diisseldorf var Ovett hinn sterki í 1500
metra hlaupinu og bætti sinn bezta árangur
um heilar þrjár sekúndur, hljóp á 3:34,5
mín. Hefði hann ekki fallið í þá freistni að
veifa til áhorfenda þegar hann var orðinn
öruggur sigurvegari, er mjög sennilegt að
hann hefði getað bætt Evrópumet Frakkans
Hean Wadoux, en það er 3:34,0 mín.
— Ég hljóp til þess að vinna, ekki til að
setja met, sagði Ovett eftir hlaup þetta. —
Metið kemur síðar.
— En hvað skeði hjá John Walker?
— Það steig einhver ofan á mig og þar
með missti ég taktinn í hlaupinu, sagði
Walker. — Ég sá að ég átti enga möguleika
og ákvað því að hætta hlaupinu. Ég á mína
slæmu daga sem aðrir, en ég mun ekki láta
Frá 1500 metra hlaupinu í Diissel-
dorf. John Walker hefur enn foryst-
una, en Steve Ovett fylgir honum fast
á eftir og fór frammúr örskömmu eftir
að myndin var tekin. Að baki þeim
má m.a. sjá Austur-Þjóðverjanna
Júrgen Straub.
mig þótt svona færi. Stephen Ovett er frá-
bær hlaupari, sem ég á örugglega eftir að
mæta á hlaupabrautinni oft í framtíðinni,
og þá gefst mér tækifæri til þess að svara
fyrir mig.
— Þetta er rétt hjá Walker, sagði Ovett,
— það er ekki hægt að dæma um hvor
okkar er betri eftir eitt hlaup. Walker hefur
hlaupið mjög vel í sumar og nánast verið
ósigrandi. Núna var líka mikið álag á hon-
um. Allir kröfðust sigurs af honum, og helzt
heimsmets. Það er ekki gott að hlaupa undir
slíkri pressu.
Raunir
Eins og jafnan á stórmótum
fengu ekki allir íþróttamenn-
irnir óskir sínar uppfylltar í
heimsbikarkeppninni í Diissel-
dorf. Þar skiptust á skin og skúrir,
heppni og óheppni, eins og alltaf áður.
Fáir keppendur á þessu móti voru jafn-
óheppnir og sænski hindrunarhlaupar-
inn Dan Glans, en hann var álitinn mjög
sigurstranglegur í sinni grein og hafði
lengi vel forystuna 1 hlaupinu. Þegar
hann var að fara yfir hindrunina við
vatnsgryfjuna í næst síðasta sinn varð
hann fyrir því óhappi að detta og fór
bókstaflega í kaf í gryfjuna. Var Glans 1
stórhættu þar sem hann var að brölta á
fætur í gryfjunni, meðan keppinautar
hans voru að fara framhjá, en slapp sem
betur fer við það að fá gaddaskó þeirra í
sig.
Auðséð var að Glans leið mjög illa er
hann gat komizt úr gryfjunni og inn á
grasvöllinn. Hann hrópaði hástöfum á
hjálp og bað um að fá íspoka. Enginn
kom honum til hjálpar, og stóð fyrirliði
Evrópuliðsins sem Glans var fulltrúi
fyrir, Finninn Gustav Laurel í ströngu
við verði á vellinum um að fá að koma
Glans til hjálpar. Fór svo að lokum að
Glans varð að brölta á fætur og staulast
að miðstöð sjúkraliða á vellinum, þar
sem hann var athugaður lauslega. Síðan
var kallað á sjúkrabíl og Glans fluttur í
skyndi á sjúkrahús. Kom þar í ljós að
liðbönd höfðu slitnað í ökla hans og
þurfti hann að gangast undir töluverða
aðgerð. Glans fékk fljótlega félagsskap á
stofuna sem hann lá á. Vestur-þýzki
hindrunarhlauparinn, Frank Baum-
gartl, hafði einnig meiðzt í hlaupinu og
varð að gangast undir aðgerð. — Það
versta var að við gátum lítið talað sam-
an, þar sem ég kann ekki þýzku og hann
ekki sænsku, sagði Glans.
Dan Glans hefur skriðið upp úr
vatnsgryfjunni og liggur á grasinu
við brautina illa haldinn.
31