Íþróttablaðið - 01.08.1977, Blaðsíða 49
Byrjaði sem aðstoðarmaður föður síns.en er nú orðinn einn
bezti golfleikari heims
Fyrir tæplega hálfum öðrum áratug
var það ekki óalgeng sjón á golfvelli
Country Club í Kansas City í
Bandaríkjunum að sjá tvo miðaldra
nienn leika þar golf saman. Þessum tveimur
mönnum, sem báðir hétu Watson, fylgdi
jafnan renglulegur strákur, rauðhærður og
nefni á strákinn, þar sem hann talaði lítið.
en fylgdist þeim mun betur með hvað þeir
fullorðnu aðhöfðust. Hann íhugaði hvert
högg þeirra og notaði svo sjálfur þau fáu
tækifæri sem gáfust til þess að slá hvíta
boltann.
Strákur þessi hét Tom og var sonur ann-
Bahdaríkjamaðurinn Lee
Trevino (með húfuna) vekur
jafnan mikla kátínu á golf-
mótum og tekur upp á ólík-
legustu hlutum. Myndin er
úr brezku keppninni, og
hefur Trevino látið eitthvað
skemmtilegt flakka við Jerry
Pate.
freknóttur. Hlutverk hans var að draga
golfkerrurnar, rétta fullorðnu mönnunum
þær kylfur sem þeir öskuðu og sjá um nestið
þeirra. Þeir félagar kölluðu piltinn aldrei
annað en Flytrap Finnegan, en persóna
nteð því nafni var á þessum árum vel þekkt í
Bandaríkjunum og hafði það fyrst og fremst
sér til ágætis að loka aldrei munninum.
Nafnið Flytrap Finnegan var þó ekki rétt-
ars golfleikarans sem hér um ræðir. Á því
herrans ári 1977 er þessi strákur orðinn einn
bezti golfleikari heims og vann sér það m.a.
til frægðar að sigra í sumar í einni mestu
golfkeppni heims „British open“, og voru
þó þar meðal keppenda ekki óþekktari
golfleikarar en gullbjörninn Jack Nicklaus
og Lee Trevino. Fyrir sigurinn í umræddri
keppni hlaut Tom Watson upphæð sem
svarar til 3 milljón íslenzkra króna í verð-
laun, en sjálfsagt hefur upphæð þessi verið
smápeningar í augum hans. Watson er
nefnilega orðinn einn af tekjuhæstu
íþróttamönnum í heimi, og er t.d. talið að
hann hafi haft upphæð sem svarar til 90
milljón króna í tekjur á árinu 1976.
— Ég man að mér var bölvanlega við það
að vera kallaður Flytrap Finnegan, og enn
þann dag í dag þoli ég ekki að heyra á þá
persónu minnzt, sagði Tom Watson nýlega í
blaðaviðtali. — Mamma lagði alltaf á það
ríka áherzlu að ég truflaði ekki pabba og vin
hans þegar þeir voru í golfi og sagði að auki
að ef ég væri með opinn munninn þegar ég
væri að draga golfkerrurnar, þá myndi ég fá
annaðhvort kvef eða hálsbólgu. Ég sagði því
sem minnst, jafnvel eftir að ég var farinn að
sjá að pabbi og vinur hans voru hinir mestu
klaufar í golfíþróttinni og notuðu sjaldnast
réttu kylfurnar þegar þeir voru að slá.
Þegar sá tími kom að Tom Watson fór að
ganga í skóla byrjaði íþróttaáhugi hans fyrir
alvöru og kom brátt í ljós að hann hafði
mikla hæfileika. Hann varð fljótt í fremstu
röð í knattspyrnuliði skóla síns, var jafnan
valinn í skólaliðið í körfuknattleik og var að
auki vel liðtækur í frjálsum íþróttum, stökk
t.d. tæpa 7 metra í langstökki. Að auki var
hann svo ágætur námsmaður og því ekki
49