Íþróttablaðið - 01.08.1977, Side 63
ÍÞRÓTTIR £t ÚTILÍF
»1
Utilíf
Byssur eru af mismunandi gerð-
um og kosta mismunandi mikið.
Þetta safn var myndað í Goða-
borg. Efst er fimrn skota Win-
chester (pumpa) sem kostar kr.
55.200. Næst er Ebai, tvíhleypa
(Spönsk, hlið við hlið) kr. 54.500.
Þá er einhleypt Stevens, kr.
15.000 og loks þriggja skota
Mossberg, (Bolt action) á kr.
37.500. Allar þessar haglabyssur
eru cal. 12.
Ein er sú íþrótt sem íþróttaskríb-
entar gefa ekki mikinn gaum að
öllum jafnaði, það er skotfimi. Á
íslandi er þó töluvert stór hópur manna
sem leggur stund á þessa íþrótt og hún er
líka alþjóðleg keppnisgrein.
Skotfélag Reykjavíkur og önnur slík
félög gangast fyrir keppnum í þessari
grein og þá fáum við stundum að sjá
myndir af einhverri kempu með byssu
um öxl og bikar í hendi, en þess á milli
eru „skothvellirnir" dempaðir.
Skotfimi hefur þó þá sérstöðu meðal
íþróttagreina að það er sérstaklega
gaman að stunda hana utan æfinga-
svæðisins og má kannske segja að þar
njóti hún sín best.
Það er líka hægt að hagnast töluvert á
þessari íþrótt. Hér fyrr á árum þegar fá-
tækt var mikil varð byssan oft barn-
mörgum fjölskyldum til bjargar. Fátæk-
legur kosturinn var bættur með fugli, sel
eða jafnvel hreindýri, sem hafði fallið
fyrir byssu heimilisföðurins. Þetta er
sem betur fer liðin tíð, en enn eru þeir
fjölmargir sem ná sér í rjúpu í jólapott-
inn og hafa jafnvel töluverðar aukatekj-
ur af því að selja það sem þeir veiða
umfram eigin þarfir.
Skyttur
og
boðorð
þeirra
Fjölbreytt bráð
Þegar talað er um fuglaveiðar dettur
mönnum helst í hug rjúpa og gæs. En
það er þó alger óþarfi að einskorða sig
við þessar tegundir, þótt gómsætar séu.
Á Islandi eru hvorki meira né minna en
þrjátíu og þrjár tegundir fugla sem má
veiða.
Reyndar eru þeir ekki allir ætir, sumt
eru vargfuglar sem veiðimenn hjálpa til
að halda í skefjum. Leyfi til að veiða
sumar tegundimar eru árstíðabundin og
að sjálfsögðu hlíta allir góðir veiðimenn
reglum sem þar um eru settar. Til
glöggvunar birtum við hér töflu sem
sýnir friðunar- og veiðitíma þeirra
fuglategunda sem ekki njóta algerrar
friðunar.
Forráðamenn fþróttablaðsins hafa
hug á að hafa reglulega þætti um byssur
og byssusport í blaðinu og er það vel. En
þar sem þetta er sú fyrsta (sem höf. er
Rifflar eru ekki síður fjölbreyttir.
Efst er Brno, 22 cal. á kr. 38.200.
Næst er Marlin (Lever action) í.22
Magnum á kr. 45.000. Þá er Brno
cal. 222 á kr. 76.500 og loks Sako
cal. 243 á kr. 107.000. (Myndir J.
Long).
kunnugt um) er kannske rétt að miða
hana dálítið við byrjendur í faginu.
Það skal þó tekið fram strax að þótt
vonandi komi hér fram punktar sem
einhverjum koma að gagni er langt frá
að þetta sé nein tæmandi leiðsögn.
Hvaða byssu?
Það fyrsta sem menn hugsa um þegar
þeir fá áhuga á skotfimi eða veiðum er,
eðlilega, hverskonar byssu þeir eigi að fá
sér.
Auðvitað er ekki hægt að gefa út
neina allsherjarreglu um þetta, en níu af
hverjum tíu skotmönnum hafa þó lík-
lega byrjað með 22 cal. riffil. Og níu af
hverjum tíu munu telja það hentugustu
byrjunina.
Rifflar af hlaupvídd .22 eru léttir,
þægilegir í meðförum og hafa ekki mjög
hátt. Þeir „slá“ líka sama og ekkert og
eru því miklu hentugri til fyrstu æfinga
en stærri vopn sem bæði slá mikið og
hafa hátt. Auk þess eru þeir margfalt
ódýrari í rekstri.
Veiðimönnum ber siðferðileg skylda
til að æfa sig vel í skotfimi áður en þeir
ganga til veiða. Ekkert er góðum veiði-
manni ógeðfelldara en að særa bráð
sína. Hann skýtur því ekki fyrr en hann
er viss um að fella hana í einu góðu skoti.
SJÁ NÆSTU SÍÐUR
63