Íþróttablaðið - 01.08.1977, Qupperneq 47
vel að sér í bókmenntum og hefur greinilega
lesið mikið.
— Skólinn tekur venjulega 8 tíma á dag,
sagði Vilmundur, — ég æfi í 2—3 tíma og
þar af leiðandi á ég nokkurn tíma aflögu til
þess að sinna öðrum hugðarefnum mínum.
Ég hef mjög gaman af tónlist og þó sér-
staklega bókmenntum. Ég hef alltaf bækur
Steins Steinarrs með mér til Englands, og
þegar ég er illa upplagður gríp ég oft í þær
og sæki mér þartgað andlega uppörvun og
skemmtun. Ég hef lesið mjög mikið af ljóð-
um bæði yngri og eldri skálda, og hef einnig
alltaf mikla ánægju af því að lesa skáldverk,
sérstaklega ef þau eru ekki mjög löng. Ein-
hvem veginn er það þannig að ef maður
hefur áhuga á einhverju þá finnur maður
sér alltaf tíma til þess að sinna þeim hugð-
arefnum.
Framtíðarmarkmiðin
Þegar Vilmundur var spurður um fram-
tíðarmarkmið hans í íþróttunum, var hann
nokkuð tregur til svara. — Ég hef reynt að
hafa það að leiðarljósi að segja minna og
gera meira, sagði hann, — en það er út af
fyrir sig ekkert leyndarmál og næsta sumar
tetla ég að einbeita mér að 100 og 200 metra
hlaupi og komast á Evrópumeistaramótið.
Ég varð fyrir nokkrum vonbrigðum með
þetta keppnistímabil, þar sem ég hafði ætl-
að mér mun meira en náðist. Ég missti
reyndar heilan mánuð úr vegna meiðsla sl.
vor og varð auðvitað að gjalda þess. Síðar er
það ætlunin að snúa sér ef til vill að 400
metra hlaupinu, en til þess að geta farið í
það þarf ég að ná meiri tækni en ég hef
núna yfir að ráða. Þar er ekki nóg að hafa
kraftinn, heldur verður maður að kunna að
slappa af í hlaupinu til þess að geta haldið
hraðanum. Til þess að verða góður 400
metra hlaupari þarf maður að vera nokkuð
öruggur að geta hlaupið 200 metrana á 20,5
sek.
— Ég lýk námi í Bretlandi árið 1979,
sagði Vilmundur, — og eftir það stefni ég að
því að fara í tveggja ára sjúkraþjálfaranám í
Bandaríkjunum. Þar veit ég að mér verður
boðið upp á fullkomnar aðstæður. Ég gat
teyndar farið þangað strax, en var ekki
ánægður þegar ég komst að raun um að
skólinn var ekki aðalatriði, heldur að maður
æfði og keppti í hlaupum og hlypi þegar til
þess væri ætlazt. Ég vil hlaupa þegar ég vil
það sjálfur. En í Bandaríkjunum ætti mér
að bjóðast aðstaða til þess að æfa vel fyrir
Ólympíuleikana í Moskvu 1980, og einmitt
á því ári ætti ég að vera í toppformi fyrir
spretthlaup. Þá verð ég 26 ára að aldri, en
upp úr því er hætt við að ég verði að snúa
mér að öðrum greinum, ef ég held áfram í
þessu, og hef ég þá mikinn áhuga á tug-
þrautinni. 8000 stig í tugþraut er draumur-
*nn, hvort sem hann rætist eða ekki.
SKI-DOO
frá BOMBARIER
Stærsta framleiðanda vélsleöa
í heiminum
Við getum boðið til afgreiðslu fljótlega, örfáa:
SKI-DOO ALPINE „Tvö 15“ belti — 65 hestafla vél,
upplagður fyrir björgunarsveitir og vinnuflokka, þetta er
sleðinn sem fer það sem hinir fara ekki.
SKI-DOO EVEREST 78 með 17“ Belti 45 hestöfl, stór
og sterkur ferðasleði, með öllum mælum og startara.
Einnig fyrirliggjandi:
fólks- og vöruflutningasleða
aftaní vélsleða, sjá mynd.
Gísli Jónsson & Co. h.f.,
Sundaborg 41, sími 86644.
47